10.05.2014Óhlutbundnar kosningar Engir listar bárust kjörstjórn Dalabyggðar vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí næstkomandi og verða því óhlutbundnar kosningar (persónukjör).Skoða betur
08.05.2014Sveitarstjórn Dalabyggðar 112. fundur 112. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 13. maí 2014 og hefst kl. 18. Dagskrá Almenn mál 1. Ársreikningur 2013 – síðari umræðu Almenn mál – umsagnir og vísanir 2. Rekstrarleyfi fyrir Hvítadal 2 08.5.2014 Sveinn Pálsson, sveitarstjóriSkoða betur
08.05.2014Söfnunarlok sjúkraflutningaaðila Sjúkraflutningamenn í Dalabyggð vilja koma á framfæri þakklæti fyrir afar góðar undirtektir við söfnun fyrir sjálfvirku hjartahnoðtæki (Lúkas) í sjúkrabifreiðina. Söfnuninni er nú lokið og af því tilefni er íbúum Dalabyggðar boðið í Leifsbúð laugardaginn 10. maí kl. 16-18. Hjartahnoðtæki af þessari gerð hefur hlotið nafnið Lúkas, er þar vísað til að notkun þess jafngildir viðbótarmanni við endurlífgun. Tækið sérSkoða betur
08.05.2014Skráning lögheimilis Mikilvægt er fyrir kjósendur að skráning lögheimilis sé rétt á viðmiðunardegi kjörskrár, laugardaginn 10. maí, þar sem af því ræðst í hvaða kjördeild eða sveitarfélagi viðkomandi á að greiða atkvæði. Óheimilt er að breyta skráningu í kjörskrá ef tilkynning um nýtt lögheimili hefur ekki borist Þjóðskrá Íslands fyrir viðmiðunardag. Síðustu forvöð að tilkynna um nýtt lögheimili til Þjóðskrár eru föstudaginnSkoða betur
08.05.2014Sýsluskrifstofa Skrifstofa sýslumannsins í Búðardal verður lokuð föstudaginn 9. maí vegna námskeiðs.Skoða betur
06.05.2014Garðland Garðland fyrir grænmetisræktun í Búðardal er í námunda við vatnstankinn. Íbúum Dalabyggðar er frjálst að helga sér reit á svæðinu til afnota sumarlangt endurgjaldlaust, en eru beðnir að gæta hófs varðandi stærð þannig að sem flestir áhugasamir geti nýtt sér svæðið.Skoða betur
06.05.2014Bæjarhreinsun í Búðardal Árleg vorhreinsun skátafélagsins Stíganda verður á fimmtudaginn. Umhverfisdagur Skátafélagið Stígandi stendur fyrir árlegri hreinsun í Búðardal fimmtudaginn 8. maí og hefst hún kl. 15. Íbúar í Búðardal og forsvarsmenn fyrirtækja eru hvattir til að taka þátt í deginum og hreinsa lóðir sínar og nánasta umhverfi. Garðaúrgangur Íbúar geta losað garðaúrgang á gamla gámasvæðinu við Vesturbraut. Gras og trjáafklippur eiga aðSkoða betur
05.05.2014Íbúafundur Íbúafundur verður haldinn í Dalabúð miðvikudaginn 7. maí kl. 20. Dagskrá 1. Ársreikningur Dalabyggðar 2013 2. Fjárhagsáætlun Dalabyggðar 2014 3. Markaðs- og ferðamál Íbúar eru hvattir til að mæta. Sveitarstjórn DalabyggðarSkoða betur
02.05.2014Sveitarstjórnarkosningar Sveitarstjórnarkosningar fara fram 31. maí næstkomandi. Upplýsingar um flest er lýtur að þeim er að finna á kosningavef innanríkisráðuneytisins. Kjörskrá Á kjörskrá skal taka alla íslenska ríkisborgara sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag, 31. maí 2014, og sem skráðir eru með lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi þremur vikum fyrir kjördag, 10. maí 2014. Óheimilt er því að breyta kjörskráSkoða betur
30.04.2014Fyrsti maí í Dalabyggð Stéttarfélag Vesturlands og Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu standa saman að samkomu í Dalabúð, Búðardal á baráttudegi verkalýðsins og hefst dagskráin kl. 14:30. Kynnir verður Helga Hafsteinsdóttir formaður SDS og ræðumaður Guðbjörn Arngrímsson formaður Samflots. Keli Cýr flytur eigin lög og ljóð og síðan Hreimur Heimisson. Gestum er boðið uppá kaffiveitingar að dagskrá lokinni.Skoða betur
29.04.2014Vinnuskólinn 2014 Minnt er á að umsóknarfrestur um störf í vinnuskólanum rennur út til og með föstudaginn 2. maí. Flokksstjóri vinnuskóla Starf flokksstjóra við Vinnuskóla Dalabyggðar er laust til umsóknar. Æskilegt er að umsækjandi sé 20 ára eða eldri, hafi reynslu af því að að vinna með börnum og hafi bíl til umráða. Umsóknareyðublöð eru á www.dalir.is og á skrifstofu Dalabyggðar. UmsóknarfresturSkoða betur
29.04.2014Brothættar byggðir Byggðastofnun hefur frá árinu 2012 staðið fyrir verkefninu „Brothættar byggðir“ þar sem unnið er að bættri stöðu byggðarlaga í vanda með víðtæku samstarfi við íbúa, sveitarfélög, atvinnuþróunarfélög, landshlutasamtök sveitarfélaga og fleiri aðila. Meginmarkmið verkefnisins á hverjum stað eru skilgreind af verkefnisstjórn á grundvelli umræðna og forgangsröðunar á íbúaþingum sem ætlað er að virkja frumkvæði íbúa og samtakamátt. Verkefnið nær núSkoða betur