Fréttir.

02.07.2018

Héraðsbókasafn – sumarlokun

Héraðsbókasafn Dalasýslu verður lokað frá og með 28. júní til og með 31. júlí vegna sumarleyfa.
Skoða betur
28.06.2018

Gildistaka svæðisskipulags

Sameiginleg áætlun Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar um byggðarþróun m.t.t. landbúnaðar, sjávarnytja og ferðaþjónustu, hefur tekið gildi.  Skipulagsstofnun staðfesti svæðisskipulagsáætlunina þann 5. júní  sl. í samræmi við skipulagslög og auglýsing um gildistökuna var birt í Stjórnartíðindum 19. júní sl. Í svæðisskipulaginu er sett  fram  framtíðarsýn fyrir sveitarfélögin þrjú sem lýsir þeim árangri sem þau vilja ná á næstu 15 árum. Einnig eru
Skoða betur
28.06.2018

Heyrnar- og talmeinastöð Íslands

Móttaka heyrnarfræðings Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands (HTÍ)  verður við heilsugæslustöðina í Búðardal mánudaginn 16. júlí. Heyrnarmælingar, ráðgjöf um heyrnartæki, aðstoð og stilling. Bókanir eru í síma 581 3855. Heyrnar- og talmeinastöð Íslands
Skoða betur
26.06.2018

Sögurölt við Steingrímsfjörð

Farið verður í sögurölt við Steingrímsfjörð á Ströndum næstkomandi mánudag, þann 2. júlí kl. 19.30 og lagt af stað frá Húsavíkurkleif, rétt sunnan við bæinn Húsavík. Gangan er skipulögð í samstarfi Byggðasafns Dalamanna, Sauðfjárseturs á Ströndum, Rannsóknaseturs HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofu og Náttúrubarnaskólans. Söfnin hafa tekið höndum saman um vikulegt sögurölt í Dölum og á Ströndum í sumar í
Skoða betur
25.06.2018

Sögurölt í Ólafsdal

Byggðasafn Dalamanna og Sauðfjársetur á Ströndum ákváðu í vetur að leggja saman krafta sína og skipuleggja sameiginlega göngur í sumar. Í fyrrasumar var boðið upp á fjölbreyttar göngur hjá báðum söfnunum, en í sumar er stefnan sett á styttri göngur og meiri sögur, þ.e. sögurölt um Dali og Strandir. Fyrsta söguröltið verður í samstarfi við Fornleifastofnun Íslands og Ólafsdalsfélagið mánudaginn
Skoða betur
22.06.2018

Sveitarstjóri í Dalabyggð

Starf sveitarstjóra í Dalabyggð er laust til umsóknar og er leitað að kraftmiklum og áhugasömum einstaklingi til að stýra krefjandi verkefnum á vegum sveitarfélagsins. Rík áhersla er á að efla atvinnu og vinna af krafti að nýjum verkefnum sem sveitarfélagið hyggst hefja undirbúning á í náinni framtíð. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfssvið Daglegur rekstur sveitarfélagsins
Skoða betur
22.06.2018

Hestaþing Glaðs

Hestaþing Glaðs fer fram laugardaginn 23. júní og hefst kl. 10 á reiðvellinum í Búðardal. Fyrir hádegi verður forkeppni í tölti, barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki og í B og A flokkum gæðinga. Eftir matarhlé verður síðan keppt í úrslitum í ofangreindum flokkum. Auglýst kvölddagskrá fellur niður, en kappreiðar í mótslok fara eftir þátttöku.   Hestamannafélagið Glaður
Skoða betur
19.06.2018

Söfnun dýrahræja

Farið verður um og dýrahræjum safnað norðan girðingar á miðvikudögum og sunnan girðingar á fimmtudögum í sumar. Nauðsynlegt er að búið sé að panta fyrir hádegi á þriðjudögum. Ef engin pöntun hefur borist fyrir þann tíma verður ekki farin ferð þó pantanir berist síðar í vikunni, heldur geymt fram í næstu viku. Bændum er bent á að panta strax og
Skoða betur
19.06.2018

Hreinsun rótþróa

Árleg hreinsun rotþróa fer fram síðari hluta júnímánuðar. Sumarið 2018 verða hreinsaðar rótþrær í Laxárdal, á Skarðsströnd og í Saurbæ. Sumarið 2019 verður hreinsað á Skógarströnd, í Hvammssveit og á Fellsströnd og sumarið 2020 í Hörðudal, Miðdölum og Haukadal.
Skoða betur
19.06.2018

Timbur og járngámar í dreifbýli

Timbur- og járngámar verða staðsettir í dreifbýli með sama sniði og undanfarin ár. Saurbær, Skarðströnd og og Fellsströnd (Ytra fell) 28. júní – 5. júlí Fellsströnd (Valþúfa), Hvammssveit og Laxárdalur 5. júlí – 12. júlí Haukadalur og Miðdalir 12. júlí – 19. júlí Hörðudalur og Skógarströnd 19. júlí – 26. júlí
Skoða betur
18.06.2018

Auðarskóli – skólaliði

Auðarskóli óskar eftir að ráða í stöðu skólaliða við grunnskóladeild Auðarskóla frá og með 15. ágúst 2018. Um er að ræða 100% stöðu. Umsóknarfrestur er til 22. júní 2018. Helstu verkefni eru starf með börnum í gæslu og þrif á skólanum. Unnið er samkvæmt starfslýsingu skólaliða. Hæfniskröfur eru færni í samskiptum, frumkvæði í starfi, sjálfstæði, skipulögð vinnubrögð og stundvísi. Upplýsingar
Skoða betur
13.06.2018

Auðarskóli í sumar

Skólaslit grunnskólans voru þann 31. maí, en leikskólinn verður opinn til og með 26. júní og einnig skrifstofa skólans. Skrifstofa Auðarskóla og leikskóladeild opna aftur 1. ágúst.  Skólasetning grunnskóladeildar Auðarskóla verður miðvikudaginn 22. ágúst.
Skoða betur
Fréttir.