Fréttir.

Aðalmynd fyrir “Nýsköpunardagur SSV 2020”
18.09.2020

Nýsköpunardagur SSV 2020

Nýsköpunardagur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) verður haldin í Nýsköpunarsetrinu Breiðinni að Bárugötu 8-10 á Akranesi föstudaginn 25. september n.k. Dagskrá hefst kl. 14:00. Að loknum styrkveitingum úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands og afhendingu nýsköpunarverðlauna SSV verður stutt kynning á starfsemi þess fyrirtækis sem hlýtur nýsköpunarverðlaunin. Þá verður einnig kynningu á því verkefni sem hlýtur hæsta styrk Uppbyggingarsjóðs að þessu sinni og
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Vegna fjölgun smita af völdum COVID-19”
17.09.2020

Vegna fjölgun smita af völdum COVID-19

Undanfarna daga hefur smitum innanlands fjölgað svo um munar en 16.september voru greind 19 ný smit vegna COVID-19 og þrjú virk smit á landamærum. Á upplýsingafundi almannavarna í dag voru gefnar út sterkar aðvaranir. Við hvetjum íbúa Dalabyggðar til að viðhafa áfram grundvallarsmitgát. Með því að halda lagi erum við ekki aðeins að vernda okkur sjálf, heldur einnig aðra í
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Hársnyrtir í Búðardal september og október”
17.09.2020

Hársnyrtir í Búðardal september og október

Hafdís Ösp Finnbogadóttir hársnyrtir, verður í Búðardal dagana 28. – 29. september og aftur 26. – 27. október n.k. Hafdís verður með aðstöðu þar sem Hárstofan hjá Helgu var að Miðbraut 5. Hægt er að panta tíma með því að senda SMS í síma 772-1542 eða í gegnum tölvupóst á osp.hafdis@gmail.com, munið að láta nafn fylgja með.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Hugmynda- og ábendingavefur vegna endurskoðunar aðalskipulags Dalabyggðar”
16.09.2020

Hugmynda- og ábendingavefur vegna endurskoðunar aðalskipulags Dalabyggðar

Hér að neðan má nálgast vefsíðu þar sem hægt er að koma á framfæri ábendingum og hugmyndum vegna endurskoðunar aðalskipulagsins. Við hvetjum íbúa Dalabyggðar til að koma á framfæri efni sem hægt er að nota við skipulagsvinnuna á meðan enn er tími til. Hugmynda- og ábendingavefur.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Ráðgjöf vegna umsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða”
16.09.2020

Ráðgjöf vegna umsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur auglýst eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2021. Opnað var fyrir umsóknir 8. september og er umsóknarfrestur til kl. 12 á hádegi 6. október. Framkvæmdasjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. Ráðgjafi á vegum SSV býður upp á ráðgjöf og aðstoð við gerð styrkumsókna til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða. Hægt er að
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Laust starf: Heimaþjónusta Dalabyggðar”
15.09.2020

Laust starf: Heimaþjónusta Dalabyggðar

Starfsmann vantar í heimaþjónustu Dalabyggðar. Um er að ræða aðstoð á þrem heimilum hálfsmánaðarlega, samtals um fjórar klukkustundir. Umsóknarfrestur er til 30.09.2020 Frekari upplýsingar gefur Sigríður í síma heimaþjónustunnar 839-1400 þriðjud.og fimmtud. Kl.10 -12 báða dagana.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Opið fyrir umsóknir í Matvælasjóð”
14.09.2020

Opið fyrir umsóknir í Matvælasjóð

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, opnaði í dag formlega fyrir umsóknir í nýjan Matvælasjóð. Umsóknarfrestur er til og með 21. september 2020 Frumvarp ráðherra um stofnun sjóðsins var samþykkt á Alþingi í apríl sl. og var alls 500 milljónum króna varið til stofnunar sjóðsins og verður þeim úthlutað á þessu ári. Hlutverk sjóðsins að styrkja þróun og nýsköpun við
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Tilboð í söfnun og flutning á dýrahræjum í Dalabyggð – Fyrirspurnir og svör”
14.09.2020

Tilboð í söfnun og flutning á dýrahræjum í Dalabyggð – Fyrirspurnir og svör

Vegna útboðs um söfnun og flutning dýrahræja í Dalabyggð koma hér svör við fyrirspurnum sem bárust skrifstofu Dalabyggðar. Skuldleysi vegna opinberra gjalda – Ekki er nauðsynlegt að sýna fram á skuldleysi vegna opinberra gjalda áður en boðið er í verkið. Verktaki þarf hinsvegar að geta sýnt fram á skuldleysi varðandi opinber gjöld ef ganga á til samninga við viðkomandi og
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Ekkert réttarkaffi við Fellsendarétt vegna COVID-19”
10.09.2020

Ekkert réttarkaffi við Fellsendarétt vegna COVID-19

Undanfarin ár hefur Kvenfélagið Fjóla í Suðurdölum verið með kaffi, kakó og meðlæti í réttarskúrnum við Fellsendarétt í fyrstu rétt. Vegna COVID-19 verður það ekki hægt í ár. – F.h. Kvenfélagsins Fjólu, Erna Hjaltadóttir, formaður.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sveitarstjórn Dalabyggðar – 195.fundur”
08.09.2020

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 195.fundur

FUNDARBOÐ 195. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 10. september 2020 og hefst kl. 16:00 Dagskrá: Almenn mál   1. 2005034 – Fjallskil 2020   2. 2005003 – Breytingar á verslun Samkaupa í Búðardal   3. 2008005 – Málefni Auðarskóla   4. 1912011 – Byggðasafn Dalamanna – Staðarfell   5. 1911028 – Undirbúningur íþróttamannvirkja í Dalabyggð  
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Lokað á skrifstofu sýslumanns vegna veikinda”
08.09.2020

Lokað á skrifstofu sýslumanns vegna veikinda

Í dag, 8.september er lokað á skrifstofu útibús sýslumanns í Búðardal vegna veikinda. Ef erindi þarfnast brýnna úrlausna má hafa samband á netfangið vesturland@syslumenn.is eða í síma 458-2300. Við bendum á að upplýsingar um þjónustu, gjaldtöku, eyðublöð og útgefin leyfi má finna á vefsíðunni www.syslumenn.is
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Rafmagnsbilun á Fellsstrandarlínu við Svínaskóg”
04.09.2020

Rafmagnsbilun á Fellsstrandarlínu við Svínaskóg

Rafmagnsbilun er á Fellsstrandarlínu við Svínaskóg. Unnið er að viðgerð og vonast er að rafmagn komi á eftir ca. 2 klst. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof
Skoða betur
Fréttir.