Lögreglustjórinn á Vesturlandi

DalabyggðFréttir

Lögreglustjórinn á Vesturlandi auglýsir eftir tveimur héraðslögreglumönnum í Dalabyggð. Æskileg búseta umsækjenda er í Búðardal eða næsta nágrenni. Um hæfisskilyrði og hlutverk héraðslögreglumanna má lesa í reglugerð nr. 283/1997. Ráðningarkjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f. h. ríkissjóðs og Landssambands lögreglumanna. Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á logreglan.is. Umsóknum skal skilað til lögreglustjórans á Vesturlandi, …

Silfurtún, dvalar-og hjúkrunarheimili

DalabyggðFréttir

Dvala-og hjúkrunarheimilið Silfurtún auglýsir eftir starfsfólki. Silfurtún er lítið hjúkrunarheimili með 14 íbúum og leigjendum þar sem mannréttindi, mannúð og virðing er í heiðri höfð. Við sköpum íbúum öryggi með félagslegum og heilsufarslegum stuðningi. Við veitum íbúum alla nauðsynlega hjúkrun, umönnun og læknishjálp og styðjum og styrkjum þá. Óskað er eftir metnaðarfullum einstaklingum sem vilja leggja sitt að mörkum að …

Samtakamátturinn virkjaður

DalabyggðFréttir

Sveitarfélögin Dalabyggð, Reykhólahreppur og Strandabyggð hafa sl. ár unnið saman að svæðisskipulagi. Nú liggur fyrir skýrsla þar sem gerð er grein fyrir forsendum á skipulagssvæðinu m.t.t. umhverfis og samfélags. Á grunni þeirra forsendna eru settar fram tillögur að viðfangsefnum, áherslum, framtíðarsýn og svæðismarki og því síðan lýst hvernig staðið verður að frekari stefnumótun og umhverfismati stefnunnar. Skýrslan er til kynningar …

Rúlluplast – seinkun

DalabyggðFréttir

Tafir hafa orðið á söfnun rúlluplasts í vikunni og ekki komið lengra en á Skarðsströndina. Haldið verður áfram að safna rúlluplasti í næstu viku.

Allir lesa

DalabyggðFréttir

Í dag, föstudaginn 27. janúar, er blásið til leiks í hinum stórskemmtilega og æsispennandi lestrarlandsleik Allir lesa. Dalabyggð hvetur íbúa til að mynda lið og skrá lestur í von um að í sveitarfélaginu leynist sigurliðið, og þar með öflugustu lestrarhestar landsins. Dalamenn urðu í fjórða sæti í keppninni í fyrra. Í ár er einnig er hægt að keppa sem einstaklingur …

Beitarhegðun sauðfjár

DalabyggðFréttir

Laugardaginn 28. janúar kl. 15 mun Hafdís Sturlaugsdóttir fjalla um beitarhegðun sauðfjár á Byggðasafni Dalamanna á Laugum í Sælingsdal. Hafdís er bóndi í Húsavík á Ströndum og landnýtingarfræðingur hjá Náttúrustofu Vestfjarða. Aðgangseyrir er 500 kr fyrir fullorðna og kaffi á könnunni. Frítt fyrir börn yngri en 18 ára.

Krabbameinsskoðun á heilsugæslunni

DalabyggðFréttir

Helga Hreiðarsdóttir ljósmóðir verður með móttöku á heilsugæslustöðinn vegna leghálssýnatöku miðvikudaginn 25. janúar 2017. Konum sem hafa fengið bréf frá Leitarstöðinni er boðið að panta tíma. Tímapantanir eru í síma 432 1450.

Sveitarstjórn Dalabyggðar

DalabyggðFréttir

144. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 17. janúar 2017 og hefst kl. 18. Dagskrá Almenn mál 1. Gerð svæðisskipulags 2. Lausaganga búfjár – smalanir Almenn mál – umsagnir og vísanir 3. Framkvæmdasjóður aldraðra – Umsókn 2017 4. Lyngbrekka – stofnun lóðar um útihús 5. Deiliskipulag Ólafsdals – skipulagslýsing Fundargerðir til staðfestingar 6. Undirbúningshópur vegna byggingar íþróttamannvirkja …

Rúlluplast

DalabyggðFréttir

Rúlluplasti er safnað hjá bændum á um þriggja mánuða fresti. Söfnunardagar rúlluplasts árið 2017 eru 23.-26. janúar, 24.-26. apríl, 10.-14. júlí og 6.-9. nóvember. Söfnun er lögbýliseigendum að kostnaðarlausu, en sækja þarf um það til sveitarfélagsins fyrir 20. janúar. Þeir sem þegar eru skráðir þurfa ekki að skrá sig aftur, nema breyta eigi skráningu. Upplýsingar um skráningu og breytingar þar …