Fréttir.

Aðalmynd fyrir “Uppfærðar heimsóknareglur á Silfurtúni”
31.05.2021

Uppfærðar heimsóknareglur á Silfurtúni

Heimsóknareglur á Silfurtúni hafa verið uppfærðar og eru í gildi þar til annað er tilkynnt, sjá einnig: Silfurtún  
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Við þurfum fólk til að geta starfrækt Vinnuskólann í sumar”
28.05.2021

Við þurfum fólk til að geta starfrækt Vinnuskólann í sumar

Sveitarfélagið hefur rekið Vinnuskóla Dalabyggðar undanfarin ár með góðri þátttöku og árangri. Í ár hefur gengið illa að finna starfsfólk í Vinnuskólann sem er miður því umsóknir frá ungmennum eru margar. Því köllum við eftir aðstoð til að finna starfsfólk í Vinnuskólann svo hægt sé að halda uppi starfsemi hans í sumar. Stefnt er að því að Vinnuskólinn verði starfræktur
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Uppbyggingarsjóður auglýsir eftir umsóknum – umsóknarfrestur til 24. ágúst”
27.05.2021

Uppbyggingarsjóður auglýsir eftir umsóknum – umsóknarfrestur til 24. ágúst

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands vegna styrkja til atvinnuþróunar og nýsköpunar. Ekki er verið að veita styrki fyrir menningarverkefni í þessari úthlutun. Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2021. Umsóknarferlið fer fram í gegnum rafræna umsóknargátt á vef SSV (www.ssv.is). Aðstoð við umsóknir veita: Ólafur Sveinsson – olisv@ssv.is eða 892-3208 Ólöf Guðmundsdóttir – olof@ssv.is eða 898-0247
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Dalaveitur – rof í Miðdölum vegna viðgerðar”
23.05.2021

Dalaveitur – rof í Miðdölum vegna viðgerðar

Þriðjudaginn 25. maí fer fram viðgerð á dreifikerfi Dalaveitna. Meðan á viðgerð stendur verður netlaust hjá notendum í stærstum hluta Miðdala frá og með Kvennabrekkur, til og með Hundadals. Þar á meðal er fjarskiptamastrið á Sauðafelli og verður því takmarkað GSM-samband við Sauðafelli og suður á Bröttubrekku. Mastrið verður tengt sem fyrst þannig að símasamband komist á sem fyrst. Samband
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Götusópun í Búðardal”
21.05.2021

Götusópun í Búðardal

Á þriðjudaginn næsta, 25. maí hefst götusópun í þorpinu, eru íbúar beðnir um að huga að því að geyma ekki ökutæki eða stærri aðskotahluti úti á götum svo hægt sé að ná sem bestum þrifum.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Matjurtargarður í Búðardal”
21.05.2021

Matjurtargarður í Búðardal

Nú er búið að tæta matjuragarðinn í Búðardal fyrir áhugasama. Gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær, einstaklingar sjá sjálfir um að taka frá reit í matjurtagarði. Gott er að afmarka reitina með sjáanlegum hætti.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sjálfboðaliðaverkefni 2021 – umsóknarfrestur til 20. maí”
20.05.2021

Sjálfboðaliðaverkefni 2021 – umsóknarfrestur til 20. maí

Við minnum á að umsóknarfrestur um sjálfboðavinnuverkefni Dalabyggðar er í dag, 20. maí – sjá frétt frá 28. apríl sl. : Sjálfboðaliðaverkefni 2021 Byggðarráð afgreiðir umsóknir. Íbúar eru hvattir til að nýta sér þetta til að hrinda í framkvæmd brýnum umhverfisverkefnum í sínu næsta nágrenni. Almenn skilyrði fyrir úthlutun framlaga eru að umsækjandi eigi lögheimili í Dalabyggð, sé ekki í
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sveitarstjórn Dalabyggðar – 205. fundur”
18.05.2021

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 205. fundur

FUNDARBOÐ 205. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 20. maí 2021 og hefst kl. 16:00   Dagskrá: Almenn mál 1. 2103020 – Síðari umræða um ársreikning Dalabyggðar 2020 2. 2104023 – Fjárhagsáætlun 2021 – Viðauki II 3. 2008010 – Skógrækt á jörðinni Ásgarði í Hvammssveit 4. 2010009 – Kannanir – framhaldsskóladeild og námsaðstaða 5. 2009024 – Íþrótta-
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Tunnustöðvar, verðkönnun – breyttur skilafrestur”
17.05.2021

Tunnustöðvar, verðkönnun – breyttur skilafrestur

Dalabyggð auglýsti í síðustu viku verðkönnun vegna smíði og uppsetningu á tunnustöðvum víðsvegar í dreifibýli sveitarfélagsins (sjá hér). Breyting á netfangi til að fá send gögn: kristjan@dalir.is. Skilafresti tilboða hefur verið seinkað til þriðjudagsins 25. maí n.k. kl. 12. Tilboðum skal skila á skrifstofu Dalabyggðar eða í tölvupósti á kristjan@dalir.is og verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sumarstörf í Dalabyggð fyrir námsmenn 2021”
17.05.2021

Sumarstörf í Dalabyggð fyrir námsmenn 2021

Dalabyggð auglýsir sumarstörf fyrir námsmenn sumarið 2021. Dalabyggð auglýsir eftir námsmönnum í grunn- eða meistaranámi á háskólastigi til sumarvinnu. Um er að ræða ný og tímabundin verkefni sem byggja á samstarfsverkefni Vinnumálastofnunar og sveitarfélaga um störf fyrir námsmenn 18 ára og eldri. Námsmenn þurfa að vera að koma úr námi eða skráðir í nám í haust. Laun eru skv. kjarasamningi
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Matvælasjóður auglýsir úthlutun í annað sinn”
17.05.2021

Matvælasjóður auglýsir úthlutun í annað sinn

14. maí sl. var opnað fyrir umsóknir í Matvælasjóð. Þetta er í annað sinn sem sjóðurinn auglýsir úthlutun. Matvælasjóður mun fá 250 milljón króna viðbótarframlag á þessu ári og er heildarúthlutunarfé sjóðsins alls 630 milljónir króna. Hlutverk sjóðsins að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu. Áhersla sjóðsins
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Hættustig vegna hættu á gróðureldum”
11.05.2021

Hættustig vegna hættu á gróðureldum

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra á Vestfjörðum, Vesturlandi, Höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi hafa ákveðið að lýsa yfir hættustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum. Svæðið sem um er að ræða nær frá Breiðafirði að Eyjafjöllum og snýr því einnig að svæði Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda sem snýr að Breiðafirði ásamt eyjunum. Þessi ákvörðun er byggð á undanfarið hefur
Skoða betur
Fréttir.