Fréttir.

09.05.2018

Skrifstofa Dalabyggðar lokuð

Föstudaginn 11. maí lokar skrifstofa Dalabyggðar kl. 12:00   Sveitarstjóri
Skoða betur
08.05.2018

Jógvan og Pálmi

Jógvan Hansen og Pálmi Sigurhjartarson verða með tónleika í Dalabúð þriðjudaginn 15. maí kl. 20. Á dagskrá eru m.a. lögin hans Jóns í bankanum, Ég er kominn heim, Loksins ég fann þig, Komdu í kvöld, Kvöldsigling, Vertu ekki að horfa og fleiri. Miðaverð er 3.500 kr, selt við innganginn. Auglýsing
Skoða betur
05.05.2018

Sveitarstjórnarkosningar 2018

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninganna þann 26. maí rann út kl. 12 á hádegi laugardaginn 5. maí. Engir framboðslistar bárust kjörstjórn fyrir þann tíma og verða því óbundnar kosningar (persónukjör) í Dalabyggð í sveitarstjórnarkosningunum 26. maí næstkomandi. Allir kjósendur sveitarfélagsins verða því í kjöri, nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri. Tvær beiðnir um undanþágu bárust kjörstjórn. Frá
Skoða betur
02.05.2018

Auðarskóli óskar eftir að ráða í eftirfarandi stöður skólaárið 2018-2019

Við Auðarskóla er laus 77% staða kennara á unglingastigi og 60% staða kennara á miðstigi fyrir skólaárið 2018-2019. Kennsla á unglingastigi í smíðum, ensku og dönsku. Kennsla á miðstigi í stærðfræði, íslensku, dönsku og upplýsingatækni. Mikilvægt er að umsækjendur búi að færni í samskiptum, frumkvæði í starfi, sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum og góðri íslenskukunnáttu. Einnig þurfa umsækjendur að vera tilbúnir að vinna
Skoða betur
24.04.2018

Starf á verkstæði KM þjónustunnar

Bifvélavirki eða vanur viðgerðarmaður óskast til sumarafleysinga á verkstæði KM þjónustunnar í Búðardal. Um er að ræða fjölbreytt starf í almennum viðgerðum. Áhugasamir hafi samband við Karl í síma 895 6677. KM þjónustan
Skoða betur
24.04.2018

Ný samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur staðfest og birt í Stjórnartíðindum nýja samþykkt um stjórn Dalabyggðar og kemur hún í stað fyrri samþykktar frá 2013. Meðal breytinga í nýrri samþykkt er að reglulegir fundir sveitarstjórnar verða haldnir annan fimmtudag hvers mánaðar og fundir byggðarráðs verða að jafnaði haldnir fjórða fimmtudag hvers mánaðar. Þá verður núverandi menningar- og ferðamálanefnd skipt upp í tvær
Skoða betur
23.04.2018

Húsmæðraskólinn á Staðarfelli

Mánudaginn 30. apríl kl. 18:30 býðst Dalamönnum og nágrönnum tækifæri til að ganga um húsnæði Húsmæðraskólans á Staðarfelli í boði Byggðasafns Dalamanna, Héraðsskjalasafns Dalasýslu, bygginga- og skipulagsfulltrúa Dalabyggðar og ekki síst með dyggum stuðningi Sveins og Þóru bænda á Staðarfelli og Ríkiseigna. Dagskráin hefst á að Bogi Kristinsson byggingafulltrúi mun í stuttu máli segja frá byggingunni og Valdís Einarsdóttir safnvörður
Skoða betur
23.04.2018

Sveitarstjórnarkosningar 2018

Sveitarstjórnarkosningar fara fram 26. maí 2018. Upplýsingar um flest er lýtur að þeim er að finna á kosningavef innanríkisráðuneytisins, www.kosning.is. Kjörskrá Á kjörskrá skal taka alla íslenska ríkisborgara sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag, 26. maí, og sem skráðir eru með lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi þremur vikum fyrir kjördag, þann 5. maí. Óheimilt er að breyta kjörskrá ef tilkynning
Skoða betur
23.04.2018

Árgjald héraðsbókasafns 2018

Árgjald Héraðsbókasafns fyrir árið 2018 verður óbreytt frá fyrra ári, það er 1.000 kr. Hægt er að greiða árgjaldið inn á reikning 0312-26-001818, kt. 510694-2019, skrá þarf í skýringar ef greitt er fyrir annan. Einnig er hægt að greiða árgjaldið á skrifstofu Dalabyggðar. Eindagi árgjalds er 1. maí og eftir það verður greiðsluseðlar sendir út að viðbættum kostnaði. Héraðsbókasafn Dalasýslu
Skoða betur
23.04.2018

Aðalfundur Hollvinasamtaka Dalabyggðar 2018

Aðalfundur Hollvinasamtaka Dalabyggðar verður haldinn mánudaginn 30. apríl, klukkan 18 í stjórnsýsluhúsinu, Miðbraut 11 í Búðardal. Venjuleg aðalfundarstörf, inntaka nýrra félaga og stjórnarkjör.
Skoða betur
23.04.2018

Vinnuskóli Dalabyggðar 2018

Vinnuskóli Dalabyggðar verður starfræktur frá 11. júní til 31. júlí og er fyrir unglinga fædda árin 2002 – 2005.  Daglegur vinnutími verður kl. 8-12 og 13-15 fimm daga vikunnar fyrir elstu börnin, en fjóra daga fyrir hin yngri. Verkstjóri verður eins og undanfarin ár Sigríður Jónsdóttir. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðunni og einnig á skrifstofu Dalabyggðar. Sérstakar vinnureglur og viðmið um verkefni og
Skoða betur
23.04.2018

Auglýsing um samþykkt Svæðisskipulags Dala, Reykhóla og Stranda 2018-2030

Svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar samþykkti þann 26. mars 2018 tillögu að svæðisskipulagi sveitarfélaganna ásamt umhverfisskýrslu, sbr. 25. gr. skipulagslaga og 9. gr. laga um umhverfismat áætlana. Í svæðisskipulagstillögunni er sett fram sameiginleg framtíðarsýn sveitarfélaganna á þróun landbúnaðar, sjávarnytja og ferðaþjónustu í þeim tilgangi að styrkja atvinnulíf og byggð. Greind eru tækifæri sem búa í auðlindum og sérkennum svæðisins og
Skoða betur
Fréttir.