Fréttir.

11.09.2014

Kammerkórinn Hymnodia

Kammerkórinn Hymnodia frá Akureyri heldur tónleika í Dalabúð laugardaginn 13. september kl. 20. Kórstjóri er Eyþór Ingi Jónsson frá Miðgarði. Aðgangseyrir er 2.000 kr. Kórinn syngur, spilar á alls kyns skrýtin og skemmtileg hljóðfæri, hefur uppi glens og grín, leikræn tilþrif og jafnvel dans ef vel liggur á. Brjálaði barítóninn, drynjandi geðlæknirinn, fljúgandi Hollendingurinn, sænski grunnskólakennarinn, lagvissi lögfræðingurinn, tölvuóði trompetleikarinn
Skoða betur
09.09.2014

Lokahóf UDN í frjálsum íþróttum og fótbolta

Lokahóf UDN í frjálsum íþróttum og fótbolta verður haldið við Íþróttahúsið á Reykhólum fimmtudaginn 11. september, klukkan 19. Þetta er uppgjör sumarsins og verða m.a. veittar viðurkenningar fyrir góða mætingu á æfingar og mót, þátttökuverðlaun fyrir mætingu á kvöldmót, viðurkenningar fyrir besta afrek karla og besta afrek kvenna í sumar, viðurkenning fyrir mestar framfarir milli ára og allir fá plagg
Skoða betur
09.09.2014

Háls-, nef- og eyrnalæknir

Þórir Bergmundsson háls-, nef- og eyrnalæknir verður með móttöku á heilsugæslustöðinni í Búðardal mánudaginn 15. september. Tímapantanir eru í síma 432 1450.
Skoða betur
06.09.2014

Draugar og tröll og ósköpin öll

Þjóðtrúarkvöldvaka verður haldin í Sauðfjársetrinu í Sævangi laugardagskvöldið 6. september kl. 20 og eru allir sem áhuga hafa velkomnir. Yfirskriftin á kvöldvökunni er Draugar og tröll og ósköpin öll. Verða haldin nokkur skemmtileg og fróðleg erindi um þjóðtrú og þjóðsögur, auk þess mun Íris Björg Guðbjartsdóttir á Klúku flytja eigin lög. Einnig verður kvöldkaffi á boðstólum sem enginn verður svikinn
Skoða betur
03.09.2014

Skátastarfið er að hefjast

Fyrstu skátafundir eru hjá fálkaskátum er 4. september og dróttskátum 11. september. Fálkaskátar 5.-7. bekkur Fyrsti skátafundur er fimmtudaginn 4. september í skátaherberginu. Vikulegir skátafundir eru í gæslubili skólans, kl. 13:50-15:05. Flestir skátafundir verða haldnir í Dalabúð en einu sinni í mánuði verður haldinn skátafundur að Laugum. Fyrsti fundur er öllum opinn, kynning á því sem verður á dagskrá í
Skoða betur
26.08.2014

Byggðasafn Dalamanna – sögustund

Áætlað er að hafa safnið opið annan hvorn sunnudag í vetur með sögustund um ákveðið málefni eða annað sem upp kemur. Sunnudaginn 31. ágúst er síðasti opnunardagur safnsins í sumaropnun og þá verður fjallað um verslun í Skarðsstöð um kl. 14. Skarðsstöð var fyrsti löggilti verslunarstaðurinn í Dalasýslu, þann 1. apríl 1884. Verslunarsaga Skarðsstöðvar er um margt athyglisverð bæði fyrir
Skoða betur
26.08.2014

Opið hús í Röðli og tónleikar í Skarðskirkju

Laugardaginn 30. ágúst verður opið hús í félagsheimilinu Röðli á Skarðsströnd kl. 15 – 19 og tónleikar í Skarðskirkju kl. 20. Samkomuhúsið Röðull á 70 ára vígsluafmæli í ár. Síðustu ár hefur verið unnið að endurbótum á húsinu. Búið er að setja nýja glugga og útidyrahurð í húsið. Í sumar verður skipt um járn á þakinu, en verkefnið fékk styrk
Skoða betur
22.08.2014

Sveitarstjórn Dalabyggðar 116. fundur

116. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 26. ágúst 2014 og hefst kl. 17. Dagskrá Almenn mál 1. Skoðanakönnun um sameiningu sveitarfélaga 2. Sturla Þórðarson 1214-2014 3. Markaðsstofa Vesturlands – Samstarfsverkefni 2014-2015 Fundargerðir til staðfestingar 4. Byggðarráð Dalabyggðar – 145 4.1. Samgöngur og fjarskipti í Gilsfirði 5. Fundargerð 29. fundar félagsmálanefndar 6. Byggðarráð Dalabyggðar – 146 7.
Skoða betur
20.08.2014

Héraðsbókasafn Dalasýslu

Héraðsbókasafn Dalasýslu hefur nú aftur opnað á hefðbundnum tímum eftir sumarleyfi bókavarðar. Bókasafnið er opið á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13-18.
Skoða betur
15.08.2014

Tilkynning frá Sýslumanninum í Búðardal

Þjóðskrá Íslands hefur að höfðu samráði við Innanríkisráðuneytið látið taka niður búnað til móttöku umsókna um vegabréf á skrifstofu sýslumannsins í Búðardal. Er því ekki unnt að taka við umsóknum um vegabréf þar. Umsækjendum er bent á að snúa sér til nærliggjandi sýslumannsembætta með umsóknir sínar. Sýslumaðurinn í Búðardal
Skoða betur
13.08.2014

Helgin 15. – 17. ágúst

Heldur rólegra verður í Dölunum þessa helgi en þá síðustu, en ýmislegt um að vera í nágrenninu. Danskir dagar verði í Stykkishólmi, Íslandsmótið í hrútadómum í Sævangi á Ströndum og á Laugum verða Ellen, Eyþór og kvöldverður á Hótel Eddu. Danskir dagar í Stykkishólmi Bæjarhátíð Hólmara, Danskir dagar, verður haldin helgina 15.-17. ágúst í tuttugasta skiptið. Á dagskrá hátíðarinnar er
Skoða betur
07.08.2014

Fjallskil

Fjallskilaskyldir aðilar þurfa að hafa samband við viðkomandi fjallskilanefnd fyrir 11. ágúst til að leiðrétta fjártölur, að öðrum kosti verður miðað við hausttölur við ákvörðun fjallskila. Upplýsingar um skipan fjallskilanefnda er að finna í síðasta Dalapósti og hér á vefnum undir stjórnsýsla -> stjórnir, ráð og nefndir -> fjallskilanefndir. Vakin er athygli á að fjallskilanefndir Suðurdala og Haukadals hafa verið
Skoða betur
Fréttir.