Rekstur mötuneytis dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns

DalabyggðFréttir

Dalabyggð óskar eftir tilboðum í rekstur mötuneytis dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns. Á heimilinu búa 13 íbúar og starfsfólk er einn til sex á hverri vakt. Um er að ræða fimm máltíðir á sólarhring fyrir íbúa og starfsfólk heimilisins alla daga ársins. Einnig eiga eldri borgarar búsettir í Dalabyggð utan heimilisins kost á að koma í hádegismat eða fá heimsendan mat. …

Ólafsdalshátíð 2020 aflýst

DalabyggðFréttir

Vegna COVID fjöldatakmarkana hefur verið tekin sú ákvörðun að aflýsa þrettándu Ólafsdalshátíðinni sem halda átti 15. ágúst næstkomandi. Áfram verður þó opið fyrir gesti í Ólafsdal alla daga kl. 12.00-17.00 fram til 15. ágúst, en ekki 16. ágúst eins og áður var áformað.

Rotþróahreinsun

DalabyggðFréttir

Rotþróahreinsun mun hefjast í kringum 20. ágúst. Þá verður hreinsað í Hörðudal, Miðdölum og Haukadal.

Víruspóstur í nafni byggingafulltrúa

DalabyggðFréttir

Í morgun barst nokkrum aðilum tölvupóstur með heitinu „Skipulags- og byggingarfulltrúi“ frá netfanginu „byggingarfulltrui@dalir.is“ sem sendur var undir formerkjum þess að pósturinn kæmi frá Byggingarfulltrúanum í Búðardal þar sem skrá er deilt með viðtakendum. Við viljum biðja fólk um að hundsa þennan póst og alls ekki reyna að opna skránna, því síður skrá sig inn til að reyna opna hana.  …

Sögurölt um Mjósyndi

DalabyggðFréttir

Í fimmta sögurölti sumarsins verður gengið um Mjósyndi á Svínadal. Röltið er miðvikudaginn 29. júlí kl. 19:30 og hefst á bílastæði við Hrafnagil, sunnan við Mjósyndi. Við Mjósyndi eru þrjú gil, rétt, útsýni og fleira. Ekki er um langa vegalengd að ræða og megnið af henni þægileg. Auðvelt er að sleppa þeim hluta sem er grýttari. Sögurölt er samstarfsverkefni Byggðasafns …

Viðgerðir á Silfurtúni

DalabyggðFréttir

Auglýst er eftir tilboðum í að skipta um þakklæðningu á norðurálmu Silfurtúns. Þeir sem óska eftir gögnunum skulu senda póst á dalir@dalir.is. Tilboðum skal skilað á skrifstofu Dalabyggðar, merkt „Verðkönnun: Silfurtún þak 2020“, fyrir kl. 12 þriðjudaginn 4. ágúst. Einnig má skila með því að senda tölvupóst á kristjan@dalir.is.

Útboð á sorphirðu

DalabyggðFréttir

Fljótlega verða auglýst tvö útboð vegna sorphirðu. Annars vegar er um að ræða almenna sorphirðu þar sem miklar breytingar eru framundan. Hins vegar er um að ræða söfnun og flutning á dýrahræjum.

Framkvæmdir við fráveitu

DalabyggðFréttir

Nú eru hafnar framkvæmdir við fyrsta áfanga af þremur við fráveitu í Búðardal. Í þessum áfanga verður tengdar saman útrásir fráveitanna norðan og sunnan megin. Í öðrum áfanga verður lögð útrás og þriðji áfangi er hreinsistöð. Það er fyrirtækið Stafnafell ehf. sem sér um fyrsta áfangann. Á meðan á framkvæmdum stendur verður töluvert rask, sérstaklega þegar fara þarf í gegnum …

Tilboð í rekstur mötuneytis Silfurtúns

DalabyggðFréttir

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Silfurtún óskar eftir tilboðum í rekstur á mötuneyti heimilisins. Á heimilinu eru 13 íbúar og á hverri vakt eru einn til sex starfsmenn. Hægt er að nálgast tilboðsgögn frá 29. júlí á skrifstofu Dalabyggðar og á dalir.is. Frestur til að skila tilboðum er til 15. ágúst 2020.