Fréttir.

03.05.2012

Norðurljós – vortónleikar

Kvennakórinn Norðurljós heldur sína árlegu vortónleika í Hólmavíkurkirkju þriðjudaginn 8. maí og hefjast þeir kl. 19:30. Að þessu sinni mun Heiða Ólafs koma fram með kórnum. Undirleikarar eru Viðar Guðmundsson og Gunnlaugur Bjarnason. Stjórnandi kórsins er Sigríður Óladóttir. Að venju býður kórinn upp á kaffihlaðborð að tónleikum loknum í félagsheimilinu á Hólmavík. Miðaverð er 2.000 kr fyrir fullorðna og 1.000
Skoða betur
03.05.2012

Foreldramorgnar á miðvikudögum

Á miðvikudagsmorgnum koma foreldrar saman í Rauða kross húsinu, kl. 10:30-12. Þetta er hugsað sem félagsskapur foreldra og ungra barna þeirra til að njóta samveru, hlæja, spjalla og fá sér kaffi/te í góðum félagsskap. Fyrsti miðvikudagurinn var í gær 2. maí og tókst vel til. Næst verður komið saman miðvikudaginn 9. maí. Allir foreldrar ungra barna eru velkomnir að bætast
Skoða betur
02.05.2012

Skátafélagið Stígandi

Framundan hjá skátafélaginu Stíganda er bæjarhreinsun 10. maí og vorferð síðar í maí. Þessir tveir viðburðir eru opnir öllum sem vilja leggja félaginu lið og hafa gaman. Bæjarhreinsun í Búðardal Skátafélagið Stígandi stendur fyrir bæjarhreinsun í Búðardal, fimmtudaginn 10. maí kl. 15. Íbúar eru hvattir til að taka þátt í hreinsuninni með skátunum, t.d. taka til í götunni sinni, görðunum
Skoða betur
30.04.2012

Dýralæknaþjónusta í maí

Matvælastofnun hefur gert þjónustusamning við Gísla Sverri Halldórsson dýralækni um að taka að sér almenna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu á þjónustusvæði 2. Þjónustusvæði 2 nær yfir Dalabyggð, Reykhólahrepp, Strandabyggð, Árneshrepp, Kaldrananeshrepp og Bæjarhrepp. Um skammtímasamning er að ræða sem gildir frá 1. maí til 1. júní. MAST mun áfram vinna í því að tryggja varanlega dýralæknaþjónustu á svæðinu. Gísli Sverrir mun
Skoða betur
30.04.2012

Opið íþróttamót Glaðs

Opið íþróttamót Glaðs verður haldið í Búðardal þriðjudaginn 1. maí, kl. 10. Keppt verður í fjórgangi, fimmgangi, tölti og 100 metra skeiði í nokkrum flokkum. Upplýsingar um keppendur og rásraðir er að finna á heimasíðu Glaðs. Hestamannafélagið Glaður
Skoða betur
30.04.2012

Fundur fimm sveitarstjórna

Sveitarstjórn Dalabyggðar þáði nýverið boð Ingibjargar Valgeirsdóttur sveitarstjóra Strandabyggðar um að koma til fundar við sveitarstjórn Strandabyggðar ásamt sveitarstjórnum Reykhólahrepps, Kaldrananeshrepps og Árneshrepps. Fundurinn var haldinn mánudagskvöldið 23. apríl í Hnyðju, nýjum fundarsal og móttöku Strandabyggðar á neðstu hæð Þróunarsetursins á Hólmavík. Tilgangur fundarins var að ræða möguleika á aukinni samvinnu þessara sveitarfélaga ásamt sameiginlegum hagsmunamálum, m.a. starfsemi og þjónustu
Skoða betur
27.04.2012

Sveitarstjórnarfundur Dalabyggðar nr. 86

86. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, miðvikudaginn 2. maí 2012 og hefst kl. 18. Dagskrá Almenn mál 1. budardalur.is 2. Breiðafjarðarnefnd – fundargerð nr. 124. Almenn mál – umsagnir og vísanir 3. Raflínur í jörð 4. Vatnasvæðisnefnd Fundargerðir til staðfestingar 5. Byggðarráð Dalabyggðar nr. 106 5.1. Refa- og minkaveiði 2012 6. Byggðarráð Dalabyggðar nr. 107 6.1.
Skoða betur
27.04.2012

1. maí í Dalabyggð

Stéttarfélag Vesturlands og Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu standa saman að samkomu í Leifsbúð á baráttudegi verkalýðsins, þriðjudaginn 1. maí kl. 15. Kynnir verður Kristín G. Ólafsdóttir og ræðumaður Eva Björk Sigurðardóttir. Samkórinn og Vorboðinn taka nokkur lög. Einnig mun Heiða Ólafsdóttir syngja fyrir gesti. Gestum verður boðið uppá kaffiveitingar að dagskrá lokinni. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna.
Skoða betur
25.04.2012

Hólafjör og sundmót UDN og HSS

Hólafjör UDN og sundmót UDN og HSS verða 27.-28. apríl á Reykhólum. Hólafjör UDN Hólafjör er fyrir krakka í 5.-10. bekk Reykhólaskóla, Auðarskóla og nú einnig grunnskóla á Ströndum. Heilmikil og fjölbreytt dagskrá er í boði. Dagskrá hefst kl. 16 á föstudag og er nokkuð samfelld til kl. 13:45 á laugardaginn. En þá tekur sundmótið við. Skráning og nánari upplýsingar
Skoða betur
25.04.2012

Myndlistasýning

Myndlistasýning verður í gamla húsinu á Fellsenda, sunnudaginn 29. apríl klukkan 14-17. Til sýnis verður afrakstur heimilisfólks frá ljósmynda- og myndlistanámskeiði. Vöfflur og kaffi eru í boði. Allir velkomnir
Skoða betur
18.04.2012

Átak í söfnun skjala íþróttafélaga

Átak Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Félag héraðsskjalavarða á Íslandi í söfnun skjala íþróttafélaga hófst formlega miðvikudaginn 18. apríl. Er það gert í tilefni af 100 ára afmæli ÍSÍ og þann dag voru 100 dagar í að Ólympíuleikarnir í London hefjist. Stefnt er að því að átakinu ljúki í janúar 2013 um leið og afmælisári ÍSÍ lýkur. Verður þá tekið
Skoða betur
18.04.2012

Firmakeppni Hestaeigendafélagsins

Firmakeppni Hestaeigendafélags Búðardals verður haldin sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 19. apríl á keppnisvellinum í Búðardal. Dagskráin hefst kl. 13 með hópreið frá hesthúsahverfinu og niður á keppnisvöllinn. Keppt verður í flokki polla (teymt undir), barna (13 ára og yngri), unglinga (14-21 árs), kvenna og karla. Tekið verður við skráningum á staðnum. Að keppni lokinni verða grillaðar pylsur í eða hjá reiðhöllinni.
Skoða betur
Fréttir.