Fréttir.

07.01.2016

Félagsvist í Árbliki

Kvenfélagið Fjóla stendur fyrir félagsvist í Árbliki föstudaginn 8. janúar kl. 20. Aðgangseyrir er 1.000 kr fyrir fullorðna, en frítt fyrir 14 ára og yngri. Innifalt í aðgangseyri eru kaffiveitingar að lokinni spilamennsku.
Skoða betur
07.01.2016

Leifsbúð – þjónustusamningur

Dalabyggð hefur endurnýjað þjónustusamning við Valdísi Gunnarsdóttur um rekstur upplýsingamiðstöðvar í Leifsbúð en hún hefur séð um reksturinn frá 1. mars 2014. Með nýjum samningi eru settar nýjar áherslur. Dregið er úr vægi upplýsingamiðlunar til ferðamanna yfir vetrartímann en aukin áhersla lögð á kynningarmál og samvinnu ferðaþjónustuaðila. Þjónusta við félag eldri borgara verður óbreytt frá fyrra ári. Á tímabilinu 1.
Skoða betur
30.12.2015

Lýsing á deiliskipulagstillögu á Laugum

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fund sínum þann 15. desember að auglýsa lýsingu á nýrri deiliskipulagstillögu skv. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Laugar í Sælingsdal er fornfrægur sögustaður sem hefur upp á að bjóða fjölbreytt náttúrufar og landslag til náttúruskoðunar og útivistar. Jarðhiti er nýttur á svæðinu til húshitunar og til heilsuræktar. Laugar eru um 50 ha að stærð
Skoða betur
28.12.2015

Áramótabrennur

Árleg brenna í Búðardal verður á gamla fótboltavellinum. Kveikt verður í brennunni kl. 20:30. Brennan í Saurbænum verður að þessu sinni í landi Bjarnastaða í Staðarhólsdal. Kveikt verður í brennunni um miðnætti.
Skoða betur
26.12.2015

Byggðasafn Dalamanna – sögustundir

Sunnudaginn 27. desember verður næsta sögustund á safninu. Þá verða álfar og annað tengt áramótum á dagskrá. Allir eru velkomnir, aðgangseyrir er 500 kr og kaffi á könnunnni fyrir þá sem það vilja.
Skoða betur
23.12.2015

Gleðileg jól

Sveitarstjórn Dalabyggðar óskar íbúum Dalabyggðar gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Skoða betur
23.12.2015

Félagsvist í Tjarnarlundi

Ungmennafélagið Stjarnan stendur fyrir félagsvist í Tjarnarlundi laugardaginn 26. desember, annan í jólum, og hefst hún kl. 20. Aðgangseyrir 700 kr. Sjoppa verður á staðnum, en enginn posi.
Skoða betur
22.12.2015

Skólastjóri Auðarskóla

Staða skólastjóra við Auðarskóla í Búðardal er laus til umsóknar. Leitað er að einstaklingi sem er tilbúinn til að viðhalda og byggja upp öflugt skólasamfélag af metnaði og dugnaði með virðingu og ánægju að leiðarljósi. Markmið og verkefni • Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi, fjárhagsáætlunum og rekstri skólans • Fagleg forysta skólastofnunarinnar • Stuðla að framþróun skólastarfsins • Ráðningar
Skoða betur
22.12.2015

Messur um jól

Messað verður í flestum kirkjum í Dalabyggð um jólahátíðina, auk Fellsenda og Silfurtúni. Aðfangadagur 24. desember Jólastund á Hjúkrunarheimilinu Fellsenda kl. 14. Aftansöngur í Hjarðarholtskirkju í Laxárdal kl. 18. Jóladagur 25. desember Jólastund á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Silfurtúni kl. 13. Hátíðarguðþjónusta í Hvammi í Hvammssveit kl. 15. Hátíðarguðþjónusta á Staðarfelli á Fellsströnd kl. 17. Annar í jólum 26. desember Hátíðarguðþjónusta
Skoða betur
22.12.2015

Skrifstofa Dalabyggðar

Skrifstofa Dalabyggðar verður lokuð á aðfangadag og gamlársdag.
Skoða betur
22.12.2015

Fjárhagsáætlun Dalabyggðar 2016-2019

Fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2016-2019 var samþykkt á fundi sveitarstjórnar 15. desember. Álagningarhlutfall útsvars á árinu 2016 verður jafnt lögbundnu hámarki eins og það er á hverjum tíma. Gert er ráð fyrir að lögbundið hámark verði 14,52% frá 1. janúar 2016 samkvæmt nýgerðu samkomulagi ríkis og sveitarfélaga til fjármögnunar þjónustu við fatlað fólk. Álagningarhlutfall fasteignaskatts og lóðarleiga verður óbreytt frá
Skoða betur
15.12.2015

Leikskóladeild Auðarskóla

Inntaka 12 mánaða barna á leikskólann hófst í byrjun október og hefur gengið vel. Framkvæmdir á leikskólalóðinni vegna þessa eru komnar á góðan rekspöl en þeim er ekki lokið. Þá eru ýmsar breytingar á skipulagi innra starfsins að taka á sig mynd í kjölfar þessara breytinga. Búast má við að það taki leikskólann nokkra mánuði í viðbót að aðlaga starfsemi
Skoða betur
Fréttir.