Fréttir.

01.09.2016

Auðarskóli – leikskólakennari

Leikskólakennara vantar við Auðarskóla frá og með 1. október 2016. Hann þarf að vera jákvæður, skapandi og vera virkur hluti liðsheildar. Hæfniskröfur eru áhugi á skólastarfi, góð samskiptahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í störfum. Allar umsóknir verða teknar til skoðunar og þeim svarað. Umsóknarfrestur er til og með 18. september. Nánari upplýsingar veitir Hlöðver Ingi Gunnarsson skólastjóri í síma 430 4700.
Skoða betur
01.09.2016

Lokahóf UDN

Lokahóf UDN fer fram á Reykhólum, 7. september kl. 18. Farið verður í ratleik og viðurkenningar verða veittar. Boðið verður upp á hamborgara.
Skoða betur
01.09.2016

Þróun heimahaganna – Hugmyndir og sjónarmið

Þriðjudaginn 6. september kl. 17:30 verður haldinn opinn fundur í Kaupfélaginu í Króksfjarðarnesi þar sem íbúum Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar gefst tækifæri til að kynna sér vinnu við svæðisskipulagsáætlun fyrir sveitarfélögin og leggja sitt af mörkum við mótun áætlunarinnar. Verkefnið snýst um að móta stefnu um þróun svæðisins til framtíðar. Sú stefna þarf að eiga fótfestu í reynslu íbúa og
Skoða betur
01.09.2016

Knattspyrnuæfingar

Knattspyrnuæfingar fyrir mið- og elsta stig eru á mánudögum kl. 15:30-16:30. Æfingarnar fara fram í Dalnum, á meðan aðstæður leyfa. Knattspyrnuæfingar fyrir yngsta stig er á gæslutíma á fimmtudögum á sparkvellinum við Auðarskóla.
Skoða betur
31.08.2016

Rafmagnslaust í Haukadal og Miðdölum

Rafmagnslaust verður fimmtudaginn 1. september í Haukadal og Miðdölum frá Skógstagli/Álfheimum til og með að Bröttubrekku frá kl. 13 til 17 vegna tenginga á háspennukerfi. Rarik biðst velvirðingar á óþægindum sem af þessu stafa. Bilanasími Rarik er 528 9390
Skoða betur
31.08.2016

Stígamót

Stígamót bjóða til opins fundar í Hnyðju Höfðagötu 3 á Hólmavík (Þróunarsetrinu) mánudaginn 5. september kl. 17:15. Í vetur munu Stígamót bjóða upp á ráðgjafarþjónustu hálfsmánaðarlega á Ísafirði. Það gagnast ef til vill ekki vel fyrir Dali, Strandir og Reykhólasveit. En þar sem við erum á leið á Ísafjörð að kynna þjónustuna, langar okkur að bjóða upp á kynningu líka
Skoða betur
30.08.2016

Rafmagnslaust í Miðdölum

Rafmagnslaust verður miðvikudaginn 31. ágúst frá Skógstagli að Bröttubrekku og í Miðdölum frá kl. 13 til 16:30 vegna vinnu við háspennukerfið. Rarik biðst velvirðingar á óþægindum sem af þessu stafa. Bilanasími Rarik er 528 9390.
Skoða betur
29.08.2016

Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi

Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi tengir saman þá sem vinna að miðlun og öflun þekkingar fullorðinna á svæðinu og stendur fyrir ýmsu námsframboði í fullorðinsfræðslu, auk náms- og starfsráðgjafar og ráðgjafar og greiningar á fræðsluþörf innan fyrirtækja. Hægt er að kynna sér framboð þeirra í námskeiðum og námsleiðum á heimasíðu þeirra. Í boði eru meðal annars námskeið í steinhöggi, lyftaranámskeið, íslenska fyrir
Skoða betur
24.08.2016

Augnlæknir

Guðrún J. Guðmundsdóttir augnlæknir verður með móttöku á heilsugæslustöðinni í Búðardal fimmtudaginn 1. september. Tímapantanir eru í síma 432 1450. Heilbrigðisstofun Vesturlands – Búðardal
Skoða betur
24.08.2016

Landskeppni smalahunda 2016

Landskeppni smalahunda 2016 verður haldin að Bæ í Miðdölum helgina 27. – 28. ágúst og hefst keppnin kl. 10 báða dagana. Landskeppni Smalahundafélags Íslands er haldin í samstarfi Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu og Smalahundadeildar Snæfellsness og Hnappadalssýslu. Keppni fer fram dagana 27. og 28. ágúst að Bæ í Miðdölum. Keppnin hefst klukkan 10 báða daganna.Dómari verður Bevis Jordan en hann
Skoða betur
23.08.2016

Reglur um launuð námsleyfi starfsmanna

Á fundi byggðaráðs 6. júlí og sveitarstjórnar 16. ágúst voru samþykktar reglur um launuð námsleyfi starfsmanna Dalabyggðar. Í reglunum er fjallað um hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að fá launað starfsleyfi hjá Dalabyggð. En auk þess skipta kjarasamningar og reglur stéttarfélaga þar máli. Reglur um launuð námsleyfi starfsmanna Dalabyggðar
Skoða betur
23.08.2016

Rafmagnstruflanir

Gera má ráð fyrir rafmagnstruflunum á Skógarströnd og í Suður-Dölum aðfaranótt föstudagsins 26. ágúst frá kl. 1:00 til kl. 6:00 vegna vinnu Landsnets á 66 kV flutningskerfi sínu. Rarik biðst velvirðingar á óþægindum sem af þessu stafa. Bilanasími er 528 9390. RARIK
Skoða betur
Fréttir.