Líf og gróska í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar

DalabyggðFréttir

Vikan í setrinu Þriðjudaginn 18. sktóber sl. var fræðsluerindi í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar varðandi fyrstu skref í byggingaframkvæmdum. Kristján Ingi Arnarsson, umsjónarmaður framkvæmda hjá sveitarfélaginu fór yfir helstu atriði við upphaf framkvæmda; hverju eigi að skila inn, hvernig ferlið sé og önnur nytsamleg atriði. Sköpuðust skemmtilegar umræður í kringum erindið og þökkum við bæði Kristjáni og þátttakendum kærlega fyrir komuna. Föstudaginn …

Vörðum leiðina saman – Samráðsfundir Innviðaráðuneytis

DalabyggðFréttir

Innviðaráðuneytið , í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, býður íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman. Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkum ráðuneytisins. Meginviðfangsefni þeirra verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður nýsamþykkt byggðaáætlun kynnt. Öllum er velkomið að taka þátt í fjarfundunum, …

Uppbyggingarsjóður Vesturlands – opið fyrir umsóknir

DalabyggðFréttir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands. Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember 2022, úthlutun fer fram í janúar 2023. Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands. Í þessari úthlutun eru: …

Fundur: Ráðgjafarráð Nýsköpunarseturs Dalabyggðar – 21. október

DalabyggðFréttir

Næsti fundur í ráðgjafaráðinu verður haldinn föstudaginn 21. október 2022, klukkan 10.00. Fundurinn er haldinn í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar, Miðbraut 11. Á síðasta fundi voru kynntar áætlanir um fyrirhugað verkefni, sem kallast „Aðgengi skóga í Dalabyggð – Brekkuskógur og Laxaborg“ og styrkumsóknir til að fjármagna það. Einnig var fjallað um mögulega byggingu og rekstur á gróðurhúsum fyrir trjáplöntuframleiðslu í Dalabyggð. Þá …

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 226. fundur

DalabyggðFréttir

FUNDARBOÐ 226. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 18. október 2022 og hefst kl. 16:00 Dagskrá:   Almenn mál 1. 2208004 – Vegamál 2. 2210010 – Útfærsla tómstundastyrks haustið 2022 3. 2204014 – Afnot af svæði fyrir Brekkuskóg   Almenn mál – umsagnir og vísanir 4. 2209018 – Umsagnarbeiðni um tækifærisleyfi vegna dansleiks í Dalabúð 22. …

Bleiki dagurinn 2022 – föstudaginn 14. október

DalabyggðFréttir

Á Bleika deginum eru landsmenn hvattir  til að sýna lit og bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu. Bleiki dagurinn föstudaginn 14. október 2022! Föstudagurinn 14. október 2022 er Bleiki dagurinn. Hvernig væri nú að skipuleggja bleikt morgunkaffi í vinnunni eða heima fyrir? …

Engin takmörk á frístundastarfi barna og ungmenna í 1.-10. bekk Auðarskóla

DalabyggðFréttir

Á haustönn 2022 geta nemendur í 1. – 10. bekk Auðarskóla í Dalabyggð valið sér hvaða félagsstarf, íþróttir og tómstundir sem þau vilja, óháð framboði í heimabyggð. Á 299. fundi byggðarráðs Dalabyggðar var eftirfarandi samþykkt:  Byggðarráð Dalabyggðar samþykkir að breyta reglum um frístundastyrk hjá sveitarfélaginu á þann veg að hann nái einnig til félagsstarfs, námskeiða, íþrótta og annarra tómstunda sem …

Nýjar bækur á Héraðsbókasafni Dalasýslu

DalabyggðFréttir

Fjöldi nýrra bóka er komin á Héraðsbókasafn Dalasýslu og í þessu nýja úrvali má finna eitthvað fyrir alla. Þar má t.d. nefna skáldsöguna Tálsýn eftir Rannveigu Borg Sigurðardóttur, barna- og unglingabókina Furðufjall: Næturfrost eftir Gunnar Theodór Eggertsson og ritið Líkið er fundið – Sagnasamtíningur af Jökuldal sem Ragnar Ingi Aðalsteinsson tók saman. Við hvetjum íbúa endilega til að kíkja á …

MS Búðardal færir Nýsköpunarsetri gjöf

DalabyggðFréttir

MS Búðardal hefur fært Nýsköpunarsetri Dalabyggðar tvo prentara að gjöf. Um er að ræða annars vegar HP prentara og hins vegar Canon prentara sem einnig er skanni. Gjöfin er mikil búbót fyrir setrið og notendur þess, sem geta nú tengst prenturum í vinnurýminu. Dalabyggð þakkar MS Búðardal kærlega fyrir þessa rausnarlegu gjöf.  

Íbúar Dalabyggðar blása til sóknar

DalabyggðFréttir

Umsóknarfrestur í frumkvæðissjóð DalaAuðs rann út 30. september síðastliðinn. Er þetta fyrsta árið sem opnað er fyrir umsóknir í frumkvæðissjóðinn. DalaAuður er verkefni brothættra byggða í Dalabyggð og hóf göngu sína fyrr á árinu. Mikill meðbyr hefur verið með verkefninu síðan það hófst og íbúar sótt vel á fundi þess. Þar hafa þeir lagt vinnu í stefnumótun þar sem kallað …