08.03.2013Aðalfundur Rauðakrossins Aðalfundur Rauðakrossdeildarinnar í Búðardal verður mánudaginn 11. mars kl. 20 í húsnæði deildarinnar við Vesturbraut. Venjuleg aðalfundarstörf.Skoða betur
06.03.2013Framhaldsskóladeild í Dalabyggð Kynningarfundur um framhaldsskóladeild / dreifnám í Dalabyggð verður haldinn í félagsheimilinu Dalabúð miðvikudaginn 13. mars kl. 17. Dagskrá 1. Vinnuhópur Dalabyggðar um framhaldsskóladeild kynnir tildrög og stöðu málsins. 2. Kolfinna Jóhannesdóttir skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar fer yfir mögulega starfsemi deildarinnar og hugsanlega tengingu við Menntaskóla Borgarfjarðar. 3. Rakel Runólfsdóttir umsjónarmaður dreifnáms Fjölbrautaskóla Norðulands vestra á Hvammstanga kynnir hvernig til hefur tekistSkoða betur
05.03.2013Jörfagleði 2013 Jörfagleði verður haldin hátíðleg dagana 25.-28. apríl n.k. Undirbúningur gleðinnar er hafinn og er dagskráin óðum að taka á sig mynd. Sérstök Jörfagleðinefnd hefur verið skipuð og auglýsir hún hér með eftir skemmtilegum viðburðum fyrir hátíðina. Allir þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í hátíðinni með einum eða öðrum hætti eru vinsamlegast beðnir um að snúa sér tilSkoða betur
05.03.2013Félagsvist í Árbliki Þriðja og síðasta spilakvöld kvenfélagsins Fjólu verður haldið laugardagskvöldið 9. mars kl. 20:30 í Árbliki. Aðgangseyrir er 800 kr. Kaffi og meðlæti innifalið. Frítt er fyrir 14 ára og yngri.Skoða betur
02.03.2013Gönguhópur í Saurbænum Gönguhópur í Saurbænum hefur virkur frá febrúarbyrjun. Gengið er tvisvar í viku, þriðjudaga og laugardaga óstundvíslega um kl. 14 frá Tjarnarlundi. Öllum er velkomið að mæta, karlar, konur og börn. Þó verður að segjast að konurnar hafa verið heldur duglegri að mæta í gönguna. Auk hollrar hreyfingar er gangan líka nauðsynleg til að skiptast á fréttum og sögum úr sveitinni.Skoða betur
02.03.2013Tófuspjall Snorrastofa í Borgarfirði og Þaulsetur á Skarðsströnd bjóða upp á tófuspjall Snorra á Augastöðum í Tjarnarlundi fimmtudagskvöldið 7. mars að loknum mjöltum kl. 20:30. Fyrirlesari er Snorri Jóhannesson bóndi og refaskytta á Augastöðum í Borgarfirði. Í fyrirlestrinum fjallar Snorri um refinn frá ýmsum sjónarhornum auk mynda. Fyrirlesturinn er hluti fyrirlestraraðar Snorrastofu í Borgarfirði og sló aðsóknarmet þar þegar húsnæði bókhlöðunnarSkoða betur
28.02.2013Félagsvist í Tjarnarlundi Nemendur unglingadeildar Auðarskóla standa fyrir félagsvist í Tjarnarlundi fimmtudagskvöldið 28. febrúar kl. 20. Aðgangseyrir er 500 kr og sjoppa á staðnum. Enginn posi.Skoða betur
27.02.2013Háls-, nef- og eyrnalæknir Þórir Bergmundsson háls-, nef-og eyrnalæknir verður á heilsugæslustöðinni í Búðadal mánudaginn 4. mars. Tímapantanir eru í síma 432 1450Skoða betur
23.02.2013Garðyrkja í Dölum Kristinn H. Þorsteinsson garðyrkjufræðingur flytur fyrirlestur í Leifsbúð fimmtudaginn 28. febrúar kl. 19:30. Fyrirlesturinn nefnir hann „Nýir tímar – nýjar áherslur í vali á gróðri“. Þar verður fjallað um gróður í görðum og á opnum svæðum í sveitarfélaginu og hvaða tegundir er áhugavert að rækta í Dalabyggð. Kristinn H. Þorsteinsson er fræðslu- og verkefnastjóri Garðyrkjufélags Íslands. Fyrirlesturinn er í boðiSkoða betur
22.02.2013Konudagskaffi í leikskólanum Á sunnudaginn hefst Góa á konudeginum. Af því tilefni verður konudagskaffi í leikskólanum mánudaginn 25. febrúar. Allar mömmur og ömmur barnanna í leikskólanum eru velkomnar í kaffi þangað og hefst sú stund kl. 9:30 og stendur til kl. 10:15. Boðið verður upp á dýrindis skúffuköku og kaffi.Skoða betur
20.02.2013Hafratindur fjall Dalanna Eftir að hafa hlotið tæplega 60% tilnefninga, tilnefningu menningar- og ferðamálanefndar Dalabyggðar og staðfestingu sveitarstjórnar Dalabyggðar þá telst Hafratindur nú opinberlega vera fjall Dalanna. Hafratindur er 923 m.y.s. og er eitt af hæstu fjöllum í Dölum. Tröllakirkja á mörkum Haukadals, Strandasýslu og Mýrasýslu er hæst 1.001 m.y.s. Ekki fundust viðurkenndar mælingar á hæð Gamalhnúka í Miðdölum, en þeir eru aðSkoða betur
18.02.2013Heimskautafarar Heimskautafararnir Ómar Friðjófsson og Karl Rútsson halda kynningu þriðjudaginn 19. febrúar í Auðarskóla kl. 20 um ferð þeirra um heimskautaslóðir Kanada. Þetta er um 2 tíma dagskrá með myndaívafi úr ferðinni. Einnig gáfu þeir út bókina „Þar sem himinn frýs við jörð“ og verða með hana til sölu. Félagar hins mikla heimskautafélags verða á ferð um Vestfirði og Dali þessaSkoða betur