Skreytingar á bæjarhátíðinni Heim í Búðardal verða eins og verið hefur. Rauður og blár norðan megin í Búðardal og í öllu sveitarfélaginu þar í framhaldið og grænn og appelsínugulur í suðurhluta Búðardals og Suðurdölum. Nú er um að gera að finna upp á einhverju sniðugu og skemmtilegu, sem lífgar upp á Dalina í tilefni hátíðahaldanna.
Blómmóðir besta
Helga Kress, prófessor emeritus við Háskóla Íslands flytur erindið „Blómmóðir besta“ á Nýp á Skarðsströnd laugardaginn 14. júlí kl. 15. Konan í lífi og ljóði Jóns Thoroddsen: Kristín Ólína Thoroddsen, fædd Sívertsen (1833-1879); saga sögð í bréfum, að Jóni gengnum. Í erindi sínu tengir Helga kvenlýsingar í ljóðum og sögum Jóns Thoroddsen við konurnar í lífi hans. Helga hefur …
Sveitarstjórn Dalabyggðar – 163. fundur
163. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 12. júlí 2018 og hefst kl. 16:00. Dagskrá Almenn mál – umsagnir og vísanir 1. Sala eigna – Laugar í Sælingsdal 2. Fyrirspurn um leigulóð 3. Stofngjald ljósleiðara að Breiðabólsstað í Sökkólsdal 4. Íbúakosning, undirskriftalisti, kosningar 5. Ráðning sveitarstjóra 6. Hljóð- og myndupptökur á sveitarstjórnarfundum 7. Íbúaþing 2018 8. Skógræktaráform í Ólafsdal 137878 9. …
Sögurölt í Kumbaravog
Miðvikudaginn 11. júlí kl. 19 verður þriðja sögurölt Byggðasafns Dalamanna og Sauðfjárseturs á Ströndum í sumar. Upphafsstaður er við Klofning. Farið verður upp á Klofning að hringsjá sem þar er og notið útsýnisins. Spjallað verður m.a. um búsetu, strauma, siglingaleiðir og annað er kemur upp í hugann varðandi eyjarnar fyrir mynni Hvammsfjarðar. Þá verður rölt niður í Kumbaravog í landi …
Tónlist og ljóð á Laugum í Sælingsdal
Þriðjudagskvöldið 10. júlí kl. 20:30 verða tónleikar og ljóðaupplestur á Hótel Eddu í Sælingsdal. Íslenskt/þýskt tríó spilar latíntónlist og jazz, það skipa kontrabassaleikarinn og heimamaðurinn Tómas R. Einarsson, gítarleikarinn Ómar Guðjónsson og trommuleikarinn Tommy Baldu. Skáldið Kristín Svava Tómasdóttir les úr síðustu ljóðabók sinni, Stormviðvörun (2015), en hún kom út í enskri þýðingu í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári og …
Sýning á Nýp á Skarðsströnd
Í vetur hafa staðið yfir framkvæmdir að Nýp á Skarðsströnd. Í viðbyggingu við íbúðarhúsið, þar sem áður var fjós, fjárhús og hesthús hafa arkítektarnir í Studio Bua hannað gesta- og sýningarými. Sunnudaginn 8. júlí kl. 15-18 verður opnuð á Nýp sýning sem sýnir hönnun endurbyggingarinnar í teikningum, ljósmyndum og módelum, ásamt nokkrum eldri ljósmyndum. Verkefnið var framkvæmt af smiðum, iðnaðarmönnum …
Héraðsbókasafn – sumarlokun
Héraðsbókasafn Dalasýslu verður lokað frá og með 28. júní til og með 31. júlí vegna sumarleyfa.
Gildistaka svæðisskipulags
Sameiginleg áætlun Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar um byggðarþróun m.t.t. landbúnaðar, sjávarnytja og ferðaþjónustu, hefur tekið gildi. Skipulagsstofnun staðfesti svæðisskipulagsáætlunina þann 5. júní sl. í samræmi við skipulagslög og auglýsing um gildistökuna var birt í Stjórnartíðindum 19. júní sl. Í svæðisskipulaginu er sett fram framtíðarsýn fyrir sveitarfélögin þrjú sem lýsir þeim árangri sem þau vilja ná á næstu 15 árum. Einnig eru …
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands
Móttaka heyrnarfræðings Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands (HTÍ) verður við heilsugæslustöðina í Búðardal mánudaginn 16. júlí. Heyrnarmælingar, ráðgjöf um heyrnartæki, aðstoð og stilling. Bókanir eru í síma 581 3855. Heyrnar- og talmeinastöð Íslands
Sögurölt við Steingrímsfjörð
Farið verður í sögurölt við Steingrímsfjörð á Ströndum næstkomandi mánudag, þann 2. júlí kl. 19.30 og lagt af stað frá Húsavíkurkleif, rétt sunnan við bæinn Húsavík. Gangan er skipulögð í samstarfi Byggðasafns Dalamanna, Sauðfjárseturs á Ströndum, Rannsóknaseturs HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofu og Náttúrubarnaskólans. Söfnin hafa tekið höndum saman um vikulegt sögurölt í Dölum og á Ströndum í sumar í …