12.10.2015
Silfurtún – laust starf í mötuneyti
Óskað er eftir aðstoðarmatráði á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Silfurtún í Búðardal. Um er að ræða 50% starf í vaktavinnu, unnið aðra hvora helgi, á tímabilinu 15. október til 31. desember 2015. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Eyþór J Gíslason rekstrarstjóri í síma 898 1251. Umsóknir berist á netfangið eythor @dalir.is
Skoða betur