Fréttir.

29.01.2014

Þorrablót Suðurdala

41. þorrablót Suðurdala verður haldið í Árbliki laugardaginn 8. febrúar. Húsið opnar kl. 20 og borðhald hefst kl. 20:30. Matur er framreiddur af Höfðakaffi og hljómsveitin Þórunn og Halli sjá um dansleikinn. Miðapantanir þurfa að berast Finnboga (sími 897 9603), Bjarneyju (sími 434 1359 / 846 1952) eða Línu (sími 434 1654 / 690 1654) eigi síðar en mánudaginn 3.
Skoða betur
24.01.2014

Vorboðinn

Söngfélagið Vorboðinn er að hefja nýtt starfsár og því góður tími til byrja í kórnum. Söngfélagið Vorboðinn var formlega stofnað í janúar 1948 og hefur starfað síðan með smávægilegum hléum. Kórinn hefur sungið við ýmis tækifæri, en meðal fastra liða eru jólatónleikar í Breiðabólstaðarkirkju á Skógarströnd. Nýir söngglaðir félagar eru velkomnir í félagið. Áhugasamir hafi samband við Jófríði Önnu í
Skoða betur
24.01.2014

Rúlluplast

Söfnun á rúlluplasti í Dalabyggð verður mánudaginn 27. janúar og þriðjudaginn 28. janúar. Plastið skal haft á aðgengilegum stað og snyrtilega frágengið fyrir sorpverktaka. Baggabönd og net skal setja sér í glæra plastpoka. Óheimilt er að setja rúlluplast og net í sorpgáma á grenndarstöðvum sveitarfélagsins. Opin brennsla úrgangs er óheimil þ.m.t. rúlluplasts skv. lögum nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs og
Skoða betur
24.01.2014

Félagsvist í Árbliki

Kvenfélagið Fjóla heldur sitt fyrsta spilakvöld vetrarins föstudaginn 24. janúar kl. 20:30 í Árbliki. Aðgangseyrir er 800 kr og frítt fyrir börn 14 ára og yngri. Kaffiveitingar eru að lokinni spilamennsku.
Skoða betur
21.01.2014

Þorrablót Stjörnunnar

52. þorrablót Umf. Stjörnunnar verður haldið í Tjarnarlundi laugardaginn 1. febrúar 2014. Húsið opnar kl. 20 og borðhald hefst um það bil hálftíma síðar. Um matinn sér Sigurður Finnur frá Hólum. Hljómsveitin „Hlynur Ben. og gleðisprengjan“ mun sjá um að halda uppi fjörinu á dansgólfinu. Miðaverð er 6.000 kr. Miðapantanir þurfa að berast undirrituðum í síðasta lagi miðvikudaginn 29. janúar.
Skoða betur
20.01.2014

Leifsbúð – upplýsingamiðstöð – tjaldsvæði

Dalabyggð auglýsir eftir aðilum sem kunna að hafa áhuga á að taka að sér rekstur Leifsbúðar, upplýsingamiðstöðvar og/eða tjaldsvæðis í Búðardal. Áhugasamir hafi samband við sveitarstjóra á skrifstofu Dalabyggðar eða með tölvupósti á netfangið sveitarstjori @dalir.is
Skoða betur
20.01.2014

Héraðsbókasafn Dalasýslu – nýtt símanúmer

Nýtt símanúmer á bókasafninu er 430 4720. Héraðsbókasafnið er opið á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13-18.
Skoða betur
16.01.2014

Sveitarstjórnarfundur Dalabyggðar nr. 108

108. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 21. janúar 2014 og hefst kl. 18:00. Dagskrá Almenn mál 1. Tilnefning í faghóp SSV um menningarmál. 2. Framhaldsskóladeild. Fundargerðir til staðfestingar 3. Fræðslunefnd Dalabyggðar – 59. fundur 4. Byggðarráð Dalabyggðar – 136. fundur 4.1. Lögreglusamþykkt fyrir Dalabyggð 4.2. Samþykkt um búfjárhald 4.3. Samþykkt um fráveitur 4.4. Reglur um sérstakar
Skoða betur
15.01.2014

Skrifstofa Dalabyggðar

Skrifstofa Dalabyggðar verður lokuð föstudaginn 17. janúar vegna námskeiða.
Skoða betur
13.01.2014

Bingó í Árbliki

Kvenfélagið Fjóla heldur bingó í Árbliki föstudaginn 17. janúar kl. 20. Spjaldið kostar 500 kr og veglegir vinningar í boði.
Skoða betur
13.01.2014

Tómstundabæklingur – breytingar

Viðbætur og breytingar eru hjá skátunum frá útgefnum tómstundabæklingi. Eru þar m.a. breytingar á fundatímum, en skátastarfið hefst þriðjudaginn 14. janúar hjá dróttskátum og fimmtudaginn 16. janúar hjá fálka- og drekaskátum.
Skoða betur
13.01.2014

Húsaleigubætur 2014

Umsóknir um húsaleigubætur þurfa að berast skrifstofu Dalabyggðar fyrir 16. janúar 2014. Berist umsókn síðar verða húsaleigubætur ekki greiddar vegna þess mánuðar. Leigjendur geta átt rétt á húsaleigubótum skv. lögum nr. 138/1997 um húsaleigubætur. Upplýsingar um húsaleigubætur og umsóknarblöð eru á heimasíðu Dalabyggðar og á skrifstofu sveitarfélagsins. Með umsókn skulu fylgja · frumrit þinglýsts húsaleigusamnings · íbúavottorð frá þjóðskrá ·
Skoða betur
Fréttir.