28.07.2020
Víruspóstur í nafni byggingafulltrúa
Í morgun barst nokkrum aðilum tölvupóstur með heitinu „Skipulags- og byggingarfulltrúi“ frá netfanginu „byggingarfulltrui@dalir.is“ sem sendur var undir formerkjum þess að pósturinn kæmi frá Byggingarfulltrúanum í Búðardal þar sem skrá er deilt með viðtakendum. Við viljum biðja fólk um að hundsa þennan póst og alls ekki reyna að opna skránna, því síður skrá sig inn til að reyna opna hana.
Skoða betur









