01.09.2016Lokahóf UDN Lokahóf UDN fer fram á Reykhólum, 7. september kl. 18. Farið verður í ratleik og viðurkenningar verða veittar. Boðið verður upp á hamborgara.Skoða betur
01.09.2016Þróun heimahaganna – Hugmyndir og sjónarmið Þriðjudaginn 6. september kl. 17:30 verður haldinn opinn fundur í Kaupfélaginu í Króksfjarðarnesi þar sem íbúum Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar gefst tækifæri til að kynna sér vinnu við svæðisskipulagsáætlun fyrir sveitarfélögin og leggja sitt af mörkum við mótun áætlunarinnar. Verkefnið snýst um að móta stefnu um þróun svæðisins til framtíðar. Sú stefna þarf að eiga fótfestu í reynslu íbúa ogSkoða betur
01.09.2016Knattspyrnuæfingar Knattspyrnuæfingar fyrir mið- og elsta stig eru á mánudögum kl. 15:30-16:30. Æfingarnar fara fram í Dalnum, á meðan aðstæður leyfa. Knattspyrnuæfingar fyrir yngsta stig er á gæslutíma á fimmtudögum á sparkvellinum við Auðarskóla.Skoða betur
31.08.2016Rafmagnslaust í Haukadal og Miðdölum Rafmagnslaust verður fimmtudaginn 1. september í Haukadal og Miðdölum frá Skógstagli/Álfheimum til og með að Bröttubrekku frá kl. 13 til 17 vegna tenginga á háspennukerfi. Rarik biðst velvirðingar á óþægindum sem af þessu stafa. Bilanasími Rarik er 528 9390Skoða betur
31.08.2016Stígamót Stígamót bjóða til opins fundar í Hnyðju Höfðagötu 3 á Hólmavík (Þróunarsetrinu) mánudaginn 5. september kl. 17:15. Í vetur munu Stígamót bjóða upp á ráðgjafarþjónustu hálfsmánaðarlega á Ísafirði. Það gagnast ef til vill ekki vel fyrir Dali, Strandir og Reykhólasveit. En þar sem við erum á leið á Ísafjörð að kynna þjónustuna, langar okkur að bjóða upp á kynningu líkaSkoða betur
30.08.2016Rafmagnslaust í Miðdölum Rafmagnslaust verður miðvikudaginn 31. ágúst frá Skógstagli að Bröttubrekku og í Miðdölum frá kl. 13 til 16:30 vegna vinnu við háspennukerfið. Rarik biðst velvirðingar á óþægindum sem af þessu stafa. Bilanasími Rarik er 528 9390.Skoða betur
29.08.2016Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi tengir saman þá sem vinna að miðlun og öflun þekkingar fullorðinna á svæðinu og stendur fyrir ýmsu námsframboði í fullorðinsfræðslu, auk náms- og starfsráðgjafar og ráðgjafar og greiningar á fræðsluþörf innan fyrirtækja. Hægt er að kynna sér framboð þeirra í námskeiðum og námsleiðum á heimasíðu þeirra. Í boði eru meðal annars námskeið í steinhöggi, lyftaranámskeið, íslenska fyrirSkoða betur
24.08.2016Augnlæknir Guðrún J. Guðmundsdóttir augnlæknir verður með móttöku á heilsugæslustöðinni í Búðardal fimmtudaginn 1. september. Tímapantanir eru í síma 432 1450. Heilbrigðisstofun Vesturlands – BúðardalSkoða betur
24.08.2016Landskeppni smalahunda 2016 Landskeppni smalahunda 2016 verður haldin að Bæ í Miðdölum helgina 27. – 28. ágúst og hefst keppnin kl. 10 báða dagana. Landskeppni Smalahundafélags Íslands er haldin í samstarfi Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu og Smalahundadeildar Snæfellsness og Hnappadalssýslu. Keppni fer fram dagana 27. og 28. ágúst að Bæ í Miðdölum. Keppnin hefst klukkan 10 báða daganna.Dómari verður Bevis Jordan en hannSkoða betur
23.08.2016Reglur um launuð námsleyfi starfsmanna Á fundi byggðaráðs 6. júlí og sveitarstjórnar 16. ágúst voru samþykktar reglur um launuð námsleyfi starfsmanna Dalabyggðar. Í reglunum er fjallað um hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að fá launað starfsleyfi hjá Dalabyggð. En auk þess skipta kjarasamningar og reglur stéttarfélaga þar máli. Reglur um launuð námsleyfi starfsmanna DalabyggðarSkoða betur
23.08.2016Rafmagnstruflanir Gera má ráð fyrir rafmagnstruflunum á Skógarströnd og í Suður-Dölum aðfaranótt föstudagsins 26. ágúst frá kl. 1:00 til kl. 6:00 vegna vinnu Landsnets á 66 kV flutningskerfi sínu. Rarik biðst velvirðingar á óþægindum sem af þessu stafa. Bilanasími er 528 9390. RARIKSkoða betur
16.08.2016Íslandsmeistaramótið í hrútadómum Íslandsmeistaramótið í hrútadómum verður haldið sunnudaginn 21. ágúst kl. 14 á Sauðfjársetrinu í Sævangi. Jafnan er góð þátttaka í hrútadómunum, bæði í flokki þaulreyndra hrútadómara og líka í flokki óvanra hrútaþuklara. Að venju verður kjötsúpa á boðstólum í hádeginu og kaffihlaðborð allan liðlangan daginn. Síðasta ár sigraði Guðmundur Gunnarsson bóndi Kjarlaksvöllum í Saurbæ, í öðru sæti var Vilberg Þráinsson HríshóliSkoða betur