05.11.2018Sorphirðing miðvikudaginn 7. nóvember Sorphirðing er vera átti á morgun, þriðjudaginn 6. nóvember, frestast fram á miðvikudaginn 7. nóvember.Skoða betur
05.11.2018Íbúafundur Þriðjudaginn 6. nóvember næstkomandi verður haldinn íbúafundur í Dalabúð og hefst hann kl. 20. Á dagskrá fundarins er eitt mál, Laugar í Sælingsdal, staða og framtíð. Umræður og fyrirspurnir. Fundarstjóri verður Páll S. Brynjarsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Íbúar Dalabyggðar eru hvattir til að mæta. Sveitarstjórn DalabyggðarSkoða betur
02.11.2018Fyrsta tillaga að fjárhagsáætlun 2019-2022 Á fundi sveitarstjórnar 1. nóvember var lögð fram fyrsta tillaga að fjárhagsáætlun fyrir árin 2019 til 2022. Afgreiðsla sveitarstjórnar var eftirfarandi: „Sveitarstjórn samþykkir að vísa tillögu að fjárhagsáætlun til annarrar umræðu á fundi sveitarstjórnar 22. nóvember. Á milli umræðna er tillögunni vísað til umræðu í nefndum og byggðarráði. Byggðarráði er falið að gera tillögur að breytingum á áætlun þannig aðSkoða betur
30.10.2018Gögn er varða sölu Lauga Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar 13. september var samþykkt að gögn sem varða sölu Lauga verði birt með fundargerðum svo fólk geti kynnt sér málið. Hefur það tekið nokkurn tíma að finna öll gögn er tengjast málinu og ganga frá þeim til birtingar á heimasíðu Dalabyggðar. Skjölin hafa nú verið birt á heimasíðu Dalabyggðar og eru þau að finna undir stjórnsýslu,Skoða betur
30.10.2018Sveitarstjórn Dalabyggðar 167. fundur 167. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 1. nóvember 2018 og hefst kl. 16. Dagskrá Almenn mál 1. Fjárhagsáætlun 2019 – 2022, fyrsta umræða Úr fundargerð 210. fundar byggðarráðs Dalabyggðar frá 29. október 2018. Fjárhagsáætlun 2019 – 2022 – 1810003. Afgreiðsla á tillögu að fjárhagsáætlun til umræðu í sveitarstjórn. Byggðarráð samþykkir að leggja fyrirliggjandi drög að tillögu til fjárhagsáætlunar fyrir fundSkoða betur
25.10.2018Haustfagnaður FSD Árlegur haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu (FSD) hefst með lambhrútasýningu föstudaginn 26. október kl. 12 í fjárhúsunum á Kjarlaksvöllum í Saurbæ. Til sýningar í Dalahólfi eru skráðir 58 lambhrútar frá 15 bæjum; 32 hyrndir, 13 kollóttir og 13 mislitir. Laugardaginn 27. október kl. 10 er síðan lambhrútasýning á Skörðum í Miðdölum fyrir þann hluta sýslunnar sem er í Vesturlandshólfi. Þar eru skráðir 22 hrútarSkoða betur
22.10.2018Sorphirðing miðvikudaginn 24. október. Sorphirðing er vera átti á morgun, þriðjudaginn 23. október, frestast fram á miðvikudaginn 24. október.Skoða betur
17.10.2018Íslandsmeistarmótið í rúningi 2018 Ellefta Íslandsmeistaramótið í rúningi 2018 verður haldið á haustfagnaði FSD laugardaginn 27. október kl. 14 í reiðhöllinni í Búðardal. Skráningar þurfa að berast í síðasta lagi 25. október til Fjólu í síma 695 6576 eða á netfangið kringla@simnet.is. Tvær umferðir eru og er betri umferðin látin gilda. Þrír efstu keppa síðan til úrslita. Úrslit og verðlaunaafhending verða að lokinni keppni.Skoða betur
16.10.2018Sveitarstjórn Dalabyggðar – 166. fundur 166. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 18. október 2018 og hefst kl. 16. Í upphafi funda verður fundargerð sveitarstjórnar frá 13. september 2018 lögð fram til afgreiðslu. Dagskrá Almenn mál 1. Fjallskil 2018 Kynnt á fundi Sveitarstjórnar Dalabyggðar 13.10.2018, lagt fram til afgreiðslu. 2. Fjárhagsáætlun 2018 – Viðauki 3 Úr fundargerð 208. fundar Byggðaráðs Dalabyggðar 10.10.2018. Fjárhagsáætlun 2018Skoða betur
12.10.2018Kór Glerárkirkju Kór Glerárkirkju heldur tónleika í Hjarðarholtskirkju laugardaginn 13. október kl. 13. Fjölbreytt efnisskrá. Miðaverð kr. 1.500. Kór Glerárkirkju í Hjarðarholtskirkju – fbSkoða betur
09.10.2018Skrifstofa Dalabyggðar Opnunartími skrifstofu Dalabyggðar verður kl. 10-12 föstudaginn 12. október. Þ.e. lokað frá og með kl. 12.Skoða betur
09.10.2018Haustfagnaður FSD 2018 Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu heldur árlegan haustfagnað sinn helgina 26.-28. október. Um er að ræða einn stærsta viðburð sem Dalirnir bjóða upp á og inniheldur meðal annars sviðaveislu, hagyrðinga, hrútasýningar, rúningskeppni, markað, grillveislu, dansleiki og margt fleira skemmtilegt. Einstakir viðburðir og heildardagskrá verður kynnt betur þegar nær dregur.Skoða betur