Fréttir.

20.01.2012

Syngjandi konur á Vesturlandi

Öllum syngjandi konum á Vesturlandi er velkomið að taka þátt í vinnuhelgi með Kristjönu Stefánsdóttur, djasssöngkonu helgina 3.-4. mars í Hjálmkletti í Borgarnesi. Markmiðin eru að efla söng og þjálfun meðal kvenna á Vesturlandi, hvetja ungar konur til að ganga til liðs við kóra,kalla til samstarfs konur víðsvegar að úr landshlutanum, gefa konum sem syngja í blönduðum kórum kost á
Skoða betur
19.01.2012

Reiðnámskeið Glaðs

Skráningarfrestur á reiðnámskeið Glaðs er til 20. janúar. Kennt verður einu sinni í viku í klukkutíma í senn. Reiðkennslan verður á virkum dögum, seinni part dags og byrjar í vikunni 30. janúar – 3. febrúar. Kennt verður fram í byrjun maí. Nánari upplýsingar um skráningu og verð má finna á heimasíðu Glaðs. Það verður raðað í hópa eftir aldri og
Skoða betur
18.01.2012

Þorrablót Stjörnunnar

Fimmtugasta þorrablót ungmennafélagsins Stjörnunnar verður haldið í Tjarnarlundi laugardaginn 28. janúar. Húsið opnar kl. 20:00 og borðhald hefst kl. 20:30. Siggi frá Hólum sér um matinn, heimamenn um skemmtiatriði og hljómsveitin Dísel leikur fyrir dansi. Pantanir þurfa að berast í síðasta lagi miðvikudaginn 25. janúar til Hugrúnar á Kjarlaksvöllum (434 1521 / 845 3955), Erluí Innri-Fagradal (434 1537 / 663
Skoða betur
17.01.2012

Sveitarstjórn Dalabyggðar

82. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 17. janúar 2012 og hefst kl. 17:00 í Stjórnsýsluhúsinu í Búðardal. Dagskrá 1. Skýrsla sveitarstjóra Fundargerðir til staðfestingar 2. Fundargerð 100. fundar byggðarráðs frá 13.1.2012. 3. Fundargerð 44. fundar fræðslunefndar frá 5.1.2012. Fundargerðir til kynningar 4. Fundargerð 81. fundar sveitarstjórnar frá 20.12.2011. Mál til umfjöllunar / afgreiðslu 5. Tilnefning fulltrúa í vatnasvæðanefnd –
Skoða betur
11.01.2012

Félagsvist í Árbliki

Kvenfélagið Fjóla stendur fyrir félagsvist í Árbliki föstudaginn 13. janúar kl. 20:30. Aðgangseyrir er 800 kr, kaffi og meðlæti innifalið. Frítt fyrir 14 ára og yngri. Allir velkomnir.
Skoða betur
11.01.2012

Þorrablót Laxdæla

Þorrablót Laxdæla 2012 verður haldið í Dalabúð laugardaginn 21. janúar. Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst kl. 20. Freyja Ólafsdóttir sér um matinn, þorrablótsnefnd um skemmtiatriðin og Síðasti séns um dansleikinn. Almennt miðaverð er 6.000 kr, en fyrir ellilífeyrisþega 4.500 kr. Miðaverð á dansleikinn eftir borðhald og skemmtiatriði er 2.500 kr. Miðapantanir þurfa að berast eftirtöldum í síðasta lagi
Skoða betur
09.01.2012

Skrifstofa Dalabyggðar

Skrifstofa Dalabyggðar verður lokuð frá kl. 12 miðvikudaginn 11. janúar og fimmtudaginn 12. janúar vegna námsskeiðs.
Skoða betur
05.01.2012

Tómstundir vor 2012

Þá hefur 6. útgáfa af tómstundabæklingnum litið dagsins ljós. Íþróttir og tómstundir eru mikilvægur partur af lífi barnanna okkar og eflir þau og styrkir bæði á líkama og sál. Hreyfing er ekki síður mikilvæg fyrir fullorðna og það er óskandi að þátttakan verði góð hjá öllum aldurshópum. Það er vert að nefna að flest stéttarfélög niðurgreiða íþróttaiðkun að stórum hluta.
Skoða betur
05.01.2012

Lyftingamaður ársins

Lyftingamaður ársins 2011 er Dalamaðurinn Gísli Kristjánsson frá Teigi í Hvammssveit. Gísli varð Íslandsmeistari í ólympískum lyftingum í apríl og sigraði í +105 kg flokki. Hann varð síðan annar á Norðurlandamótinu í Pori í Finnlandi í -105 kg flokki. Á Norðurlandamótinu lyfti Gísli 150 kg í snörun, 165 kg í jafnhöttun og því samanlagt 315 kg. Samtals gerðu það 343,827
Skoða betur
02.01.2012

Húsaleigubætur

Leigjendur geta átt rétt á húsaleigubótum hjá sveitarfélaginu og sækja þarf um þær fyrir 16. dag fyrsta greiðslumánuðar. Sækja þarf um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og gildir umsóknin til ársloka. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Dalabyggðar fyrir 16. dag fyrsta greiðslumánaðar. Berist umsókn síðar verða húsaleigubætur ekki greiddar vegna þess mánaðar. Umsóknareyðublöð er á vef Dalabyggðar og einnig á skrifstofu
Skoða betur
02.01.2012

Dagvistun barna

Dalabyggð auglýsir eftir aðilum til að taka að sér dagvistun barna í heimahúsum. Eftirspurn eftir leikskólavistun er meiri fyrri hluta ársins 2012 en leikskóladeild Auðarskóla getur annað. Sveitarstjórn Dalabyggðar ákvað 20. apríl 2010 að greiða niður daggjöld vegna barna sem eru í daggæslu í heimahúsum og eiga lögheimili í Dalabyggð. Niðurgreiðslur eru m.a. háðar eftirfarandi skilyrðum: a) Að dagforeldri hafi
Skoða betur
02.01.2012

Álagning fasteignagjalda 2012

Dalabyggð tilkynnir hér með að ekki verða sendir út álagningarseðlar í bréfpósti fyrir árið 2012.Þess í stað geta eigendur fasteigna nálgast álagningarseðil sinn á upplýsinga- og þjónustuveitunni Ísland.is. Þessi birting kemur í stað þess að senda tilkynningar með hefðbundnum bréfpósti. Nokkur hagræðing felst í rafrænni upplýsingagjöf. Dreifing verður ódýrari þar kostnaður við prentun, umslög, pökkun og póstburðargjöld fellur niður. Eigandur
Skoða betur
Fréttir.