Gjöf til Héraðsbókasafns Dalasýslu

DalabyggðFréttir

Kvenfélagið Fjóla kom færandi hendi á Héraðsbókasafnið í gær og afhenti Hugrúnu Hjartardóttur bókaverði gjafabréf uppá 150.000 kr til kaupa á húsgögnum fyrir safnið.

Tómstundabæklingur vor 2015

DalabyggðFréttir

Tómstundabæklingur UDN og Dalabyggðar fyrir vorið 2015 er kominn út. Hann er m.a. að finna hér á heimasíðu Dalabyggðar.

Smalinn og skemmtitölt

DalabyggðFréttir

Hestamannafélagið Glaður verður með smalakeppni föstudagskvöldið 6. febrúar kl. 19:30 í Nesoddahöllinni. Að lokinni keppni í smalanum verður keppt í skemmtitölti. Upplýsingar um fyrirkomulag og skráningu er á heimasíðu Glaðs. Hestamannafélagið Glaður

Rúlluplast

DalabyggðFréttir

Söfnun á rúlluplasti er vera átti nú í vikunni (miðvikudag og fimmtudag) frestast um nokkra daga. Nýjar dagsetningar verða auglýstar hér á vef Dalabyggðar.

Nýsköpunarverðlaun í opinberri þjónustu og stjórnsýslu

DalabyggðFréttir

Geðheilsustöðin í Breiðholti hlaut nýsköpunarverðlaunin 2015 í opinberri þjónustu og stjórnsýslu, sem afhent voru á ráðstefnu á Grand hótel sl. föstudag, 23. janúar. Verðlaunin voru afhent í fjórða sinn og að þessu sinni voru um 50 verkefni tilnefnd. Verkefni velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sem bar sigur úr býtum nefnist „Geðheilsustöðin í Breiðholti“. Með Geðheilsustöðinni er ætlunin að veita fullorðnum einstaklingum sem greinst …

Silfurtún – heitur matur

DalabyggðFréttir

Eldri borgarar í Dalabyggð eiga þess kost að kaupa heitan mat í hádeginu á Silfurtúni. Hægt er að velja um að borða í matsal með íbúum eða að sækja matinn og taka með sér heim í bökkum. Hægt er að skrá sig í fæði ákveðna daga vikunnar. Nánari upplýsingar og skráning er hjá Eyþóri eða Gróu í síma 434 1218, …

Rúlluplast 4.-5. febrúar

DalabyggðFréttir

Rúlluplasti verður safnað í Dalabyggð 4.-5. febrúar, 15.-16. apríl, 24.-25. júní og 18.-19. nóvember. Plastið skal haft á aðgengilegum stað og snyrtilega frágengið fyrir sorpverktaka. Mikilvægt er að baggabönd og net séu sett sér í glæra plastpoka og vel aðgreinanleg frá rúlluplasti. Óheimilt er að setja rúlluplast í sorpgáma á grenndarstöðvum sveitarfélagsins. Opin brennsla úrgangs er óheimil þ.m.t. rúlluplasts skv. …

Félagsvist í Árbliki

DalabyggðFréttir

Kvenfélagið Fjóla heldur þriggja kvölda spilakvöld í Árbliki. Spilað verður föstudaginn 30. janúar kl. 20, föstudaginn 20. febrúar kl. 20 og föstudaginn 13. mars kl. 20. Aðgangseyrir er 800 kr og frítt fyrir 14 ára og yngri. Kaffiveitingar að lokinni spilamennsku.

Leifsbúð lokuð

DalabyggðFréttir

Upplýsingamiðstöðin í Leifsbúð verður lokuð föstudaginn 30. janúar vegna jarðarfarar.

Landsskipulagsstefna 2015-2026

DalabyggðFréttir

Skipulagsstofnun hefur auglýst tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026. Í tillögunni er sett fram stefna um: skipulag á miðhálendi Íslands, skipulag í dreifbýli, búsetumynstur og dreifingu byggðar og skipulag á haf- og strandsvæðum. Tillaga að Landsskipulagsstefnu 2015-2026, ásamt fylgiskjali, Skipulagsmál á Íslandi 2014 – lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir, er aðgengileg hér á vefnum og á vef Skipulagsstofnunar, www.skipulagsstofnun.is. Gögnin liggja jafnframt frammi …