Fréttir.

05.07.2011

Stjórnsýsla á vef Dalabyggðar

Nýlega er búið að samþykkja nýjar reglur um skólaakstur og vinnuskólann í sveitarstjórn Dalabyggðar. Þær reglur og annað nytsamlegt varðandi stjórnsýslu sveitarfélagsins má finnaá vef Dalabyggðar undir liðnum stjórnsýsla. Þar er að finna skipan sveitastjórnar, byggðaráðs og nefnda, auk fulltrúa á fundi og nefndir fyrir hönd Dalabyggðar. Fundargerðir sveitarstjórnar, byggðaráðs og nefnda sveitarfélagsins, auk hljóðritana af sveitarstjórnarfundum. Samþykktir og vinnureglur
Skoða betur
05.07.2011

Síló við sláturhúsið í Búðardal

Fyrirhugað er fyrir að fjarlægja síló sem stendur norðan sláturhússins. Ef einhver hefur áhuga á að nýta sér sílóið er viðkomandi bent á að hafa samband við Ágúst Andrésson framkvæmdastjóra í síma 455 4500 frá og með 4. júlí eða með tölvupósti á netfangið agust.andresson@ks.is
Skoða betur
30.06.2011

Aðstoðarmatráður

Starf aðstoðarmatráðs í eldhúsi Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns í Búðardal er laust til umsóknar. Aðstoðarmatráður starfar í eldhúsi við matargerð og þrif og vinnur sjálfstætt eftir fyrirmælum matráðs við bakstur og matargerð. Reynsla og þekking á eldhússtörfum og matreiðslu er nauðsynleg. Starfshlutfall er um 40% og unnið er aðra hverja helgi. Ráðið verður í starfið frá 1. ágúst 2011 eða
Skoða betur
28.06.2011

Hjúkrunarforstjóri

Starf hjúkrunarforstjóra Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns í Búðardal er laust til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa háskólapróf í hjúkrunarfræði, nám og/eða reynsla í stjórnun er kostur. Ráðið verður í starfið frá 1. október 2011. Umsóknarfrestur er til og með 4. júlí nk. Nánari upplýsingar veitir Sveinn Pálsson sveitarstjóri í síma 430 4700 Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið sveitarstjori@dalir.is eða á
Skoða betur
28.06.2011

Hamingjudagar á Hólmavík

Árlegir hamingjudagar á Hólmavík eru næstu vikuna með margskonar viðburðum. Á dagskrá eru námsskeið, smiðjur, lístsýningar, tónleikar, hópplank, barþraut, einleikur, kvöldvaka, furðuleikar og margt, margt fleira. Rétt er að taka fram að vegalengdin fyrir Dalamenn til Hólmavíkur er sú sama og fyrir Hólmvíkinga í Dalina. Dagskrá hamingjudaga
Skoða betur
20.06.2011

Bátadagar á Breiðafirði 2.-3. júlí 2011

Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar (FÁBB), sem undanfarin 3 ár hefur gengist fyrir siglingu súðbyrtra trébáta um Breiðafjörð, gengst nú fyrir slíkri bátahátíð dagana 2.-3. júlí. FÁBB hefur súðbyrðinginn í öndvegi, og vinnur að verndun hans og kynningu. Einnig stendur félagið að sýningunni „Bátavernd og hlunnindanytjar“ sem opnuð var á Reykhólum 1. júní í samvinnu við Reykhólahrepp og Æðarvé, félag
Skoða betur
20.06.2011

Dagur sauðfjárræktarinnar

Fyrir þá fáu sauðfjárbændur í Dölum sem ekki eru í Skotlandi skal bent á að föstudaginn 24. júní standa Landbúnaðarháskóli Íslands og Búnaðarsamtök Vesturlands fyrir Degi sauðfjárræktarinnar á Hvanneyri kl. 10-17. Dagur sauðfjárræktarinnar er haldinn í tengslum við fjölþjóðlegt tveggja ára verkefni um fræðslu fyrir sauðfjárbændur í fimm Evrópulöndum. Verkefninu er ætlað að stuðla að betri nýtingu á tækifærum sem
Skoða betur
20.06.2011

17. júní í Búðardal

Í myndasafnið eru nú komnar myndir frá Tona teknar við 17. júní hátíðarhöld í Búðardal.
Skoða betur
17.06.2011

Afmælisveisla og nafnasamkeppni

Í tilefni af afmæli Eddu-hótelanna laugardaginn 18. júní verður boðið upp á sérstakan afmælismatseðil á Laugum í Sælingsdal. Starfsfólk Hótel Eddu að Laugum í Sælingsdal hefur nú veitt gamla samkomusalnum í Laugaskóla verðskuldaða andlitslyftingu. Komið hefur verið upp verönd í garðinum þar sem þægilegt er að sitja á góðviðrisdögum og njóta veitinga. Af þessu tilefni er efnt til hugmyndasamkeppni um
Skoða betur
15.06.2011

Dagur hinna villtu blóma og frændaleikar.

Sunnudaginn 19. júní verður mikið um að vera í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd. Fyrst verða frændaleikar kl. 13 og síðan haldið upp á dag hinna villtu blóma kl. 16. Frændaleikar Í tilefni ættarmóts Alexanders Loftssonar og Jófríðar Jónsdóttur í Frakkanesi verða haldnir frændaleikar í Ytri-Fagradal. Meðal afkomenda Alexanders og Jófríðar eru nokkrir stæðilegir karlmenn (og kvenmenn) sem ætla að bera saman
Skoða betur
14.06.2011

Assa opnar 17. júní

Þar má finna fjölbreytt handverk, nytjahluti margskonar, prjónahorn, leiksvæði fyrir börnin og kaffi á könnunni. Opið verður allar helgar í sumar kl. 13-18 og á virkum dögum í júlí kl. 13-18.
Skoða betur
10.06.2011

Sveitarstjórnarfundur

75. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn fimmtudaginn 16. júní 2011 og hefst kl. 16:00 í Stjórnsýsluhúsinu í Búðardal. Dagskrá 1. Skýrsla sveitarstjóra. 2. Fundargerð sveitarstjórnar frá 19. maí 2011. Fundargerðir til staðfestingar 3. Fundargerð byggðarráðs frá 14. júní 2011. 4. 18. fundargerð félagsmálanefndar frá 5. apríl 2011. 5. 19. fundargerð félagsmálanefndar frá 7. júní 2011. Fundargerðir til kynningar 6. Fundargerð
Skoða betur
Fréttir.