Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fund sínum þann 15. desember að auglýsa lýsingu á nýrri deiliskipulagstillögu skv. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Laugar í Sælingsdal er fornfrægur sögustaður sem hefur upp á að bjóða fjölbreytt náttúrufar og landslag til náttúruskoðunar og útivistar. Jarðhiti er nýttur á svæðinu til húshitunar og til heilsuræktar. Laugar eru um 50 ha að stærð …
Áramótabrennur
Árleg brenna í Búðardal verður á gamla fótboltavellinum. Kveikt verður í brennunni kl. 20:30. Brennan í Saurbænum verður að þessu sinni í landi Bjarnastaða í Staðarhólsdal. Kveikt verður í brennunni um miðnætti.
Byggðasafn Dalamanna – sögustundir
Sunnudaginn 27. desember verður næsta sögustund á safninu. Þá verða álfar og annað tengt áramótum á dagskrá. Allir eru velkomnir, aðgangseyrir er 500 kr og kaffi á könnunnni fyrir þá sem það vilja.
Gleðileg jól
Sveitarstjórn Dalabyggðar óskar íbúum Dalabyggðar gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Félagsvist í Tjarnarlundi
Ungmennafélagið Stjarnan stendur fyrir félagsvist í Tjarnarlundi laugardaginn 26. desember, annan í jólum, og hefst hún kl. 20. Aðgangseyrir 700 kr. Sjoppa verður á staðnum, en enginn posi.
Skólastjóri Auðarskóla
Staða skólastjóra við Auðarskóla í Búðardal er laus til umsóknar. Leitað er að einstaklingi sem er tilbúinn til að viðhalda og byggja upp öflugt skólasamfélag af metnaði og dugnaði með virðingu og ánægju að leiðarljósi. Markmið og verkefni • Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi, fjárhagsáætlunum og rekstri skólans • Fagleg forysta skólastofnunarinnar • Stuðla að framþróun skólastarfsins • Ráðningar …
Íþrótta- og tómstundafulltrúi UDN
Ungmennasamband Dalamanna og Norður Breiðfirðinga (UDN) auglýsir eftir íþrótta- og tómstundafulltrúa. Leitað er að öflugum einstaklingi sem er tilbúinn til að stýra metnaðarfullu og lifandi starfi. Starfshlutfall er 80% auk fastrar yfirvinnu. Helstu verkefni eru · framkvæmdastjórn UDN · að samþætta og efla íþrótta- og tómstundastarf í Dalabyggð og stuðla að samfellu í skóla, íþrótta- og félagsstarfi barna í sveitarfélaginu …
Messur um jól
Messað verður í flestum kirkjum í Dalabyggð um jólahátíðina, auk Fellsenda og Silfurtúni. Aðfangadagur 24. desember Jólastund á Hjúkrunarheimilinu Fellsenda kl. 14. Aftansöngur í Hjarðarholtskirkju í Laxárdal kl. 18. Jóladagur 25. desember Jólastund á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Silfurtúni kl. 13. Hátíðarguðþjónusta í Hvammi í Hvammssveit kl. 15. Hátíðarguðþjónusta á Staðarfelli á Fellsströnd kl. 17. Annar í jólum 26. desember Hátíðarguðþjónusta …
Skrifstofa Dalabyggðar
Skrifstofa Dalabyggðar verður lokuð á aðfangadag og gamlársdag.
Fjárhagsáætlun Dalabyggðar 2016-2019
Fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2016-2019 var samþykkt á fundi sveitarstjórnar 15. desember. Álagningarhlutfall útsvars á árinu 2016 verður jafnt lögbundnu hámarki eins og það er á hverjum tíma. Gert er ráð fyrir að lögbundið hámark verði 14,52% frá 1. janúar 2016 samkvæmt nýgerðu samkomulagi ríkis og sveitarfélaga til fjármögnunar þjónustu við fatlað fólk. Álagningarhlutfall fasteignaskatts og lóðarleiga verður óbreytt frá …