Fréttir.

19.03.2012

Menningarráð Vesturlands

Menningarráð Vesturlands auglýsir í fyrsta sinn eftir umsóknum um stofn- og rekstrarstyrki. Umsækendur geta verið félög, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á svæðinu. Umsækendur verða að geta sýnt fram á fleiri fjárhagslega bakhjarla en Menningarráð Vesturlands. Styrkir ráðsins geta aldrei numið hærri fjárhæð en helmingi alls kostnaðar. Menningarráð hefur ákveðið að þeir aðilar hafi forgang sem stuðla að því að efla
Skoða betur
16.03.2012

Sveitarstjórn Dalabyggðar

84. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 20. mars 2012 og hefst kl. 18:00. Dagskrá Almenn mál 1. Ástand gróðurs á Ljárskógaheiði 2. Lánasjóður sveitarfélaga – aðalfundur 23.3.2012 Almenn mál – umsagnir og vísanir 3. Frumvarp til breytinga á lögum um meðhöndlun úrgangs4. Endurnýjun á rekstrarleyfum. Fundargerðir til staðfestingar5. Menningar- og ferðamálanefnd – 356. Menningar- og
Skoða betur
15.03.2012

Skólaþing Auðarskóla 2012

Skólaþing Auðarskóla verður laugardaginn 24. mars kl. 10 í Dalabúð. Tilgangur þingsins er að auka samræðu í samfélaginu um skólamál, efla skólastarf og afla upplýsinga sem nýtast í starfi skólans og stefnumótun sveitarfélagsins. Foreldrar sérstaklega hvattir til að mæta. Þingið er öllum opið sem áhuga hafa á skólamálum í sveitarfélaginu. Vikuna fyrir þingið munu nemendur í eldri bekkjardeildum skólans þinga
Skoða betur
14.03.2012

Lóuþrælar í Dalabúð

Fimmtudagskvöldið 15. mars mun karlakórinn Lóuþrælar halda tónleika í Dalabúð og hefjast þeir kl. 21. Þetta starfsárið er kórinn með á lagalista sínum dægurlög samin af ýmsum þekktum höfundum og flutt af frægustu tónlistarmönnum heims og Íslands. Til að flytja þessi lög í þeim úgáfum sem ákveðnar voru þarf hljómsveit til að spila með kórnum.Hljómsveitina skipa Skúli Einarsson trommur, Kristján
Skoða betur
13.03.2012

Félagsvist í Árbliki

Kvenfélagið Fjóla heldur þriðju og jafnframt sína síðustu félagsvist þennan veturinn föstudaginn 16. mars í Árbliki kl. 20:30 Aðgangseyrir er 800 kr, kaffi og meðlæti innifalið. Frítt fyrir 14 ára og yngri.
Skoða betur
09.03.2012

Dalir og Hólar 2012

Dalir og Hólar munu efna til sýninga á svæðinu Dalabyggð – Reykhólasveit sumarið 2012. Leitað er eftir hugmyndum og uppástungum um áhugaverða staði á svæðinu sem gætu virkað sem sýningarrými. Myndlistamenn munu vinna út frá náttúru og menningu Dalabyggðar og Reykhólasveitar sem mynda umgjörð um sýninguna. Prentuð verður sýningarskrá sem jafnframt er leiðsögukort um svæðið. Viðfangsefni sýningarinnar að þessu sinni
Skoða betur
09.03.2012

Smáskipanám á Hólmavík og Reykhólum

Fræðslumiðstöð Vestfjarðar ætlar að að bjóða upp á svokallað smáskipanám (sem áður var gjarnan nefnt „pungapróf“) á Hólmavík og Reykhólum á næstunni. Þeir sem ljúka slíku námi, sem er samkvæmt reglugerð nr. 175/2008 um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum og aðalnámsskrá framhaldsskóla – skipstjórnarnám frá júlí 2009, öðlast rétt til að fá útgefið skírteini sem skipstjóri/stýrimaður
Skoða betur
07.03.2012

Fjórgangur – Glaður

Hestamannafélagið Glaður heldur mót í fjórgangi í Nesoddahöllinni, laugardaginn 10. mars kl. 14. Keppt er í barna-, unglinga-, ungmenna- og opnum flokkum. Tekið er við skráningum til og með fimmtudeginum 8. mars. Skráningargjald er 1.000 kr. Nánari upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu Glaðs
Skoða betur
01.03.2012

Skátar safna fyrir ABC

Skátar úr skátafélaginu Stíganda standa fyrir söfnun ABC barnahjálpar fimmtudaginn 1. mars frá kl. 14 í Búðardal. Börnin hjálpa börnum þar sem safnað er fyrir götubörn í Kenýa. Peningarnir sem safnast verða notaðir til þess að halda áfram með byggingu nýrrar heimavistar fyrir götubörn í Nairobi. Einnig verður byggður lítill skóla fyrir Maasai börn, sem búa á sléttunni við Kilimanjaro
Skoða betur
29.02.2012

Íbúð til leigu

Íbúðin að Sunnubraut 1a í Búðardal er laus til leigu. Íbúðin er 4 herberja um 102,5 m2. Umsóknareyðublað og reglur um úthlutun leiguíbúða eru á vef Dalabyggðar. Umsóknarfrestur er til 5. mars nk. Sveitarstjóri Dalabyggðar
Skoða betur
27.02.2012

Félagsvist í Árbliki

Önnur félagsvist vetrarins hjá Kvenfélaginu Fjólu verður haldin föstudaginn 2. mars í Árbliki kl. 20:30. Aðgangseyrir er 800 kr og er kaffi og meðlæti innifalið. Frítt er fyrir 14 ára og yngri.
Skoða betur
26.02.2012

Mottumarz

Meira en sjö hundruð karlar greinast ár hvert með krabbamein. Rannsóknir sýna að með forvörnum og heilbrigðu lífi er hægt að koma í veg fyrir eitt af hverjum þremur tilfellum. Mottumars 2012 hefst næsta fimmtudag og eru allir sem geta hvattir til þátttöku. Með því að safna skeggi er sýnd samstaða og um leið safnað áheitum til styrktar málefninu. Átakið
Skoða betur
Fréttir.