Fimmtudagskvöldið 23. júlí kl. 19:30 verður farið í sögurölt við Þiðriksvallavatn, frá stíflunni ofan við Þverárvirkjun og eftir vegarslóða fram að eyðibýlinu Vatnshorni. Um er að ræða 2,5 km göngu hvora leið, samtals 5 km, svo þetta rölt er heldur lengra en venjan er. Frá ýmsu er að segja þarna í Þiðriksvalladalnum og búast má við fróðleik um búskap og …
Sögurölt: Ásgarðsstapi – breyttur dagur
Sögurölti á Ásgarðsstapa hefur verið frestað til mánudagsins 20. júlí vegna veðurs, sjá uppfærða frétt hérna að neðan: Í þriðja sögurölti sumarsins verður gengið á Ásgarðsstapa í Hvammssveit. Röltið verður mánudaginn 20.júlí kl. 19:30 og hefst við afleggjarann að Ásgarði. Í stapanum búa álfar og verður sagt frá samskiptum þeirra við okkur mannverurnar, auk þess sem Ásgarðsfeðgar segja frá …
Uppbyggingarsjóður Vesturlands
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands. Styrkirnir eru til atvinnuþróunar og nýsköpunar. Umsóknarfrestur er til og með 24.ágúst 2020. Á vef Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi má finna rafræna umsóknargátt. Kynnið ykkur vel reglur og viðmið varðandi styrkveitingar. Athugið að ekki er verið að veita styrki fyrir menningarverkefni í þessari úthlutun. Fyrir aðstoð við umsóknir má hafa samband við: …
Sögurölt: Örlagasögur í landi Bassastaða
Sauðfjársetur á Ströndum og Byggðasafn Dalamanna halda áfram samstarfi sínu um sögurölt í sumar. Fimmtudaginn 9. júlí verður söguröltið á Ströndum og verður gengið í landi Bassastaða við norðanverðan Steingrímsfjörð. Gangan hefst kl. 19:30 dálítið utan við bæinn á Bassastöðum, neðan við Strandaveg, þar sem til skamms tíma var beygt yfir Bjarnarfjarðarháls (eða Bassastaðaháls). Um er að ræða stutta göngu …
Rafmagnstruflanir – Skógarstrandarlína
Raforkunotendur á Skógarströnd, Dalabyggð, þ.e. Suðurdalir, Búðardalur, Fellströnd, Saurbær og Skarðströnd, komið gæti til rafmagnstruflana í nótt vegna vinnu í tengivirki á Glerárskógum frá miðnætti til kl. 06 í fyrramálið. Nánari upplýsingar gefur Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390. Kort af svæði sem talið um er að ræða má sjá á www.rarik.is/rof
Ferming í Hjarðarholtskirkju
Þeir Alexander Örn og Daníel Freyr Skjaldarsynir fermast við hátíðlega athöfn í Hjarðarholtskirkju á morgun, 4. júlí, kl. 11:00. Prestur sr. Anna Eiríksdóttir, organisti Halldór Þ Þórðarson og kórfélagar.
Laust starf: Ostaframleiðsla MS Búðardal
Mjólkursamlag MS í Búðardal óskar eftir áhugasömum aðila til starfa við framleiðslu á Dala-ostum. Æskilegt er að viðkomandi aðili sé búsettur í Dalabyggð eða hafi áhuga á búsetu þar. Allar nánari upplýsingar veita Lúðvík Hermannsson, ludvikh@ms.is og Garðar Freyr Vilhjálmsson, gardarv@ms.is MS Búðardal framleiðir m.a. Dalaosta – gott handbragð úr Dölunum. Ostagerðarmenning MS Búðardal byrjaði árið 1977. Sjá einnig: …
Deiliskipulag fyrir Iðjubraut í Búðardal
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 22. júní 2020 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í Búðardal í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir atvinnusvæði við Iðjubraut í norðurjaðri byggðarinnar, austan Vesturbrautar. Landnotkun á svæðinu skv. gildandi aðalskipulagi Dalabyggðar er athafna- og iðnaðarsvæði og fellur nýtt deiliskipulag undir þá skilgreiningu. Skipulagssvæðið er um …
Sögurölt á Skarði á Skarðsströnd
Byggðasafn Dalamanna og Sauðfjársetur á Ströndum halda áfram samstarfi sínu um sögurölt. Fyrsta rölt sumarsins verður miðvikudaginn 1. júlí kl. 19:30 og hefst á hlaðinu á Skarði. Stella kollubóndi á Skarði og Valdís safnvörður munu vappa um hlaðið og nágrenni og segja sögur af alls konar konum á Skarði. Húsfreyjum, húskonum, vinnukonum, stúlkum, reifabörnum og draugum. Rétt er þó að …