Fréttir.

27.12.2019

Félagsvist í Tjarnarlundi

Að venju verður stokkað upp í jóla-félagsvist í Tjarnarlundi laugardaginn 28. desember kl 20. Verð er 1.000 kr og veitingar innifaldar.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Síðustu opnunardagar Byggðasafnsins”
27.12.2019

Síðustu opnunardagar Byggðasafnsins

Síðustu opnunardagar Byggðasafns Dalamanna í kjallaranum á Laugum verða föstudaginn 27. desember og sunnudaginn 29. desember kl. 13-17. Frítt verður inn á safnið, húslestur og heitt á könnunni. Þurfi að koma til breytinga á opnunartímum vegna veðurs verður það auglýst á heimasíðu Dalabyggðar. Á nýju ári verður síðan hafist handa við að pakka safnkostinum niður. Skipulögð söfnun muna í Dölum fyrir væntanlegt Byggðasafn Dalamanna
Skoða betur
24.12.2019

Gleðileg jól!

...
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Helgihald um jólahátíðina”
23.12.2019

Helgihald um jólahátíðina

Um hátíðirnar verða guðsþjónustur í Breiðabólsstaðarkirkju, Kvennabrekkukirkju, Hjarðarholtskirkju, Hvammskirkju og Staðarhólskirkju.   Annar dagur jóla, fimmtudagurinn 26. desember Guðsþjónusta í Breiðabólsstaðarkirkju kl. 14. Hátíðarguðsþjónusta í Staðarhólskirkju kl. 14. Hátíðarguðsþjónusta í Hvammskirkju kl. 20.   Þriðji dagur jóla, föstudagurinn 27. desember Kertamessa í Kvennabrekkukirkju kl. 20.   Fimmti dagur jóla, sunnudagurinn 29. desember Hátíðarguðsþjónusta í Reykhólakirkju kl. 14. Hátíðarguðsþjónusta í Hjarðarholtskirkju kl.
Skoða betur
20.12.2019

Rafmagnstruflanir

Raforkunotendur í Dalabyggð mega búast má við rafmagnstruflunum í nótt frá miðnætti til kl. 6 í fyrramálið vegna vinnu í tengivirki Landsnets í Hrútatungu.   Svæðisvakt RARIK á Vesturlandi er í síma 528 9390.   Kort af svæði sem talið er vera um að ræða má sjá á heimasíðu Rarik.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Rafmagnslaust”
11.12.2019

Rafmagnslaust

Rafmagnslaust er í Saurbæ, Skarðsströnd, Fellsströnd og hluta Hvammssveitar vegna bilunar á byggðalínu. Unnið er að viðgerð.   Nánari upplýsingar veitir svæðisvakt Rarik á Vesturlandi í síma 528 9390 og á heimasíðu Rarik.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Hugsanleg rafmagnsskömmtun”
11.12.2019

Hugsanleg rafmagnsskömmtun

Rafmagnsnotendur í Búðardal, Laxárdal og Suður-Dölum eru beðnir um að fara sparlega með rafmagn svo komast megi hjá skömmtun.     Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390 og á heimasíðu RARIK.
Skoða betur
10.12.2019

Jólasveinahittingur

Skyrgámur og Bjúgnakrækir boða til jólasveinahittings föstudaginn 13. desember kl. 16-17 í KM.   Nokkrir jólasveinar ætla að koma saman í KM og taka stöðuna á ýmsum atriðum. Til dæmis yfirfara óþekktarlistann, bjóða upp á myndatökur og losa sig við góðgæti.
Skoða betur
05.12.2019

Jólatónleikar Auðarskóla 2019

Jólatónleikar Auðarskóla verða þriðjudaginn 17. desember kl. 17 í Dalabúð. Nemendur koma þar fram og leika af list. Allir eru velkomnir, en tónleikagestir eru beðnir um að taka vel á móti flytjendum og gefa þeim gott næði til að flytja tónlist sína. Margir koma fram og æskilegt að allir tónleikagestir sitji alla tónleikana og njóti þeirrar tónlistar sem þar er flutt.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Heilsugæslustöð – desember 2019”
02.12.2019

Heilsugæslustöð – desember 2019

Þórir Bergmundsson, háls-, nef og eyrnalæknir verður með móttöku á heilsugæslustöðinni í Búðardal mánudaginn 16. desember nk.  Tímapantanir eru í síma  432 1450.   Sjúkraþjálfarar frá Netsjúkraþjálfun verða með viðtöl og skoðanir á heilsugæslustöðinni í Búðardal mánudaginn 9. desember nk. Vegna tímabókana og/eða fyrirspurna er best að senda póst á netfangið; netsjukrathjalfun@netsjukrathjalfun.is, en einnig má hafa samband við heilsugæsluna í síma 432 1450.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Dala- og Reykhólaprestakall – aðventan 2019.”
28.11.2019

Dala- og Reykhólaprestakall – aðventan 2019.

Dagskrá Dala- og Reykhólaprestakalla á aðventunni 2019.   Jólaball sunnudagaskólans er í Tjarnarlundi sunnudaginn 1. desember kl. 11.   Aðventufagnaður á Fellsenda og kaffi í boði kvenfélagsins Fjólu sunnudaginn 1. desember kl. 14 .   Aðventustund í Reykhólakirkju sunnudaginn 1. desember kl. 20.   Aðventustund í Staðarfellskirkju fimmtudaginn 5. desember kl. 20. – Frestað –   Aðventustund í Garpsdalskirkju föstudaginn 6. desember kl. 20.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Kynningarfundur: Uppbyggingasjóður”
28.11.2019

Kynningarfundur: Uppbyggingasjóður

Ráðgjafar á vegur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi verða með kynningarfundi um Uppbyggingasjóðinn. Þar verður hægt er að fá ýmsar upplýsingar um gerð umsókn, styrkhæfni verkefna o.fl.   Kynningarfundur í Dölum  verður í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal þriðjudaginn 3. desember kl. 13-15. Umsóknarfrestur í Uppbyggingasjóð er til miðnættis 12. desember.
Skoða betur
Fréttir.