Fréttir.

02.03.2015

N-ið í UDN – Nágrannar handan Gilsfjarðar

Sunnudaginn 8. mars kl. 15 mun Sveinn Ragnarsson á Svarfhóli í Geiradal segja frá mannlífi og sögu í Austur-Barðastrandarsýslu í sögustund á Byggðasafni Dalamanna. Austur-Barðastrandarsýslu nær frá sýslumörkum við Dalasýslu í botni Gilsfjarðar að Kjálkafirði í vestri, auk fjölda eyja. Sýslan er nú eitt sveitarfélag (Reykhólahreppur), en áður voru þar fimm hreppar. Allir eru velkomnir og aðgangseyrir er 500 kr.
Skoða betur
25.02.2015

Deiliskipulag Skáleyjar á Hvammsfirði.

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti þann 17. febrúar 2015 að auglýsa lýsingu á nýrri deiliskipulagstillögu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lýsing deiliskipulagstillögunar felur í sér eftirfarandi; Skáley er staðsett á innanverðum Hvammsfirði nærri Dagverðarnesi í Dalabyggð. Í Skáley eru engar nýtanlegar byggingar lengur og er fyrirhugað að byggja frístundarhús, bátaskýli ásamt bryggju fyrir heilsársnotkun. Megin markmið deiliskipulagsins er að fá gistimöguleika
Skoða betur
25.02.2015

Sögustund – Saura-Gísli

Sunnudaginn 1. mars kl. 15 mun safnvörður segja frá Saura-Gísla og samferðamönnum hans. Gísli Jónsson var fæddur 8. apríl 1820 í Rauðbarðaholti. Hann var sjöunda barn Jóns betri Jónssonar og Helgu Helgadóttur þar á bæ. Gísli var lengst af bóndi á Saurum í Laxárdal, en einnig nokkur ár á Sauðafelli í Miðdölum. Kona hans var Kristín Jóhannesdóttir frá Saurum, auk
Skoða betur
23.02.2015

Töltmót Glaðs

Töltmóti Glaðs verður laugardaginn 28. febrúar í Nesoddahöllinni og hefst stundvíslega klukkan 13. Keppt í polla-, barna-, unlinga-, ungmenna, karla- og kvennaflokkum ef næg þátttaka fæst. Upplýsingar um fyrirkomulag keppni, skráningu og annað er að finna á heimasíðu Glaðs. Glaður
Skoða betur
20.02.2015

Styrktarsamningar UDN

Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN) hefur leitað eftir styrktaraðilum í Dölum og Reykhólasveit. Fyrsti styrktarsamningurinn hefur verið gerður við Samkaup-Strax. UDN fær 200.000 kr. styrk frá fyrirtækinu og verða þeir peningar notaðir til kaupa á nýjum íþróttabúningum. Samkaup-Strax voru fyrstir til af þeim sem leitað hefur verið til. UDN leitar enn að fleiri styrktaraðilum til uppbyggingar á starfsemi félagsins. Áhugasömum
Skoða betur
18.02.2015

Félagsvist í Árbliki

Kvenfélagið Fjóla heldur sitt annað spilakvöld föstudagskvöldið 20. febrúar kl. 20. Aðgangseyrir 800 kr. fyrir fullorðna, en frítt fyrir 14 ára og yngri. Kaffiveitingar eru að lokinni spilamennsku.
Skoða betur
18.02.2015

Þjónustuhús við tjaldsvæði

Dalabyggð óskar eftir tilboðum í byggingu þjónustuhúss við tjaldsvæðið í Búðardal. Innifalið í tilboði skal vera allt það sem til þarf til að ljúka verkinu eins og það er skilgreint í útboðsgögnum. Bjóðendur geta nálgast útboðsgögn á skrifstofu Dalabyggðar frá 18. febrúar 2015.
Skoða betur
17.02.2015

Úr mold í stein

Sunnudaginn 22. febrúar kl. 15 mun Bogi Kristinsson byggingafulltrúi segja frá 19. aldar byggingartækni á Byggðasafni Dalamanna á Laugum í Sælingsdal. Allir eru velkomnir á sögustund og molakaffi. Aðgangseyrir er 500 kr fyrir fullorðna. Þeir sem hafa áhuga á að fara í sund samhliða sögustund hafi samband við Gunnar Má með góðum fyrirvara á netfangið gunnarmar@umfi.is eða síma 777 0295
Skoða betur
13.02.2015

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 122. fundur

122. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 17. febrúar 2015 og hefst kl. 17:00. Dagskrá Almenn mál – umsagnir og vísanir 1. Frumvarp til laga – húsaleigubætur 2. Frumvarp til laga – Menntamálastofnun 3. Frumvarp til laga – félagsþjónusta sveitarfélaga 4. Frumvarp til laga – Náttúrupassi 5. Frumvarp til laga – stjórn vatnamála 6. Frumvarp til
Skoða betur
12.02.2015

Álagningaseðlar fasteignagjalda

Því miður hafa álagningaseðlar fasteignagjalda í Dalabyggð ekki birst sem skyldi í íbúagáttinni. Til að skoða álagningaseðla verður í stað þess að fara inn á íbúagáttina að skrá sig inn á síðunni Island.is – Mínar síður. Þar má finna álagningaseðla í pósthólfi. Innskráning á Island.is
Skoða betur
11.02.2015

Kaupfélag Saurbæinga

Sögustundir á Byggðasafni Dalamanna hefjast aftur sunnudaginn 15. febrúar kl. 15. Þá mun Sigurður Þórólfsson í Innri-Fagradal mun fara yfir sögu Kaupfélags Saurbæinga. Kaupfélag Saurbæinga var stofnað 1898 og rak verslun, sláturhús, smjörbú og fleira í Salthólmavík og síðar Skriðulandi. Allir eru velkomnir og aðgangseyrir er 500 kr fyrir fullorðna.
Skoða betur
11.02.2015

Fasteignagjöld

Álagning fasteignagjalda er nú lokið. Veittur er 5% staðgreiðsluafsláttur séu öll gjöld greidd í síðasta lagi 15. febrúar. Samþykkt sveitastjórnar um útsvar og fasteignaskatt 2020. Kæruleiðir vegna álagningar Álagning fasteignaskatts er kæranleg til yfirfasteignamatsnefndar og skal kæra borin fram innan þriggja mánaða frá álagningu. Álagning á sorphirðu- og sorpeyðingargjaldi er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn
Skoða betur
Fréttir.