Fréttir.

Aðalmynd fyrir “Ólafsdalshátíð 2020 aflýst”
10.08.2020

Ólafsdalshátíð 2020 aflýst

Vegna COVID fjöldatakmarkana hefur verið tekin sú ákvörðun að aflýsa þrettándu Ólafsdalshátíðinni sem halda átti 15. ágúst næstkomandi. Áfram verður þó opið fyrir gesti í Ólafsdal alla daga kl. 12.00-17.00 fram til 15. ágúst, en ekki 16. ágúst eins og áður var áformað.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Rotþróahreinsun”
04.08.2020

Rotþróahreinsun

Rotþróahreinsun mun hefjast í kringum 20. ágúst. Þá verður hreinsað í Hörðudal, Miðdölum og Haukadal.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Leiðbeiningar – Ef grunur er um smit”
29.07.2020

Leiðbeiningar – Ef grunur er um smit

...
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Víruspóstur í nafni byggingafulltrúa”
28.07.2020

Víruspóstur í nafni byggingafulltrúa

Í morgun barst nokkrum aðilum tölvupóstur með heitinu „Skipulags- og byggingarfulltrúi“ frá netfanginu „byggingarfulltrui@dalir.is“ sem sendur var undir formerkjum þess að pósturinn kæmi frá Byggingarfulltrúanum í Búðardal þar sem skrá er deilt með viðtakendum. Við viljum biðja fólk um að hundsa þennan póst og alls ekki reyna að opna skránna, því síður skrá sig inn til að reyna opna hana. 
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sögurölt um Mjósyndi”
27.07.2020

Sögurölt um Mjósyndi

Í fimmta sögurölti sumarsins verður gengið um Mjósyndi á Svínadal. Röltið er miðvikudaginn 29. júlí kl. 19:30 og hefst á bílastæði við Hrafnagil, sunnan við Mjósyndi. Við Mjósyndi eru þrjú gil, rétt, útsýni og fleira. Ekki er um langa vegalengd að ræða og megnið af henni þægileg. Auðvelt er að sleppa þeim hluta sem er grýttari. Sögurölt er samstarfsverkefni Byggðasafns
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Viðgerðir á Silfurtúni”
24.07.2020

Viðgerðir á Silfurtúni

Auglýst er eftir tilboðum í að skipta um þakklæðningu á norðurálmu Silfurtúns. Þeir sem óska eftir gögnunum skulu senda póst á dalir@dalir.is. Tilboðum skal skilað á skrifstofu Dalabyggðar, merkt „Verðkönnun: Silfurtún þak 2020“, fyrir kl. 12 þriðjudaginn 4. ágúst. Einnig má skila með því að senda tölvupóst á kristjan@dalir.is.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Útboð á sorphirðu”
23.07.2020

Útboð á sorphirðu

Fljótlega verða auglýst tvö útboð vegna sorphirðu. Annars vegar er um að ræða almenna sorphirðu þar sem miklar breytingar eru framundan. Hins vegar er um að ræða söfnun og flutning á dýrahræjum.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Framkvæmdir við fráveitu”
23.07.2020

Framkvæmdir við fráveitu

Nú eru hafnar framkvæmdir við fyrsta áfanga af þremur við fráveitu í Búðardal. Í þessum áfanga verður tengdar saman útrásir fráveitanna norðan og sunnan megin. Í öðrum áfanga verður lögð útrás og þriðji áfangi er hreinsistöð. Það er fyrirtækið Stafnafell ehf. sem sér um fyrsta áfangann. Á meðan á framkvæmdum stendur verður töluvert rask, sérstaklega þegar fara þarf í gegnum
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Tilboð í rekstur mötuneytis Silfurtúns”
23.07.2020

Tilboð í rekstur mötuneytis Silfurtúns

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Silfurtún óskar eftir tilboðum í rekstur á mötuneyti heimilisins. Á heimilinu eru 13 íbúar og á hverri vakt eru einn til sex starfsmenn. Hægt er að nálgast tilboðsgögn frá 29. júlí á skrifstofu Dalabyggðar og á dalir.is. Frestur til að skila tilboðum er til 15. ágúst 2020.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Laus störf: Störf á Silfurtúni”
22.07.2020

Laus störf: Störf á Silfurtúni

Á Silfurtúni eru 13 íbúar og starfsmenn eru um 10. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið verður í störfin frá 24. ágúst eða eftir samkomulagi. Upplýsingar um störfin veitir Haflína Ingibjörg Hafliðadóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri, netfangið er haflina@dalir.is. Umsóknarfrestur er til 4. ágúst. Umsóknir á að senda í tölvupósti á netfangið haflina@dalir.is. Sjúkraliði Laust er til umsóknar
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sögurölt við Þiðriksvallavatn”
22.07.2020

Sögurölt við Þiðriksvallavatn

Fimmtudagskvöldið 23. júlí kl. 19:30 verður farið í sögurölt við Þiðriksvallavatn, frá stíflunni ofan við Þverárvirkjun og eftir vegarslóða fram að eyðibýlinu Vatnshorni. Um er að ræða 2,5 km göngu hvora leið, samtals 5 km, svo þetta rölt er heldur lengra en venjan er. Frá ýmsu er að segja þarna í Þiðriksvalladalnum og búast má við fróðleik um búskap og
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sögurölt: Ásgarðsstapi – breyttur dagur”
15.07.2020

Sögurölt: Ásgarðsstapi – breyttur dagur

Sögurölti á Ásgarðsstapa hefur verið frestað til mánudagsins 20. júlí vegna veðurs, sjá uppfærða frétt hérna að neðan:   Í þriðja sögurölti sumarsins verður gengið á Ásgarðsstapa í Hvammssveit. Röltið verður mánudaginn 20.júlí kl. 19:30 og hefst við afleggjarann að Ásgarði. Í stapanum búa álfar og verður sagt frá samskiptum þeirra við okkur mannverurnar, auk þess sem Ásgarðsfeðgar segja frá
Skoða betur
Fréttir.