07.12.2012
Kaupfélag Borgfirðinga
Dalamenn eru velkomnir í Kaupfélag Borgfirðinga. Félagssvæði þess nær yfir allt Vesturland, frá Hvalfjarðarbotni að Kjálkafirði. Hægt er að sækja um inngöngu á vef KB á þar til gerðu umsóknareyðublaði. Félagsaðild kostar nú 1.000 kr. Félagsmenn fá afsláttarkort sem gildir í allar verslanir Samkaupa hvar sem er á landinu. Afsláttur er 2% og auk þess sérstök tímabundin tilboð öðru hverju
Skoða betur