Fréttir.

10.08.2016

Skólaakstur

Ein akstursleið er laus til umsóknar nú þegar, það er Haukadalur – Auðarskóli. Um er að ræða akstur fjögurra barna frá þremur bæjum. Um skólaakstur í Dalabyggð gilda reglur um skólaakstur. Greiðslur eru samkvæmt taxta Dalabyggðar. Áhugasamir sendi skriflega umsókn á skrifstofu Dalabyggðar fyrir 19. ágúst.
Skoða betur
10.08.2016

Fjártölur vegna fjallskila

Byggðarráð samþykkir að sauðfjáreigendum verði gefinn kostur á að leiðrétta opinberar hausttölur miðað við afföll vetrarins, áður en fjallskil verða lögð á. Sauðfjáreigendur skulu hafa samband við fulltrúa í sinni fjallskilanefnd og tilkynna breytingar. Frestur til að skila inn breytingum er til 25. ágúst. Að öðrum kosti verða hausttölur 2015 notaðar við ákvörðun fjallskila.
Skoða betur
09.08.2016

Rafmagnstruflanir

Vegna vinnu Landsnets á flutningskerfi sínu, má búast við rafmagnstruflunum í Dalabyggð og Skógarströnd. Þriðjudaginn 9. ágúst 2016 frá kl. 20 til miðvikudagsins 10. ágúst kl. 6. Og miðvikudaginn 10. ágúst 2016 frá kl. 20 til fimmtudagsins 11. ágúst kl. 6. Rarik biðst velvirðingar á þeirri röskun sem þessar rafmagnstruflanir kunna að hafa í för með sér fyrir notendur. Bilanasími
Skoða betur
08.08.2016

Auðarskóli – stuðningsfulltrúi

Stuðningsfulltrúa vantar við Auðarskóla sem er jákvæður, skapandi og vill vera virkur hluti liðsheildar. Hæfniskröfur eru áhugi á skólastarfi, góð samskiptahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í störfum. Allar umsóknir verða teknar til skoðunar og þeim svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningum SDS. Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst. Nánari upplýsingar veitir Hlöðver Ingi Gunnarsson skólastjóri í síma 430 4700. Umsóknir ásamt
Skoða betur
08.08.2016

Heyrnar- og talmeinastöð Íslands

Móttaka heyrnarfræðinga Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands verður föstudaginn 19. ágúst kl. 9-12 við heilsugæslustöðina í Búðardal. Boðið veður upp á heyrnarmælingar, ráðgjöf og aðstoð með heyrnartæki og stillingar. Nánari upplýsingar og tímapantanir eru í síma 581 3855
Skoða betur
03.08.2016

Ólafsdalshátíð laugardaginn 6. ágúst

Árleg Ólafsdalshátíð verður haldin laugardaginn 6. ágúst. Aðgangur er ókeypis og fjölbreytt dagskrá í boði. Hátíðardagskrá, Ómar Ragnarsson, Lína langsokkur og margt fleira. Kl. 11:00-12:20 Ferð með nýuppgerðu rútunni Soffíu II (Bedford árgerð 1940) í kringum Gilsfjörð. Leiðsögumaður: Sveinn Ragnarsson á Svarfhóli í Reykhólasveit. Mæting kl. 10.45. Kl. 11:00. Sala á miðum í Ólafsdalshappdrættinu hefst. 1. vinningur: flugmiðar fyrir tvo
Skoða betur
19.07.2016

Héraðsbókasafn – sumarleyfi

Héraðsbókasafn Dalasýslu verður lokað dagana 25. júlí til 15. ágúst vegna sumarleyfa.
Skoða betur
16.07.2016

Ólafsdalur sumarið 2016

Opið er í Ólafsdal alla daga kl. 12-17 fram til 14. ágúst. Kaffi, vöfflur, Erpsstaðaís o.fl. í boði. Staðarhaldarar eru þeir sömu fyrir Ólafsdalsfélagið og í fyrra, það er Elfa Stefánsdóttir og Haraldur Baldursson. Hafa má samband í síma 821 9931 og á netfanginu elfa@hbt.is Málverkasýning Guðrúnar Tryggvadóttur „Dalablóð“ opnar laugardaginn 23. júlí kl. 14 eins og áður hefur komið
Skoða betur
13.07.2016

Dalablóð – Málverkasýning í Ólafsdal

Guðrún Tryggvadóttir verður með málverkasýningu í Ólafsdal 23. júlí – 14. ágúst. Á sýningunni „Dalablóð“ fjallar Guðrún um formæður sínar í beinan kvenlegg, þær sem fæddust og bjuggu í Dalasýslu og hinar sem fluttust suður. Samtals ellefu kynslóðir. Markmið Guðrúnar er að tengjast formæðrum sínum, endurskapa þær með því að mála þær og gefa þeim þannig möguleika á að hittast
Skoða betur
13.07.2016

Náttúrubarnaskólinn í Sævangi

Náttúrubarnaskólinn stendur fyrir margvíslegum skemmtilegum viðburðum á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum í sumar. Námskeiðum fyrir náttúrubörn á öllum aldri, kvöldgöngum, fuglafjöri, spurningakeppnum, sagnaskemmtunum og mörgu fleira. Á svæðinu í kringum Sævang er fuglalífið ótrúlega fjölbreytt og fuglarnir orðnir vanir mannaferðum. Hægt er að klappa æðarkollunni Kollfríði þar sem hún liggur á hreiðri sínu. Teistur verpa í manngerða kassa þar
Skoða betur
07.07.2016

Auðarskóli – grunnskólakennari

Vegna óvæntra forfalla vantar grunnskólakennara við Auðarskóla fyrir næsta starfsár. Leiðað er að einstaklingi sem er jákvæður, skapandi og vill vera virkur hluti liðsheildar. Menntun og hæfniskröfur Grunnskólakennaramenntun Áhugi á kennslu og skólastarfi Góð samskiptahæfni Frumkvæði og sjálfstæði í störfum Allar umsóknir verða teknar til skoðunar og þeim svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands. Umsóknarfrestur er til og með
Skoða betur
04.07.2016

Bæjarhátíð í Búðardal

Bæjarhátíð verður í Búðardal frá föstudeginum 8. júlí til sunnudagsins 10. júlí. Verður þar á dagskrá sambland af fyrri liðum og nýjungar. Skreytingar Í tengslum við bæjarhátíð 8.-10. júlí eru bæjarbúar hvattir til að skreyta bæinn hátt og lágt og mynda þannig skemmtilega stemningu. Litaþemað verður milli gatna líkt og áður og skiptingin verður við lækinn í Búðardal. Blátt og
Skoða betur
Fréttir.