11.06.2016
Flugdrekasmiðja
Föstudaginn 24. júní kl. 10– 16 verður flugdrekasmiðja fyrir grunnskólabörn á yngsta stigi Auðarskóla. Arite Fricke iðnhönnuður leiðbeinir börnunum. Börnin hanna og smíða sína eigin flugdreka og spreyta sig á að láta þá fljúga í Víkinni við Ægisbraut í lok dags. Uppbyggingarsjóður Vesturlands styrkir verkefnið og er þátttaka ókeypis. Skráning er hjá Völu í síma 845 2477 og á info@dalir.is
Skoða betur