Fréttir.

24.10.2016

Leikskólakennari -afleysing

Vegna veikinda vantar leikskólakennara við Auðarskóla frá og með 31. október til 31. desember. Hæfniskröfur eru áhugi á skólastarfi, góð samskiptahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í störfum. Hann þarf að vera jákvæður, skapandi og vera virkur hluti liðsheildar. Allar umsóknir verða teknar til skoðunar og þeim svarað. Umsóknarfrestur er til og með 31. október. Nánari upplýsingar veitir Hlöðver Ingi Gunnarsson skólastjóri
Skoða betur
23.10.2016

Kjörfundur

Kjörfundur í Dalabyggð vegna Alþingiskosninga fer fram á Héraðsbókasafni Dalasýslu, Miðbraut 11 í Búðardal laugardaginn 29. október 2016. Kjörfundur hefst klukkan 10:00. Kjörfundi verður slitið kl. 20:00. Kjósendur eru minntir á að hafa með sér skilríki. Kjörstjórn Dalabyggðar
Skoða betur
22.10.2016

Sveitarstjórn Dalabyggðar

141. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu 25.10.2016 og hefst kl. 19:00 Dagskrá Almenn mál 1. Breiðafjarðarnefnd – ósk um tilnefningar 2. Form og efni viðauka við fjárhagsáætlun 3. Alþingiskosningar 2016 – kjörskrá 4. Snorraverkefnið 2017 5. Frárennslismál 6. Sala eigna – Laugar í Sælingsdal 7. Kosning í nefndir,ráð og stjórnir Almenn mál – umsagnir og vísanir 8. Samgönguáætlun Vesturlands
Skoða betur
22.10.2016

Haustfagnaður FSD 2016 – úrslit

Nú eru úrslit ljós á Haustfagnaði FSD. Hafliði Sævarsson er Íslandsmeistari í rúningi. Besti hrúturinn á sýningum var lambhrútur nr. 13 á Bæ í Miðdölum. Besta fimm vetra ærin var síðan Brú nr. 11-168 á Klifmýri á Skarðsströnd. Íslandsmeistarmótið í rúningi 1. Hafliði Sævarsson 2. Þórður Gíslason 3. Steinar Haukur Kristbjörnsson 4. Arnar Freyr Þorbjarnarson 5. Guðmundur Þór Guðmundsson 6.
Skoða betur
21.10.2016

Sýsluskrifstofan lokuð

Mánudaginn 24. október verður Sýsluskrifstofan í Búðardal lokuð.
Skoða betur
20.10.2016

Lambhrútasýningar FSD

Lambhrútasýningarnar eru tvær vegna sauðfjárveikivarna. Sú fyrri er í Dalahólfi á föstudeginum og sú síðari á laugardagsmorgni fyrir Vesturlandshólf. Keppt er í flokkum hyrndra, kollóttra og mislitra/ferhyrndra hrúta. Sýningaskrá er tilbúin. Skráðir eru 90 hrútar til keppni og 8 gimbrar. Í lok hvers flokks gefst mönnum tækifæri til að þukla á hrútunum og leggja sitt eigið mat á niðurstöður dómaranna.
Skoða betur
20.10.2016

Íslandsmeistaramótið í rúningi

Áttunda Íslandsmeistaramótið í rúningi verður haldið á haustfagnaði FSD laugardaginn 22. október í reiðhöllinni í Búðardal. Keppendur verða Arnar Freyr Þorbjörnsson, Guðmundur Þór Guðmundsson, Hafliði Sævarsson, Jón Atli Jónsson, Stefán Bragi Birgisson, Steinar Haukur Kristbjörnsson og Þórður Gíslason. Tvær umferðir eru og er betri umferðin látin gilda. Þrír bestu keppa síðan til úrslita. Úrslit og verðlaunaafhending verða að lokinni keppni.
Skoða betur
19.10.2016

Kjörskrá vegna Alþingiskosninga

Kjörskrá Dalabyggðar vegna kosninga til Alþingis laugardaginn 29. október 2016 liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagins alla virka daga kl. 10-14. Einnig geta kjósendur séð hvar þeir eru á kjörskrá á vefnum www.kosning.is. Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir áttu skráð lögheimili fimm vikum fyrir kjördag, 24. september síðastliðinn. Flutningur lögheimilis eftir þann tíma breytir ekki skráningu
Skoða betur
14.10.2016

Félag eldri borgara í Dölum og Reykhólahreppi

Vetrarstarf félagsins er nú hafið með nokkuð hefðbundnu sniði. Eldri borgarar eru hvattir til að taka þátt í starfi félagsins. Dagskrá haustið 2016 Mánudagar Gönguhópur og spjall á Silfurtúni Kóræfingar kl. 17:00 Þriðjudagar Sund á Laugum kl. 15:30-17:00 Miðvikudagar Aðgangur í tækjasal Umf. Ólafs páa kl. 11:00-13:00 Fimmtudagar Opið hús í Rauðakrosshúsinu – 6. október kl. 13:00-15:30 Félagsvist í Rauðakrosshúsinu
Skoða betur
13.10.2016

Lokað í Lyfju

Lokað verður í útibúi Lyfju í Búðardal fimmtudaginn 20. október og föstudaginn 21. október vegna árshátíðarferðar starfsmanna til Berlínar. Ekki tókst að manna útibúið í Búðardal og aðrar lyfsölur Lyfju verða keyrðar á lágmarksmönnun þessa daga. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Starfsmenn Lyfju
Skoða betur
13.10.2016

MS Búðardal – nám í mjólkuriðn

MS Búðardal óskar eftir áhugasömum aðila á námssamning sem nemi í mjólkuriðn. Nám í mjólkuriðn er þriggja ára iðnnám og fer bóklegur hluti þess fram í Danmörku. Æskilegt er að viðkomandi aðili sé búsettur í Dalabyggð eða hafi áhuga á búsetu þar. Viðkomandi aðili skuldbindir sig til að starfa hjá MS Búðardal að námi loknu. Störf í mjólkuriðn henta báðum
Skoða betur
11.10.2016

Viðvera atvinnuráðgjafa

Atvinnuráðgjafi SSV verður með viðveru í Búðardal fyrsta þriðjudag hvers mánuðar kl. 13-15 í vetur. Ólafur Sveinsson verður hér í Dölum þriðjudagana 1. nóvember, 6. desember, 3. janúar, 7. febrúar, 7. mars, 4. apríl og 2. maí. Hægt er að panta tíma hjá honum í síma 892 3208. Þá má panta heimsókn hjá atvinnuráðgjafa utan auglýsts viðverutíma hjá skrifstofu SSV
Skoða betur
Fréttir.