14.08.2017
Íslandsmeistaramót í hrútadómum 2017
Fimmtánda Íslandsmeistaramótið í hrútadómum verður sunnudaginn 20. ágúst kl. 14 í Sævangi á Ströndum. Þessi íþróttagrein sem í daglegu tali er kölluð hrútaþukl er uppfinning Strandamanna og hefur verið haldin árlega á Sauðfjársetrinu frá árinu 2003. Á síðasta ári mættu um 500 manns til að horfa á keppnina og yfir 70 tóku þátt. Kaffihlaðborð og kjötsúpa verður í boði á
Skoða betur