Fréttir.

02.11.2018

Fyrsta tillaga að fjárhagsáætlun 2019-2022

Á fundi sveitarstjórnar 1. nóvember var lögð fram fyrsta tillaga að fjárhagsáætlun fyrir árin 2019 til 2022. Afgreiðsla sveitarstjórnar var eftirfarandi:  „Sveitarstjórn samþykkir að vísa tillögu að fjárhagsáætlun til annarrar umræðu á fundi sveitarstjórnar 22. nóvember. Á milli umræðna er tillögunni vísað til umræðu í nefndum og byggðarráði. Byggðarráði er falið að gera tillögur að breytingum á áætlun þannig að
Skoða betur
30.10.2018

Gögn er varða sölu Lauga

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar 13. september var samþykkt að gögn sem varða sölu Lauga verði birt með fundargerðum svo fólk geti kynnt sér málið. Hefur það tekið nokkurn tíma að finna öll gögn er tengjast málinu og ganga frá þeim til birtingar á heimasíðu Dalabyggðar. Skjölin hafa nú verið birt á heimasíðu Dalabyggðar og eru þau að finna undir stjórnsýslu,
Skoða betur
30.10.2018

Sveitarstjórn Dalabyggðar 167. fundur

167. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 1. nóvember 2018 og hefst kl. 16. Dagskrá Almenn mál 1. Fjárhagsáætlun 2019 – 2022, fyrsta umræða Úr fundargerð 210. fundar byggðarráðs Dalabyggðar frá 29. október 2018. Fjárhagsáætlun 2019 – 2022 – 1810003. Afgreiðsla á tillögu að fjárhagsáætlun til umræðu í sveitarstjórn. Byggðarráð samþykkir að leggja fyrirliggjandi drög að tillögu til fjárhagsáætlunar fyrir fund
Skoða betur
25.10.2018

Haustfagnaður FSD

Árlegur haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu (FSD) hefst með lambhrútasýningu föstudaginn 26. október kl. 12 í fjárhúsunum á Kjarlaksvöllum í Saurbæ. Til sýningar í Dalahólfi eru skráðir 58 lambhrútar frá 15 bæjum; 32 hyrndir, 13 kollóttir og 13 mislitir. Laugardaginn 27. október kl. 10 er síðan lambhrútasýning á Skörðum í Miðdölum fyrir þann hluta sýslunnar sem er í Vesturlandshólfi. Þar eru skráðir 22 hrútar
Skoða betur
22.10.2018

Sorphirðing miðvikudaginn 24. október.

Sorphirðing er vera átti á morgun, þriðjudaginn 23. október, frestast fram á miðvikudaginn 24. október.
Skoða betur
17.10.2018

Íslandsmeistarmótið í rúningi 2018

Ellefta Íslandsmeistaramótið í rúningi 2018 verður haldið á haustfagnaði FSD laugardaginn 27. október kl. 14 í reiðhöllinni í Búðardal. Skráningar þurfa að berast í síðasta lagi 25. október til Fjólu í síma 695 6576 eða á netfangið kringla@simnet.is. Tvær umferðir eru og er betri umferðin látin gilda. Þrír efstu keppa síðan til úrslita. Úrslit og verðlaunaafhending verða að lokinni keppni.
Skoða betur
16.10.2018

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 166. fundur

166. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 18. október 2018 og hefst kl. 16. Í upphafi funda verður fundargerð sveitarstjórnar frá 13. september 2018 lögð fram til afgreiðslu.   Dagskrá Almenn mál 1. Fjallskil 2018 Kynnt á fundi Sveitarstjórnar Dalabyggðar 13.10.2018, lagt fram til afgreiðslu. 2. Fjárhagsáætlun 2018 – Viðauki 3 Úr fundargerð 208. fundar Byggðaráðs Dalabyggðar 10.10.2018. Fjárhagsáætlun 2018
Skoða betur
12.10.2018

Kór Glerárkirkju

Kór Glerárkirkju heldur tónleika í Hjarðarholtskirkju laugardaginn 13. október kl. 13. Fjölbreytt efnisskrá. Miðaverð kr. 1.500. Kór Glerárkirkju í Hjarðarholtskirkju – fb
Skoða betur
09.10.2018

Skrifstofa Dalabyggðar

Opnunartími skrifstofu Dalabyggðar verður kl. 10-12 föstudaginn 12. október. Þ.e. lokað frá og með kl. 12.
Skoða betur
09.10.2018

Haustfagnaður FSD 2018

Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu heldur árlegan haustfagnað sinn helgina 26.-28. október. Um er að ræða einn stærsta viðburð sem Dalirnir bjóða upp á og inniheldur meðal annars sviðaveislu, hagyrðinga, hrútasýningar, rúningskeppni, markað, grillveislu, dansleiki og margt fleira skemmtilegt. Einstakir viðburðir og heildardagskrá verður kynnt betur þegar nær dregur.
Skoða betur
08.10.2018

Íslandsmeistaramótið í rúningi 2018

Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu stendur fyrir Íslandsmeistarmótinu í rúningi laugardaginn 27. október kl. 14 í reiðhöllinni, Búðardal. Skráningar þurfa að berast í síðasta lagi fimmtudaginn 25. október til Fjólu í síma 695 6576 eða á netfangið kringla@simnet.is. Rúningsmenn af báðum kynjum og alls staðar af landinu eru hvattir til að mæta og taka þátt í keppninni. Vegleg verðlaun í boði
Skoða betur
08.10.2018

Auðarskóli – frístundaleiðbeinandi

Auðarskóli leitar eftir starfsmanni í stöðu frístundaleiðbeinanda við Auðarskóla frá og með 8. október 2018. Um er að ræða 20% stöðu. Umsóknarfrestur er til 12. október 2018. Helstu verkefni eru starf með börnum í frístund. Unnið er samkvæmt starfslýsingu frístundaleiðbeinanda. Hæfniskröfur eru færni í samskiptum, frumkvæði í starfi, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð og stundvísi. Upplýsingar um starfið veitir Hlöðver Ingi
Skoða betur
Fréttir.