Fréttir.

09.01.2014

Þorrablót Laxdælinga

Þorrablót Laxdælinga verður haldið í 60. sinn laugardaginn 25. janúar í Dalabúð. Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst kl. 20:00. Dalakot reiðir fram þorramatinn og Hlynur Ben. og hljómsveit halda uppi stuðinu.   Miðapantanir þurfa að berast Eddu í síma 434 1220/849 5983, Siggu í síma 434 1384 Soffíu í síma 487 1477 í síðasta lagi miðvikudaginn 22. janúar.
Skoða betur
07.01.2014

Tómstundabæklingur vor 2014

Tómstundabæklingur Dalabyggðar fyrir vorönn 2014 er komin út. Hægt er að ná í PDF útgáfu af honum hér á vef Dalabyggðar. Á vorönn 2014 verður m.a. í boði skátastarf, knattspyrna, glíma, björgunarsveitaræfingar, gönguhópur aldraðra, líkamsrækt og ýmislegt fleira. Ritstjóri og ábyrgðarmaður tómstundabæklings er Svala Svavarsdóttir. Leiðréttingum og viðbótum skal komið til ritstjóra og verða þær þá birtar hér á vefnum.
Skoða betur
02.01.2014

Nýjar gjaldskrár 2014

Álagningarhlutfall útsvars verður 14,52%. Álagningarhlutföll fasteignaskatts, lóðarleigu, holræsagjalds og vatnsskatts verði óbreytt frá yfirstandandi ári. Í fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árið 2014 hækka gjaldskrár almennt um 4,2% eða sem nemur hækkun vísitölu neysluverðs á árinu 2013. Gjaldskrár leikskóla, mötuneytis leik- og grunnskóla og tónlistarskóla hækka þó minna eða um 2,5%. Nýjar gjaldskrár Dalabyggðar er taka gildi 1. janúar 2014.
Skoða betur
28.12.2013

Jólaball Lions

Sunnudaginn 29. desember verður hið árlega jólaball Lionsklúbbs Búðardals haldið í Dalabúð og hefst kl. 15. Boðið verður uppá heitt súkkulaði með rjóma en eins og venjulega er fólk beðið um að koma með smákökur eða eitthvað annað gott til að hafa með. Jólasveinar mæta á svæðið og aldrei er að vita hvað þeir hafa í pokanum sínum.
Skoða betur
27.12.2013

Spilakvöld Nemendafélags Auðarskóla

Spilakvöld Nemendafélags Auðarskóla er vera átti í kvöld, föstudaginn 27. desember, er frestað vegna slæmrar veðurspár. Ný tímasetning verður auglýst síðar.
Skoða betur
27.12.2013

Skrifstofa Dalabyggðar

Skrifstofa Dalabyggðar verður lokuð á aðfangadag 24. desember, föstudaginn 27. desember og gamlársdag 31. desember.
Skoða betur
23.12.2013

Jólakveðja

...
Skoða betur
23.12.2013

Guðþjónustur í Dalabyggð yfir jól og áramót

Guðþjónustur verða Breiðabólstaðar-, Snókdals-, Kvennabrekku-, Hjarðarholts-, Hvamms-, Staðarfells-, Skarðs- og Staðarhólskirkjum yfir jól og áramót. Auk þess verða helgistundir á hjúkrunarheimilunum Fellsenda og Silfurtúni. Aðfangadagur 24. desember Fellsendi kl. 14 Hátíðarhelgistund verður á Hjúkrunarheimilinu Fellsenda í Miðdölum á aðfangadag jóla kl. 14. Sóknarprestur er sr. Anna Eiríksdóttir. Hjarðarholtskirkja kl. 18 Hátíðarguðsþjónusta verður í Hjarðarholtskirkju í Laxárdal kl. 18 á aðfangadag.
Skoða betur
23.12.2013

Fjárhagsáætlun Dalabyggðar 2014-2017

Fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2014-2017 var til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar 29. október sl. og til síðari umræðu 17. desember 2013. Álagningarhlutfall útsvars verði 14,52% samkvæmt breytingum á hámarksútsvari samþykktu af Alþingi til að tryggja aukið fjármagn vegna málaflokks fatlaðra sem sveitarfélög hafa tekið við. Gert er ráð fyrir að álagningarhlutföll fasteignaskatts, lóðarleigu, holræsagjalds og vatnsskatts verði óbreytt frá
Skoða betur
23.12.2013

Sýsluskrifstofa

Skrifstofa Sýslumannsins í Búðardal verður lokuð á aðfangadag 24. desember og gamlársdag 31. desember.
Skoða betur
15.12.2013

Sveitarstjórn Dalabyggðar 107. fundur

107. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 17. desember 2013 og hefst kl. 18. Dagskrá Almenn mál 1. Skátafélagið Stígandi – ósk um áframhaldandi samstarf 2. Endurnýjun rekstrarleyfa fyrir Dalabúð og Árblik 3. Laugagerðisskóli – eignarhlutur 4. Skipun í nefndir og ráð Almenn mál – umsagnir og vísanir 5. Skýrsla starfshóps um starfsemi SSV Fundargerðir til staðfestingar
Skoða betur
12.12.2013

Kynningardagur vegna tillögu á breytingu aðalskipulags Dalabyggðar 2004-2016

Kynningardagur fyrir íbúa og hagsmunaaðila vegna tillögu um breytingu á aðalskipulagi, ásamt uppdrætti og greinagerð, verður föstudaginn 13. desember kl. 10:00-12:00 á skrifstofu skipulagsfulltrúa í stjórnsýsluhúsinu, Miðbraut 11, Búðardal. Samanber 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingarnar eru eftirtaldar: · Afmörkun á svæði undir sorpurðun í landi Höskuldsstaða í Laxárdal. · Færsla vegar við Fellsenda í Miðdölum á rúmlega
Skoða betur
Fréttir.