05.03.2020Eindagi fasteignagjalda Við minnum á að eindagi fasteignagjalda er í dag, fimmtudaginn 5.mars 2020.Skoða betur
05.03.2020Deiliskipulag fyrir Gildubrekkur í Dalabyggð Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 13. febrúar 2020 að endurauglýsa tillögu að deiliskipulagi í landi Hlíðar í Hörðudal í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið nær yfir frístundabyggð á jörðinni Hlíð í Dalabyggð og er skipulagssvæðið, Gildubrekkur, staðsett fyrir neðan þjóðveg nr. 581. Gert er ráð fyrir að á svæðinu rísi frístundahús, þjónustuhús, hesthús, vélaskemma ogSkoða betur
04.03.2020Röskun á félagsstarfi eldri borgara Félagsstarf eldri borgara leggst niður í þessari viku. Ástandið verður metið fyrir hverja viku í framhaldinu og ákvörðun tekin um hvort ráðlegt sé að hefja starf að nýju. Öryggi og heilsa fólks er í fyrirrúmi. – Íþrótta- og tómstundafulltrúi DalabyggðarSkoða betur
04.03.2020Úthlutun nýrra íbúða English below Opnað verður fyrir umsóknir um nýjar íbúðir í Bakkahvammi fimmtudaginn 12.mars n.k. Það er húsnæðissjálfseignarstofnunin Bakkahvammur hses. sem leigir út íbúðirnar. Til úthlutunar verða þrjár íbúðir, tvær sem eru um 75fm og ein sem er um 90fm. Hægt er að sjá lýsingu á og myndir úr álíka íbúðum HÉR. Til að sækja um íbúð þarf aðSkoða betur
04.03.2020Leiksýning: Stella í orlofi English below Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir Stellu í orlofi næstkomandi föstudag. Stella er Íslendingum að góðu kunn, flest kunnum við fjölmarga frasa úr myndinni utanbókar enda er kvikmyndin samofin þjóðarsálinni. Gunnar Gunnsteinsson og Leikfélag Hólmavíkur hafa nú gert leikgerð fyrir svið eftir kvikmyndahandriti Guðnýjar Halldórsdóttur en Gunnar leikstýrir einmitt sýningunni. Sýningin er afrakstur samstarfs Leikfélags Hólmavíkur og Grunn- og tónskólans áSkoða betur
03.03.2020Sveitarstjórn Dalabyggðar – 188. fundur Sveitarstjórn Dalabyggðar – 188 FUNDARBOÐ fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 5. mars 2020 og hefst kl. 16:00 Dagskrá: Almenn mál 1. 1912005 – Breyting á samþykktum Dalabyggðar – fyrri umræða. 2. 2002053 – Flokkun landbúnaðarlands 3. 2002053 – Skipulags- og matslýsing vegna endurskoðunar aðalskipulags Dalabyggðar 4. 2003004 – Sameining sveitarfélaga – skoðun og valkostagreining 5. 1905023Skoða betur
03.03.2020Verkfall – Lokun Sýsluskrifstofu í Búðardal Að öllu óbreyttu hefst ótímabundið verkfall hjá starfsfólki Sýslumannsembætta og Skattsins mánudaginn 9.mars n.k. Ef af verður, mun Sýsluskrifstofan í Búðardal vera lokuð frá þeim degi, vegna verkfalls Sameykis. Ef íbúar eru með erindi sem þarf að afgreiða hjá Sýsluskrifstofu er þeim bent á að reyna afgreiða þau í þessari viku. Sýsluskrifstofan í Búðardal verður með lengri opnunartíma í þessariSkoða betur
27.02.2020Ráðstefna um sameiningar sveitarfélaga Fimmtudaginn 12.mars n.k. verður haldin ráðstefna um sameiningar sveitarfélaga að Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit og mun hún standa yfir frá kl.10:00 til 15:00. Eggert Kjartansson, formaður SSV mun opna ráðstefnuna og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra Íslands flytur ávarp. Að því loknu verður rætt um reynslu af sameiningum sveitarfélaga og svo hvernig sé hægt að sporna við því að jaðarbyggðir verðiSkoða betur
26.02.2020Ný landsáætlun vegna heimsfaraldurs Staðfestum tilfellum COVID-19 kórónaveirunnar utan Kína hefur fjölgað undanfarna daga. Þar á meðal í Evrópu þar sem tilfelli á Norður-Ítalíu nálgast á þriðja hundrað. Grunur leikur á að eitt tilfelli hafi komið upp á Tenerife á Spáni en endanleg staðfesting á því liggur ekki fyrir. Unnið er á óvissustigi nýrrar landsáætlunar vegna heimsfaraldurs . Sóttvarnalæknir vinnur að samhæfingu aðgerða, leiðbeiningum og efniSkoða betur
25.02.2020Sviðsmyndakynning og vinnustofa Í dag var haldinn opinn fundur atvinnumálanefndar Dalabyggðar í tengslum við verkefni nefndarinnar að styðja við hugmyndir og þróun rekstrar núverandi fyrirtækja á svæðinu. Á fundinn kom Stefán Þór Helgason frá KPMG sem kynnti sviðsmyndagreiningu sem unnin var fyrir Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Að kynningu lokinni var vinnustofa þar sem þátttakendur á fundinum voru beðnir um að velta fyrir sér mikilvægum aðgerðumSkoða betur
23.02.2020Vestfjarðaleiðin kynnt Föstudaginn s.l. 21.febrúar var haldinn fundur í Stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar um verkefni sem oft hefur verið kallað „Hringvegur 2“ sem snýst um nýja og metnaðarfulla ferðamannaleið sem opnar í haust. Fundurinn var fjarfundur þar sem þátttakendur voru Hólmavík, Patreksfjörður, Ísafjörður og Búðardalur. Verkefnastjórar frá Markaðsstofu Vesturlands mættu í Búðardal ásamt Ingvari Erni Ingvarssyni frá Cohn & Wolfe sem hefur unnið að markaðsráðgjöfSkoða betur
21.02.2020Erindi sent á þingmenn og þjónustuaðila Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar þann 13. febrúar sl. var fjallað um niðurskurð í vetrarþjónustu. Á fundinum var samþykkt samhljóða bókun sem hefur í framhaldinu verið komið á framfæri við Vegagerðina og þingmenn Norðvesturkjördæmis: „Sveitarstjórn Dalabyggðar fagnar því að ekki standi til að draga úr vetrarþjónustu en lýsir verulegum áhyggjum yfir að slíkt hafi komið til umræðu. Einnig vill sveitarstjórnin leggjaSkoða betur