30.10.2020Sorplosun á mánudag í stað þriðjudags Venjulega ætti sorplosun að vera á þriðjudegi í Búðardal og Suðurdölum, en í stað þess verður hún í þetta skiptið á mánudaginn kemur þ.e. 2.nóvember.Skoða betur
28.10.2020Óskað eftir framboðum í ungmennaráð Dalabyggðar Fræðslunefnd Dalabyggðar óskar eftir framboðum í ungmennaráð sem verður skipað í nóvember. Í ungmennaráði geta orðið allir þeir sem eiga lögheimili í Dalabyggð og eru á aldrinum 14 – 20 ára. Hlutverk ungmennaráðs er m.a.: Að veita sveitarstjórn ráðgjöf um málefni ungs fólks í sveitarfélaginu. Að gæta hagsmuna ungs fólks, koma skoðunum þeirra og tillögum til skila. Að veita unguSkoða betur
27.10.2020Mögulegar rafmagnstruflanir á morgun Komið getur til rafmagnstruflana í Suðurdölum, Skógartrönd, Helgafellsveit og Stykkishólmi vegna skipulags viðhalds og endurnýjun búnaðar í aðveitustöð við Vogaskeið á morgun 28.10.2020 frá 08:30 til kl. 17:00. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK í síma 528 9390. Kort af svæði sem talið er vera um að ræða má sjá á www.rarik.is/rofSkoða betur
27.10.2020Sérstakir íþrótta- og tómstundastyrkir til tekjulágra heimila Í fjáraukalögum fyrir árið 2020, sbr. lög nr. 26/2020, nr. 36/2020, um afmarkaðar og tímabundnar ráðstafanir til að bregðast við áhrifum COVID-19 faraldursins, var samþykkt 600 m.kr. framlag til sveitarfélaga í því skyni að gera þeim kleift að veita styrki til tekjulágra heimila þannig að öll börn geti óháð efnahag stundað íþróttir og aðrar tómstundir. Nú er búið að gefaSkoða betur
27.10.2020Mótvægisaðgerðir stjórnvalda vegna COVID-19 Stjórnvöld hafa frá því í mars á þessu ári sett fram ýmsar mótvægisaðgerðir vegna heimsfaraldurs af völdum COVID-19. Markmið þeirra er m.a. að verja grunnstoðir samfélagsins, vernda þá hópa sem á þurfa að halda og veita viðspyrnu sem miðar að að því að styrkja fyrirtæki í landinu. Yfirlit yfir helstu úrræði stjórnvalda fyrir heimili, fyrirtæki og hagkerfið má finna áSkoða betur
27.10.2020Samið við Íslenska gámafélagið Á 196. fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar var ákveðið að taka hagstæðasta tilboði í útboði vegna sorphirðu í sveitarfélaginu. Það verður því Íslenska gámafélagið sem tekur við sorphirðunni á nýju ári og mun innleiða nýtt þriggja tunnu kerfi í sveitarfélaginu. Íbúar munu fá nánari kynningu á nýrri sorpflokkun þegar nær dregur. Sveitarstjórn hefur ákveðið, að tillögu umhverfis- og skipulagsnefndar, að kalla eftirSkoða betur
26.10.2020Ítrekun á mikilvægi grundvallarsmitgátar Þann 4. október síðast liðinn var lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnarlækni vegna sýkinga af völdum COVID-19 en frá 5. október hafa greinst yfir 1.000 smit innanlands. Í gær var Landspítalinn færður á neyðarstig vegna klasasmits sem kom upp á Landakoti og um þessar mundir eru nokkrir einstaklingar í sóttkví í Dalabyggð. Við viljum því ítreka mikilvægi grundvallarsmitgátarSkoða betur
23.10.2020Fjarkynning á Uppbyggingarsjóði og menningarverkefnum Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands og hægt er að sækja um styrki til menningarverkefna. Í tilefni þess stendur menningarfulltrúi Vesturlands hjá SSV fyrir fjarkynningu miðvikudaginn 28. október kl. 17:30 um Uppbyggingarsjóð og menningarverkefni, hvernig á að bera sig að og svarar spurningum þátttakenda á Facebook síðu SSV. Viðburðinn má finna með því að smella HÉR. Fjarkynningin Skoða betur
20.10.2020Fræðslufundur um framtíð Breiðafjarðar Tengill á Facebook-viðburð: Fræðslufundur um framtíð Breiðafjarðar Skoða betur
20.10.2020Uppbyggingarsjóður Vesturlands hefur opnað fyrir umsóknir Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands. Umsóknarfrestur er til og með 17.nóvember n.k. Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands. Styrkir sem veittir eru: Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar Verkefnastyrkir tilSkoða betur
20.10.2020Laust starf hjá heimaþjónustu Dalabyggðar Laust starf hjá heimaþjónustu Dalabyggðar. Um er að ræða þjónustu við tvö heimili og jafnvel einhverjar afleysingar. Umsóknarfrestur er til 31.okt.2020. Frekari upplýsingar gefur Sigríður í síma 839 1400 þri og fim 10 – 12 eða á netfanginu heima.tjonusta@dalir.isSkoða betur
15.10.2020Inflúensubólusetning Búðardal og Reykhólum Bólusetning gegn árlegri inflúensu er hafin á heilsugæslustöðvunum í Búðardal og á Reykhólum. Bóluefnið inniheldur vörn gegn inflúensu A(H1N1), A(H3N2) og tveimur stofnum af inflúensu B. Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar: Allir einstaklingar 60 ára og eldri. Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrumSkoða betur