09.12.2013Jólaball í Erpsstaðafjósinu Jólaball verður í Erpsstaðafjósinu miðvikudaginn 11. desember kl 17:30. Jólasveinninn mætir á staðinn í spjall og tekur nokkur spor. Ostasmakk og tilboð á jólaísnum. Allir eru velkomnir.Skoða betur
06.12.2013Hundahreinsun Hundahreinsun í Búðardal fer fram föstudaginn 13. desember nk. kl. 15-18 hjá dýralækni að Ægisbraut 19. Hundahreinsun í dreifbýli fer fram samhliða garnaveikibólusetningu sauðfjár. Hundaeigendur í dreifbýli sem ekki eiga sauðfé eru beðnir um láta Gísla Sverri Halldórsson dýrarlækni vita af þeim hundum svo hægt verði að meðhöndla þá í sömu ferð. Samkvæmt samþykkt um hundahald í Dalabyggð sætir hundahaldSkoða betur
04.12.2013Jólatré við Dalabúð Þriðjudaginn 10. desember kl. 17:30 verður kveikt á ljósum jólatrésins við Dalabúð, á sama stað og í fyrra. Búist er við komu jólasveina á svæðið. Að venju verður dansað og sungið. Boðið verður uppá heitt súkkulaði með rjóma og piparkökur í umsjón Vorboðans.Skoða betur
03.12.2013Aðalinngangur stjórnsýsluhússins Aðalinngangur stjórnsýsluhússins í Búðardal er lokaður vegna framkvæmda við hann. Á meðan getur þurft að ganga um inngang á vesturhlið, merktur lögreglu. Sýsluskrifstofa, lögregla og bókasafn eru til hægri á fyrstu hæð. Skrifstofa Dalabyggðar, félagsþjónusta og héraðsskjalasafn eru á á annarri hæð til vinstri. Gestir geta þá þurft að ganga gegnum sýsluskrifstofu til að komast á Héraðsbókasafnið.Skoða betur
29.11.2013Jólatónleikar Vorboðans Árlegir jólatónleikar söngfélagsins Vorboðans verða á aðventusamkomu í Breiðabólsstaðarkirkju á Skógarströnd, sunnudaginn 1. desember kl. 15. Kórstjóri Vorboðans og undirleikari er Þorkell Cýrusson og prestur er sr. Gunnar Eiríkur Hauksson í Stykkishólmi.Skoða betur
27.11.2013Jólaljósunum frestað Fyrirhugaðri jólatréssamkomu sem átti að vera við Dalabúð í dag 27. nóvember er frestað vegna veðurs. Nánar auglýst síðar.Skoða betur
26.11.2013Jólamarkaður í Króksfjarðarnesi Hinn árlegi jólamarkaður í Kaupfélaginu í Króksfjarðarnesi verður haldinn laugardaginn 30. nóvember og sunnudaginn 1. desember kl. 13 – 18 báða dagana. Á boðstólum verða handunnir munir, kerti, greni, bækur og margt fleira. Kvenfélagið Katla selur kaffi og kökur. Söluaðilar eru handverksfélagið ASSA, Krabbameinsfélag Breiðfirðinga, Vinafélag Barmahlíðar, Björgunarsveitin Heimamenn, Nemendafélag Reykhólaskóla, Kvenfélagið Katla og Lionsdeildin á Reykhólum. Á laugardaginn verðurSkoða betur
25.11.2013Jólatré við Dalabúð Miðvikudaginn 27. nóvember kl. 17:30 verður kveikt á ljósum jólatrésins við Dalabúð, sama stað og í fyrra. Búist er við komu jólasveina á svæðið. Að venju verður dansað og sungið. Boðið verður uppá heitt súkkulaði með rjóma og piparkökur.Skoða betur
23.11.2013Sæll dagur Það er ekki á hverjum degi sem Dalamenn gefa út ljóðabækur. Björn Stefán Guðmundsson frá Reynikeldu hefur nú gefið út sína fyrstu ljóðabók, Sæll dagur. Björn þarf ekki að kynna fyrir nokkrum Dalamanni, enda kennt mörgum Dalamanninum í farskóla á Skarðsströnd, í Búðardal, á Laugum og í forföllum í Tjarnarlundi. Fyrir áhugasama unnendur ljóða og Bjössa þá fæst bókin íSkoða betur
22.11.2013Sveitarstjórn Dalabyggðar – 106. fundur 106. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 26. nóvember 2013 og hefst kl. 18. Dagskrá Almenn mál 1.Ólafsdalsfélagið – skýrsla og umsókn fyrir árið 2014. 2.Áskorun Stéttarfélags Vesturlands – Stöndum saman gegn verðbólgu. Almenn mál – umsagnir og vísanir 3.Drög að verndaráætlun Breiðafjarðar. Fundargerðir til staðfestingar 4.Menningar- og ferðamálanefnd Dalabyggðar – 42 5.Menningar- og ferðamálanefnd DalabyggðarSkoða betur
20.11.2013Nemendafélag Auðarskóla safnar fyrir UNICEF Tveir drengir í unglingadeild Auðarskóla fengu þá hugmynd fyrir nokkrum vikum að safna fyrir UNICEF. Hefur nemendafélagið verið að skipuleggja það upp á síðkastið, en þar sem mikil þörf er á aðstoð er komið að því að skella sér af stað í söfnunina. Dalamenn og fleiri hafa verið mjög duglegir að styrkja félagsstarf Auðarskóla þegar þau safna fyrir skemmtunum ogSkoða betur
14.11.2013Sýsluskrifstofa lokuð Skrifstofa Sýslumannsins í Búðardal er lokuð föstudaginn 15. nóvember vegna námskeiða.Skoða betur