Fréttir.

07.08.2014

Fjallskil

Þeir sem þurfa að leiðrétta fjártölur eru beðnir að hafa samband við viðkomandi fjallskilanefndir fyrir 11. ágúst nk.Að öðrum kosti verður notast við hausttölur við ákvörðun fjallskila.
Skoða betur
06.08.2014

Helgin 9.-10. ágúst

Um helgina verður árleg kvennareið, Hnúksneshátíð, Ólafsdalshátíð, tónleikar á Laugum og síðustu forvöð að sjá myndlistasýninguna Dalir og hólar- Litur.   Dalir og hólar 2014 Síðasta sýningarvika er nú á Dalir og hólar 2014. Þema sýningarinnar er litur. Sýningarstaðir eru Byggðasafn Dalamanna á Laugum í Sælingsdal, Skarðsstöð á Skarðsströnd, Ytri-Fagridalur á Skarðsströnd,Staðarhóll í Saurbæ, Ólafsdalur í Gilsfirði, gamla kaupfélagshúsið í
Skoða betur
28.07.2014

Ólafsdalur

Í Ólafsdal er tekið á móti gestum alla daga fram til 10. ágúst kl. 12 – 17. Ólafsdalshátíð verður sunnudaginn 10. ágúst. Ólafsdalur og sýningar 2014 Auk þess að skoða skólahúsið sjálft, jarðræktarminjar og fallega náttúruna er þar hægt að skoða sýningar í skólahúsinu. Sýning um Bændaskólann í Ólafsdal 1880-1907 og önnur um nám og störf kvenna í Ólafsdal. Myndlistasýningin
Skoða betur
28.07.2014

Auðarskóli – laust starf

Við Auðarskóla vantar kennara í um 75-80 % starf fyrir næsta skólaár. Um er að ræða kennslu á yngsta stigi. Til greina kemur að ráða leiðbeinanda til starfa. Áhugasamir hafi samband við Eyjólf Sturlaugsson skólastjóra í síma 899 7037 eða á netfangið eyjolfur @audarskoli.is
Skoða betur
27.07.2014

Sögustund með Einari

Í tilefni af Sturluhátíð býður Hótel Edda á Laugum í Sælingsdal upp á sögustund með Einari Kárasyni þar sem hann mun tengja söguna við svæðið á sinn einstaka hátt. Sögustundin hefst klukkan 21 og er aðgangur ókeypis. Hótel Edda Laugum
Skoða betur
24.07.2014

Sturluhátíð

Í tilefni þess að í ár eru liðin 800 ár frá fæðingu Sturlu Þórðarsonar sagnaritara og skálds er íbúum Dalabyggðar og gestum þeirra hér með boðið til Sturluhátíðar. Hátíðin fer fram í félagsheimilinu Tjarnarlundi í Saurbæ sunnudaginn 27. júlí og hefst kl. 13:30. Í lok hátíðarinnar, um kl. 15:30, verður haldið að Staðarhóli þar sem Sturla bjó um árabil og
Skoða betur
24.07.2014

Dalamenn á frímerkjum

Í 800 ára minningu Dalamannsins Sturlu Þórðarsonar sagnaritara á Staðarhóli verður gefið út sérstakt frímerki þann 11. september. Myndefni frímerkisins er Hákonar saga, stílfærður víkingahjálmur og fjarðurpennaoddur. Hönnuður merkisins er Örn Smári Gíslason. Og í 350 ára minningu Dalamannsins Árna Magnússonar handritasafnara verður sameiginleg útgáfa Íslands og Danmerkur á frímerki 28. ágúst. Myndefnin eru fengin úr handritum á Stofnun Árna
Skoða betur
15.07.2014

Grísalappalísa og Dj Flugvél og Geimskip á Laugum

Grísalappalísa og Dj Flugvél og Geimskip blása til veislu á Laugum í Sælingsdal sunnudaginn 20. júlí, kl. 21. Grísalappalísa er með glænýja plötu í farteskinu sem ber nafnið Rökrétt framhald og hefur nú þegar fengið glimrandi góðar viðtökur frá helstu tónlistarspekúlöntum landsins og sveitin hlaut verðlaun sem besta tónleikasveit ársins 2013. Með sveitinni í för er Steinunn Eldflaug Harðardóttir, betur
Skoða betur
15.07.2014

Tómas R. og Ómar á Laugum í Sælingsdal

Tómas R. Einarsson og Ómar Guðjónsson munu troða upp á Hótel Eddu, Laugum í Sælingsdal, fimmtudaginn 17. júlí. Sveifludjass mun verða þar í aðalhlutverki. Réttur dagsins að þessu sinni verður kræklingasúpa og ostaborð sem enginn má láta framhjá sér fara. Salurinn opnar kl. 19 og er aðgangur ókeypis. Borðapantanir eru í síma 444 4930. Hótel Edda Laugum – tónleikar
Skoða betur
15.07.2014

Svavar Knútur í Erpsstaðafjósinu

Fjóstónleikar Svavars Knúts verða á Erpsstöðum, fimmtudaginn 17. júlí kl. 20:30. Aðgangaseyrir er 1.500 kr og kaffisala. Gestir hafi með sér stól til að sitja á og klæðnaður fer eftir veðri og vindum. Nánari upplýsingar er að fá hjá Rjómabúinu Erpsstöðum. Fjóstónleikar Svavars Knúts
Skoða betur
09.07.2014

Dalir og hólar 2014

Dalir og hólar 2014 – LITUR er myndlistasýning í Dölum og Reykhólasveit frá 5. júlí til 10. ágúst. Á sýningunni eru verk eftir myndlistamennina Bjarka Bragason, Eygló Harðardóttur, Gerd Tinglum, Loga Bjarnason og Tuma Magnússon. Sýningarstjórar eru Sólveig Aðalsteinsdóttir og Þóra Sigurðardóttir. Sýningin kallast á við fyrri Dala og hóla-sýningar að því leyti að hún hefur að markmiði að taka
Skoða betur
04.07.2014

Samþykkt deiliskipulags fyrir nýjan urðunarstað í landi Höskuldsstaða

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti 1. júlí 2014 deiliskipulag fyrir nýjan urðunarstað í landi Höskuldsstaða. Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust og hefur þeim, sem gerðu athugasemdir, verið send umsögn sveitarstjórnar. Deiliskipulagið er samþykkt með þeirri breytingu að lóð til sorpurðunar er minnkuð í 2,5 ha og byggingarreitur minnkaður til samræmis. Vegtenging var færð vegna
Skoða betur
Fréttir.