Fréttir.

04.06.2015

Laust starf skólaritara í Auðarskóla

Auðarskóli auglýsir eftir skólaritara í 87% starf. Ritarinn verður með aðstöðu í grunnskóladeild en þjónar allri stofnuninni. Helstu störf skólaritara eru ýmis skrifstofustörf eins og símsvörun, uppfærslur á heimasíðu, innri vef og upplýsingum í námskrá og starfsáætlunum,sjá um gagnagrunna skólans (Mentor og Námfús), vinna við samantektir á gjöldum og skýrslum. Einnig að sinna nemendum með ýmis mál, panta inn vörur,
Skoða betur
31.05.2015

Sauðafellshlaupið 2015

Sauðafellshlaupið 2015 verður 13. júní og hefst kl. 13. Hlaupið hefst og endar við brúsapallinn á Erpsstöðum. Hlaupið er eftir þjóðvegi 60 að Fellsenda og upp veg 585, á Fellsendabrekkunni er stefnan tekin uppá Sauðafellið, það hlaupið þvert og niður að bænum Sauðafelli og komið að þjóðvegi 60 á ný að brúsapallinum á Erpsstöðum. Hlaupaleiðin er um 12 km. Sauðafellshlaupið
Skoða betur
20.05.2015

Mannvirki nýtt til ferðaþjónustu

Að gefnu tilefni skal minnt á að skv. lögum nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtistaði skal hver sá sem rekur veitinga- eða gistiþjónustu hafa til þess gilt rekstrarleyfi. Þetta gildir hvort um er að ræða t.d. veitingarekstur, hótel, gistiheimili eða heimagistingu. Sótt er um slíkt leyfi til sýslumanns sem aflar umsagna m.a. sveitarstjórnar, byggingarfulltrúa, heilbrigðiseftirlits og slökkviliðs. Umsókn skal
Skoða betur
19.05.2015

Vinnuskólinn

Vinnuskólinn verður starfræktur frá 8. júní til 31. júlí fyrir unglinga fædda árin 1999 – 2002. Daglegur vinnutími verður kl. 8-12 og 13-15 fimm daga vikunnar fyrir elstu börnin, en fjóra daga fyrir hin yngri. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu og skrifstofu Dalabyggðar. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með föstudagsins 29. maí 2015.
Skoða betur
18.05.2015

Bæjarhreinsun skáta

Bæjarhreinsun skátafélagsins Stíganda er í dag, mánudaginn 18. maí, kl. 15:10 – 17. Íbúum er boðið með, því margar hendur vinna létt verk. Mæting er við Dalabúð og boðið verður upp á veitingar að bæjarhreinsun lokinni. Þetta er skemmtileg og þörf vinna. Verið endilega í vinnufötum, og góðum skóm að ganga í. Skátar hvetja íbúa til að hreinsa garða og
Skoða betur
17.05.2015

125. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar

125. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 19. maí 2015 og hefst kl. 17. Dagskrá Almenn mál 1. Samstarf og/eða sameining sveitarfélaga 2. Sýslumerki og söngur 3. Þjóðlendukrafa – Svæði 9 Almenn mál – umsagnir og vísanir 4. Laugaland – Umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis Fundargerðir til staðfestingar 5. Byggðarráð Dalabyggðar – 158 5.1. Tjaldsvæði í Búðardal –
Skoða betur
11.05.2015

Silfurtún – ný símanúmer

Nýtt símkerfi hefur verið tekið í notkun á Silfurtúni og samhliða urðu breytingar á símanúmerum. Ný símanúmer á Silfurtúni eru Skrifstofa 430 4771 Starfsmannarými 430 4772 Eldhús 430 4773
Skoða betur
11.05.2015

Auðarskóli – ný símanúmer

Nýtt símkerfi hefur verið tekið í notkun í Auðarskóla og samhliða breytingar á símanúmerum í grunnskóla- og tónlistardeildum. Ný símanúmer eru Auðarskóli 430 4757 Skólastjóri 430 4753 Deildarstjóri 430 4754 Sérkennsla 430 4755 Tónlistarskóli 430 4756
Skoða betur
11.05.2015

Sýsluskrifstofan lokuð

Skrifstofur Sýslumannsins á Vesturlandi verða lokaðar þriðjudaginn 12. maí 2015. Vegna starfsdags starfsmanna Sýslumannsins á Vesturlandi verða allar skrifstofur embættisins lokaðar þriðjudaginn 12. maí 2015. Sýslumaðurinn á VesturlandiÓlafur Kristófer Ólafsson
Skoða betur
30.04.2015

Fundur um atvinnumál

Byggðaráð Dalabyggðar og Dalakot boða til súpufundar um atvinnumál í Dalabyggð. Fundurinn verður í Dalakoti miðvikudaginn 6. maí kl. 18 og er gert ráð fyrir að hann standi í um 2 klst. Á fundinum verða stuttar framsögur forsvarsmanna fyrirtækja og stofnana í héraðinu og umræður. Súpa verður í boði Dalakots. Byggðaráð og Dalakot
Skoða betur
28.04.2015

Sameining – Samstarf

Sveitarstjórnir Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar sammæltust um það eftir sveitarstjórnarkosningarnar 2014 að hittast á sameiginlegum fundi til að ræða sameiginleg málefni, frekara samstarf og sameiningarmál þessara sveitarfélaga. Sá fundur var haldinn 31. mars 2015 í Tjarnarlundi. Fulltrúum frá Árneshreppi og Kaldrananeshreppi var einnig boðið að taka þátt í samtalinu. Til fundar mættu 19 fulltrúar, þó enginn frá Árneshreppi vegna ófærðar.
Skoða betur
27.04.2015

Fyrsta maí samkoma

Fyrsta maí verða SDS og Stéttarfélags Vesturlands með samkomu í Dalabúð kl. 14:30. Kynnir er Kristín G. Ólafsdóttir SDS, ræðumaður Geirlaug Jóhannsdóttir ASÍ og um skemmtiatriði sjá Guðrún Gunnarsdóttir og Jogvan. Félagsmenn SDS og Stéttarfélags Vesturlands eru hvattir til að mæta og sýna með því samstöðu á degi verkalýðsins. Félagsmönnum og gestum þeirra er boðið uppá kaffiveitingar að dagskrá lokinni.
Skoða betur
Fréttir.