Fréttir.

27.06.2016

Tómas R., Óskar og Sigríður

Tómas R. Einarsson, Óskar Guðjónsson og Sigríður Thorlacius verða með tónleika í gyllta salnum á Laugum sunnudaginn 3. júlí kl. 21. Sveiflujass verður í aðalhlutverki á þessum tónleikum. Aðgangur er ókeypis, húsið opnar kl. 20 og tónleikarnir hefjast kl. 21.
Skoða betur
27.06.2016

Háls-, nef og eyrnalæknir

Þórir Bergmundsson, háls-, nef og eyrnalæknir verður með móttöku á heilsugæslustöðinni í Búðardal miðvikudaginn 6. júlí. Tímapantanir eru í síma 432 1450.
Skoða betur
24.06.2016

Skrifstofa Dalabyggðar – sumarlokun

Skrifstofa Dalabyggðar verður lokuð vikuna 4. – 9. júlí vegna sumarleyfa. Skrifstofa Dalabyggðar er opin alla virka daga kl. 10-14. Símatímar eru kl. 9-13. Póstkassi er í anddyri stjórnsýsluhúss ef þarf að skila inn skjölum utan opnunartíma.
Skoða betur
22.06.2016

Jafnréttisáætlun Dalabyggðar

Ný jafnréttisáætlun Dalabyggðar var samþykkt á fundi félagsmálnefndar 2. júní 2016 og staðfest á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar 21. júní 2016. Jafnréttisáætlun Dalabyggðar
Skoða betur
20.06.2016

Forsetakosningar 25. júní 2016

Kjörfundur vegna forsetakosninga verður laugardaginn 25. júní 2016 kl. 10-20 á Héraðsbókasafni Dalasýslu, Miðbraut 11 í Búðardal. Athygli kjósenda er vakin á skyldu til að sýna persónuskilríki ef kjörstjórn óskar þess. Kjörskrá Kjörskrá fyrir Dalabyggð vegna forsetakosninga 25. júní 2016 liggur frammi á skrifstofu Dalabyggðar 15. júní – 25. júní, alla virka daga kl. 10 – 14. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
Skoða betur
16.06.2016

Hestaþing Glaðs 18. júní

Þátttaka í hestaþingi Glaðs er í minna lagi og þess vegna hefur verið ákveðið að keyra allt mótið á einum degi. Mótið hefst með forkeppni kl. 10:00 eins og áður hafði verið auglýst en öll forkeppnin verður kláruð með bara stuttum hléum. Að lokinni forkeppni í öllum greinum (í áður auglýstri röð) verður svo gert gott hlé til kl. 18:30
Skoða betur
16.06.2016

Sauðafellshlaupið 2016

Laugardaginn 18. júní kl. 12 verður þriðja Sauðafellshlaupið. Hlaupið hefst og endar við brúsapallinn á Erpsstöðum. Hlaupið er eftir þjóðvegi 60 að Fellsenda og upp veg 585. Í Fellsendabrekkunni er stefnan tekin upp á Sauðafellið, þvert fellið niður að bænum Sauðafelli. Þá er komið á þjóðveg 60 að nýju og hringnum lokað er komið er að Erpsstöðum á ný. Hlaupaleiðin
Skoða betur
16.06.2016

138. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar

138. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 21. júní 2016 og hefst kl. 20:00. Dagskrá Almenn mál 1. Kjör oddvita og varaoddvita til eins árs skv. II. kafla Samþykktar um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar nr. 926/2013 2. Kosning aðal- og varamanna í byggðarráð til eins árs skv. V. kafla 3. Kosning í nefndir,ráð og stjórnir skv. VI.kafla 4.
Skoða betur
14.06.2016

Héraðsbókasafn – sumarleyfi

Vegna sumarleyfa verður Héraðsbókasafn Dalasýslu lokað 20. júní til 1. júlí. Þá verður bókasafnið lokað af sömu ástæðum 25. júlí til 15. ágúst.
Skoða betur
13.06.2016

Kjörskrá

Kjörskrá fyrir Dalabyggð vegna forsetakosninga 25. júní 2016 liggur frammi á skrifstofu Dalabyggðar 15. júní – 25. júní (kjördags) alla virka daga kl. 10 – 14. Kosningavefur innanríkisráðuneytisins
Skoða betur
12.06.2016

Dagskrá 17. júní

Hátíðahöld verða í Búðardal 17. júní. Safnast verður saman við Silfurtún kl. 14. Börn fá fána og blöðrur. Frá Silfurtúni verður síðan skrúðganga að Dalabúð og þar verður flutt hátíðarávarp og fjallkonan stígur á stokk.
Skoða betur
11.06.2016

Leikjanámskeið fyrir börn

Þriggja vikna leikjanámskeið verður haldið fyrir börn fædd árin 2006-2009 dagana 20. júní – 7. júlí, kl. 13-16. Námskeiðsgjald verður 10.000 kr. Leiðbeinandi verður Gunnur Rós Grettisdóttir. Skráningar skulu berast til Svönu í síma 779 1324 eða netfangið udn@udn.is.
Skoða betur
Fréttir.