Fréttir.

Aðalmynd fyrir “Samstarfssamningur við UDN undirritaður”
04.01.2023

Samstarfssamningur við UDN undirritaður

Í dag var undirritaður samstarfssamningur milli Dalabyggðar og Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN). Markmið samningsins er meðal annars að stuðla að auknu samstarfi á milli UDN og Dalabyggðar á sviði íþrótta- og æskulýðsmála. Þannig verði öllum börnum og ungmennum í sveitarfélaginu gefinn kostur á að taka þátt í fjölbreyttu og uppbyggilegu íþrótta- og æskulýðsstarfi með áherslu á forvarnir og heilsueflingu.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Opið fyrir umsóknir í menningarmálaverkefnasjóð”
04.01.2023

Opið fyrir umsóknir í menningarmálaverkefnasjóð

Menningarmálanefnd Dalabyggðar auglýsir eftir umsóknum í menningarmálaverkefnasjóð. Til úthlutunar 2023 eru 1.000.000 kr.- Hlutverk sjóðsins er að styðja við menningarmál í Dalabyggð og er það gert með því að veita styrki eftir því sem menningarmálanefnd Dalabyggðar telur þjóna markmiðum sjóðsins. Umsækjendur í sjóðinn geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir með lögheimili í Dalabyggð. Umsóknarfrestur er til og með 14.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Afgreiðsla sýslumanns lokuð 3. janúar”
03.01.2023

Afgreiðsla sýslumanns lokuð 3. janúar

Afgreiðsla Sýslumannsins á Vesturlandi í Búðardal verður lokuð í dag, þriðjudaginn 3. janúar 2023.  
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Losun frestast til 4. janúar”
02.01.2023

Losun frestast til 4. janúar

Samkvæmt nýju sorphirðudagatali átti að tæma Grænu og brúnu tunnuna sunnan Búðardal og grænu tunnuna í Búðardal í dag (02.01.2022) en vegna óviðráðnalegra aðstæðna frestast sú losun fram á miðvikudaginn 4. janúar.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Nýtt sorphirðudagatal og breyting á klippikortum”
29.12.2022

Nýtt sorphirðudagatal og breyting á klippikortum

Hér fyrir neðan má sjá og nálgast nýtt sorphirðudagatal fyrir árið 2023. Dagatalið er gefið út með fyrirvara um möguleika á nýju fyrirkomulagi, vegna breytinga á lögum er snerta úrgang og taka gildi 1. janúar 2023. Sveitarfélög hafa svigrúm inn í árið til að laga sig að breyttu regluverki varðandi úrgangsmál og er sú vinna hafin hjá Dalabyggð. Eru íbúar
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “DalaAuður – Hátíðarkveðja”
29.12.2022

DalaAuður – Hátíðarkveðja

Nú í lok árs er rétt að líta yfir farinn veg eftir fyrsta starfsár DalaAuðs. Ýmislegt hefur unnist á þessum mánuðum síðan verkefnið hófst og er einstaklega ánægjulegt að sjá hve mikill kraftur er í íbúum Dalabyggðar. Metfjöldi umsókna bárust í fyrstu úthlutun Frumkvæðissjóðsins og voru verkefnin hvert öðru áhugaverðara. Stefnt er að því að næsta úthlutun verði á vormánuðum
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Áramótabrenna 31. desember 2022”
29.12.2022

Áramótabrenna 31. desember 2022

Björgunarsveitin Ósk í Dalabyggð mun standa fyrir áramótabrennu og flugeldasýningu niðri við sjó í Búðardal kl. 21:00 á Gamlársdag (31. desember). Við biðjum íbúa og gesti um að virða tilmæli sveitarinnar kringum brennu og sýningu. Þurfi að koma til breytinga (s.s. vegna veðurs) verður það tilkynnt hér á heimasíðu Dalabyggðar. Flugeldasala björgunarsveitarinnar er einnig hafin og fer fram í húsnæði
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Jólakveðja frá Dalabyggð”
23.12.2022

Jólakveðja frá Dalabyggð

Sveitarstjórn Dalabyggðar og starfsfólk óska íbúum Dalabyggðar gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir samskiptin á árinu sem er að líða.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Gleymum ekki að flokka yfir hátíðirnar!”
20.12.2022

Gleymum ekki að flokka yfir hátíðirnar!

Þó að við leyfum okkur nokkrum konfektmolum meira en venjulega skulum við ekki bregða út af vananum við flokkun úrgangs yfir komandi hátíðir. Jólapappír fer með pappír og pappa, það er til jólapappír sem flokka á með plasti, hægt er að greina á milli með því að prufa að rífa hann, ef það er ekki hægt, þá fer hann með
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Afgreiðsla sýslumanns lokuð 20. desember”
20.12.2022

Afgreiðsla sýslumanns lokuð 20. desember

Afgreiðsla Sýslumannsins á Vesturlandi í Búðardal verður lokuð í dag, þriðjudaginn 20. desember 2022.  
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sveitarstjórn Dalabyggðar – 229. fundur”
19.12.2022

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 229. fundur

FUNDARBOÐ 229. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn á fjarfundi, miðvikudaginn 21. desember 2022 og hefst kl. 11:00 Dagskrá: Almenn mál 1. 2208006 – Fjárhagsáætlun 2023, álagningarhlutfall útsvars. Í ljósi breytinga á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og heimild varðandi breytt hámark álagningarhlutfall útsvarsstofns sveitarfélaga þar sem að í stað 14,52% í 1. mgr. 23. gr. laganna komi 14,74% þá liggur fyrir
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Frístundastyrkir Dalabyggðar – skil eigi síðar en 15. desember”
14.12.2022

Frístundastyrkir Dalabyggðar – skil eigi síðar en 15. desember

Til að fá frístundastyrk fyrir börn á aldrinum 3 til 18 ára greiddan, þarf að skila umsókn ásamt greiðslukvittunum til skrifstofu Dalabyggðar eigi síðar en 15. desember. Við bendum á að haustið 2022 eru engin takmörk á nýtingu styrksins fyrir börn í 1. – 10. bekk Auðarskóla og styrkurinn fyrir þennan hóp haustið 2022 er 10.000kr. hærri – sjá nánar
Skoða betur
Fréttir.