28.08.2018
UDN varð 100 ára 24. maí síðastliðinn og verður haldið upp á afmælið í Dalabúð laugardaginn 1. september kl 14. Verður boðið upp á veitingar og margt verður til sýnis eins og búningar, ljósmyndir frá mótum, gamlir bikarar og hoppukastala fyrir börnin ef veður leyfir. Mikið af óeigingjörnu starfi liggur á bakvið 100 ára starfsemi UDN og aðildarfélaganna. Félagar eru
23.08.2018
Rafmagn í Saurbæ og á Skarðsströnd
Rafmagnslaust verður í Saurbæ og á Skarðsströnd í dag, fimmtudaginn 23. ágúst, frá kl 13 í um 15 mínútur og aftur um 17 í um 15 mínútur vegna tenginga á háspennustreng. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar. Nánari upplýsingar veitir svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390.
19.08.2018
Gríptu boltann er átaksverkefni RML og Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Fundur um verkefnið verður haldinn í Dalabúð föstudaginn 24. ágúst kl. 13-15. Forsvarsaðilar Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, í samstarfi við RML, hafa ákveðið að hrinda af stað verkefni sem hefur það að markmiði að hvetja til nýsköpunarstarfs í sveitum. Leitast verður við að miðla þekkingu og reynslu þeirra sem þegar hafa farið af stað
15.08.2018
Íslandsmeistarmótið í hrútadómum
Íslandsmeistaramótið í hrútadómum verður haldið sunnudaginn 19. ágúst kl. 14 í Sævangi við Steingrímsfjörð. Keppt er í flokki þaulreyndra hrútadómara og flokki óvanra og hræddra hrútaþuklara. Að venju verður kjötsúpa á boðstólum og kaffihlaðborð allan liðlangan daginn. Einnig er stórskemmtilegt happdrætti og eru líflömb í vinning. Kostar miðinn 500 kr. og geta þeir sem komast ekki á staðinn keypt sér miða
14.08.2018
Sögurölt – fornleifarölt í Sandvík
Sögurölt og fornleifaganga um Sandvík verður á dagskránni föstudaginn 17. ágúst frá 18:00-20:00. Bergsveinn Birgisson fræðimaður og rithöfundar og fornleifafræðingar sem eru að störfum í Sandvík munu þar segja frá rannsókninni sem er mjög spennandi því líklegt er að landnámsbær hafi verið þarna í Sandvíkinni, en engar ritaðar heimildir benda til þess. Mæting er við Bakkagerði, neðan við Bæ á
11.08.2018
Breyting á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 12. júlí 2018 að framlengja auglýsta tillögu að breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 í samræmi við 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillögur að breytingum á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 varðandi íbúðarsvæði í Búðardal, stækkun verslunar- og þjónustusvæðis í Búðardal og frístundasvæði í landi Hlíðar í Hörðudal. Tillögurnar liggja frammi á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, Búðardal
08.08.2018
Hátíðarmessa í Hjarðarholtskirkju
Í tilefni 90 ára afmælis hestamannafélagsins Glaðs á þessu ári verður haldin sérstök hátíðarmessa í Hjarðarholti sunnudaginn 19. ágúst kl. 14. Hestamenn munu fara ríðandi til messu úr hesthúsahverfinu í Búðardal. Allir sem geta eru hvattir til að vera í félagsbúningi Glaðs þó það sé alls ekki skilyrði. Að messu lokinni verður kaffi í safnaðarheimilinu. Bændur í Hjarðarholti ætla góðfúslega að
08.08.2018
Guðrún J. Guðmundsdóttir augnlæknir verður með móttöku á heilsugæslustöðinni á Reykhólum fimmtudaginn 16. ágúst og í Búðardal föstudaginn 17. ágúst. Tímapantanir eru í síma 432 1450.
07.08.2018
Sveitarstjórn Dalabyggðar 164. fundur
164. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal fimmtudaginn 9. ágúst 2018 og hefst kl. 16. Dagskrá Almenn mál – umsagnir og vísanir 1. Ráðning sveitarstjóra 2. Kosning í nefndir skv. A-hluta 48 gr. samþykkta Dalabyggðar 3. Kosning í verkefnabundnar nefndir skv. C-hluta samþykkta Dalabyggðar 4. Stofngjald ljósleiðara – eignir Dalabyggðar 5. Lántaka vegna framkvæmda Dalaveitna ehf. 6. Íþróttamannvirki
04.08.2018
Sögurölt um Fagradalsfjöru
Fimmtudagskvöldið 9. ágúst kl. 19:30 verður rölt um Fagradalsfjöru á Skarðsströnd og í Saurbæ. Þar verða sagðar sögur og lífið í fjörunni skoðað með dyggri aðstoð bænda í dalnum fagra. Í Fagradalsfjöru er margt að skoða, söl, skeljar, æðarfugl, naust, þang, máfa, krækling, sauðfé, kuml, marhálm, skarfa, seli, dys, hrúðurkarla, haferni, orrustuvelli og svo ótalmargt annað. Sannkallaður ævintýraheimur og aldrei
04.08.2018
Árleg Ólafsdalshátíð verður haldin laugardaginn 11. ágúst. Ókeypis aðgangur er á hátíðina en gestir hvattir til að kaupa miða í Ólafsdalshappdrættinu. Dagskrá Gönguferð að víkingaaldarskálanum í Ólafsdal og öðrum minjum. Leiðsögumaður: Birna Lárusdóttir fornleifafræðingur. Mæting er kl. 10:45 og gangan hefst kl. 11. Sala á miðum í Ólafsdalshappdrættinu hefst kl.12:00. Miðaverð er 500 kr. Ólafsdalsmarkaður og sýningar í skólahúsinu hefjast kl. 12. Meðal
30.07.2018
Héraðsbókasafn Dalasýslu verður opið í ágúst á fimmtudögum kl. 13-18.