Fréttir.

24.10.2015

Haustfagnaður FSD 2015 – úrslit

Öll úrslit eru nú komin í ljós í öllum keppnisgreinum á Haustfagnaði FSD. Tvennt er þó óbreytt frá fyrra ári. Hafliði er Íslandsmeistari í rúningi og Monika og Halldór í Rauðbarðaholti áttu fallegasta hrút sýningarinnar. Íslandsmeistarmótið í rúning 1. Hafliði Sævarsson, Fossárdal 2. Guðmundur Þór Guðmundsson, Kvennabrekku 3. Julio Gutierrez, Hávarsstöðum 4. Steinar Haukur Kristbjörnsson, Tröð 5. Baldur Stefánsson, Klifshaga
Skoða betur
24.10.2015

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 129. fundur

129. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 27. október 2015 og hefst kl. 17. Dagskrá Almenn mál 1. Verndaráætlun fyrir Breiðafjörð 2014-2019 2. Þjóðlendukrafa – Svæði 9 Fundargerðir til staðfestingar 3. Umhverfis- og skipulagsnefnd – 59 3.1. Svalbarð – Umsókn um landskipti 3.2. Svalbarð – Umsókn um stofnun lóðar 3.3. Gerð svæðisskipulags – Verkefnistillaga 4. Fræðslunefnd Dalabyggðar
Skoða betur
22.10.2015

Haustfagnaður FSD 2015

Árlegur haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu verður 23. – 24. október hér í Dölum. Dagskrá hátíðarinnar er í nokkuð föstum skorðum, en þó alltaf eitthvað nýtt. Stærsta breytingin í ár er keppni um fegurstu gimbrina. Hátíðin hefst á lambahrúta- og gimbrasýningu á Kjarlaksvöllum í Saurbæ föstudaginn 23. október kl. 12. Þar kemur úrval hrúta og gimbra norðan girðingar til sýningar.
Skoða betur
20.10.2015

Sorphreinsun frestast

Sorphreinsun sem fara átti í dag, þriðjudaginn 20. október, seinkar til miðvikudags vegna bilunar í sorpbíl. Gámaþjónusta Vesturlands biðst afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Skoða betur
13.10.2015

Sjö vikna íþróttanámskeið hjá UDN

UDN stendur fyrir fjölbreyttu úrvali af íþróttum næstu sjö vikurnar á Laugum. Æfingarnar fyrir miðstig og unglingastig verða á þriðjudögum kl. 16:30-18:30 og fimmtudögum kl 15:30-17:15. Auk þess annan hvorn laugardag kl. 10:00-12:00 fyrir yngsta stig, miðstig og unglingastig. Þ.e. laugardagana 17. október, 31. október, 14. nóvember og 28. nóvember. Yngsta stig fær æfingar á gæslutíma á þriðjudögum og fimmtudögum
Skoða betur
12.10.2015

Silfurtún – laust starf við aðhlynningu

Óskað er eftir starfsmanni á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Silfurtún í Búðardal. Um er að ræða 70% starf við aðhlynningu og unnið er á vöktum. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Eyþór J. Gíslason rekstrarstjóri í síma 898 1251. Umsóknir berist á netfangið eythor @dalir.is fyrir 15. október 2015.
Skoða betur
12.10.2015

Silfurtún – laust starf í mötuneyti

Óskað er eftir aðstoðarmatráði á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Silfurtún í Búðardal. Um er að ræða 50% starf í vaktavinnu, unnið aðra hvora helgi, á tímabilinu 15. október til 31. desember 2015. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Eyþór J Gíslason rekstrarstjóri í síma 898 1251. Umsóknir berist á netfangið eythor @dalir.is
Skoða betur
09.10.2015

Aðstoðarleikskólastjóra vantar við Auðarskóla

Laus er staða aðstoðarleikskólastjóra við leikskóladeild Auðarskóla. Auðarskóli, sem er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli, er staðsettur í Búðardal. Einkunnarorð skólans eru: Ábyrgð – Ánægja – Árangur. Leikskólinn er tveggja deilda og að jafnaði dvelja þar 35 – 40 börn frá 12 mánaða aldri. Húsnæði leikskólans er nýlegt og aðstaða og aðbúnaður góður. Næsti yfirmaður aðstoðarleikskólastjóra er skólastjóri. Við leitum
Skoða betur
08.10.2015

Starfsmaður óskast í félagslega liðveislu í Dalabyggð

Markmið liðveislu er að efla einstaklinga til sjálfshjálpar, veita persónulegan stuðning og aðstoð sem miðar að því að rjúfa félagslega einangrun. Við leitum að hressum einstaklingi, 18 ára eða eldri. Sveigjanlegur vinnutími en um er að ræða 12-16 tíma á mánuði. Umsóknir sendist á netfangið vildis@borgarbyggd.is eða á skrifstofu Borgarbyggðar Borgarbraut 14, 310 Borgarnes. Nánari upplýsingar veitir Inga Vildís Bjarnadóttir
Skoða betur
08.10.2015

Stéttarfélag Vesturlands

Skrifstofa Stéttarfélags Vesturlands í Búðardal verður lokuð í dag. Næstu opnunardagar eru 15. og 29. október kl. 9:30-12:30. Stéttarfélag Vesturlands
Skoða betur
06.10.2015

Lengd gæsla grunnskólabarna – laust starf

Störf frístundaleiðbeinanda við lengda gæslu grunnskólabarna á yngsta stigi eru laus til umsóknar. Vinnutími er að hámarki kl. 15:00 – 17:30 mánudaga til fimmtudaga og 12:00 – 17:30 á föstudögum en getur verið styttri. Áhugasamir hafi samband við sveitarstjóra á skrifstofu Dalabyggðar sem fyrst.
Skoða betur
06.10.2015

Draugasaga í Sævangi

Miðvikudagskvöldið 7. okt. verður einleikurinn Draugasaga frumsýndur í félagsheimilinu Sævangi við Steingrímsfjörð á Ströndum. Það er Leikfélag Hólmavíkur sem setur verkið upp í samvinnu við Sauðfjársetur á Ströndum. Leikritið Draugasaga er eftir Jón Jónsson á Kirkjubóli og var skrifað á síðasta ári. Það byggir á þjóðsögum af svæðinu, sígildri mannvonsku og margvíslegum myrkraverkum fyrri alda. Verkið er ekki við hæfi
Skoða betur
Fréttir.