16.08.2016
Íslandsmeistaramótið í hrútadómum
Íslandsmeistaramótið í hrútadómum verður haldið sunnudaginn 21. ágúst kl. 14 á Sauðfjársetrinu í Sævangi. Jafnan er góð þátttaka í hrútadómunum, bæði í flokki þaulreyndra hrútadómara og líka í flokki óvanra hrútaþuklara. Að venju verður kjötsúpa á boðstólum í hádeginu og kaffihlaðborð allan liðlangan daginn. Síðasta ár sigraði Guðmundur Gunnarsson bóndi Kjarlaksvöllum í Saurbæ, í öðru sæti var Vilberg Þráinsson Hríshóli
Skoða betur