20.03.2020Aðalfundi SSV frestað Stjórn SSV hefur ákveðið að fresta aðalfundi samtakanna sem halda átti 1. apríl n.k. um óákveðin tíma vegna samkomubanns. Hægt er að fylgjast með nánari fregnum á www.ssv.is Skoða betur
18.03.2020Héraðsbókasafn Dalasýslu – vegna COVID-19 Til íbúa Dalabyggðar. Nú þegar viðbrögð og varnir vegna COVID-19 veirunnar ráða för þá vill bókavörður minna fólk á að halda í heiðri þær leiðbeiningar sem gefnar hafa verið út um hvernig við best getum forðast smit. Þvo hendur, hnerra í olnboga, spritta sig og halda tveggja metra fjarlægð frá næsta manni. Bókavörður vill einnig biðja fólk að hafa heimsóknirSkoða betur
18.03.2020Breytt fyrirkomulag þjónustu hjá skrifstofu Dalabyggðar Í ljósi þess að neyðarstigi hefur verið lýst yfir í landinu vegna COVID-19 veirunnar mun fyrirkomulag á þjónustu hjá skrifstofu Dalabyggðar breytast frá og með fimmtudeginum 19.mars Aðgangur að vinnuaðstöðu starfsmanna á skrifstofu sveitarfélagsins verður lokaður og því verður ekki hægt að mæta beint á skrifstofur starfsmanna sveitarfélagsins. Eru gestir beðnir að virða tilmæli um að koma ekki inn áSkoða betur
18.03.2020Skólastarf hafið að nýju Í morgun mættu nemendur og starfsmenn í Auðarskóla. Mjög vel hefur gengið að fara etir því skipulagi sem búið var að kynna. Það er mikil ró yfir nemendum og skólastarfið gengið vel í breyttri mynd. Bæði nemendur og starfsmenn hafa staðið sig eins og hetjur til að láta allt ganga. Höldum áfram svona! Kær kveðja Hlöðver Ingi Gunnarsson Skólastjóri AuðarskólaSkoða betur
18.03.2020Viðbragðsáætlun Dalabyggðar vegna heimsfaraldurs af völdum COVID-19 Almannavarnir hafa lýst yfir neyðarstigi vegna COVID-19 veirunnar. Dalabyggð fylgist vel með þróun mála og er ítrekað unnið að því að endurmeta viðbrögð við stöðunni. Sveitarfélagið hefur birt helstu fréttir og leiðbeiningar hérna á heimasíðunni og setur nú fram samþykkta viðbragðsáætlun sveitarfélagsins. Áætlunin verður uppfærð reglulega. Meginreglan er sú að fylgja eftir öllum tilmælum yfirvalda, eins og almannavarna, sóttvarnarlæknis ogSkoða betur
17.03.2020Skólahald í Auðarskóla í samkomubanni Hérna má sjá fyrirkomulag á skólahaldi í Auðarskóla vegna samkomubanns. Á leikskólanum Leikskólinn verður opinn alla daga frá kl. 8:00 til kl. 14:00. (Ath. leikskólinn opnar ekki kl. 7:45). Við leggjum áherslu á það að foreldrar sýni því skilning og bíði með að koma inn í leikskólann ef margir eru að koma með nemendur í einu. Hver hópur á leikskólanumSkoða betur
17.03.2020Aðalfundi Búnaðarfélags Hvammsfjarðar frestað Aðalfundi Búnaðarfélags Hvammsfjarðar sem átti að vera í kvöld hefur verið frestað, er þetta gert bæði vegna veðurs og í ljósi aðstæðna vegna COVID-19 veirunnar. Nýr fundartími verður auglýstur síðar. – Formaður Búnaðarfélags HvammsfjarðarSkoða betur
17.03.2020Kjörbúðin Búðardal – Sér afgreiðslutími fyrir viðkvæma Á næstunni munu nokkrar verslanir Nettó og Samkaupa verða opnar á milli klukkan 9 og 10 fyrir þá sem eru í áhættu vegna smits af kórónuveirunni þ.e. eldri borgarar og þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma eða veikari fyrir smiti vegna heilsufars. Þetta á einnig við um Kjörbúðina í Búðardal. Verslunin er að aðlaga sig að ástandinu sem faraldur veirunnarSkoða betur
16.03.2020Varðandi skólahald í Auðarskóla vegna COVID-19 Eins og öllum ætti að vera kunnugt erum við að takast á við aðstæður sem ekki eru fordæmi fyrir. Við höfum unnið hörðum höndum að því síðustu daga að skipuleggja starfið í Auðarskóla þannig að við getum haldið úti sem mestri starfsemi. Við erum öll að gera okkar besta til þess að ná utan um breyttar aðstæður og mikilvægt aðSkoða betur
16.03.2020Tilkynning frá HVE vegna COVID-19 veirunnar Samkomubann sem tekið hefur gildi á Íslandi vegna COVID-19 mun óhjákvæmilega hafa töluverð áhrif á starfsemi Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE). Hefta þarf aðgang að heilsugæslustöðvum, göngudeildum, sjúkrahúsum og hjúkrunardeildum á HVE. Takmarka þarf sem mest fjölda þeirra sem sitja á biðstofum hverju sinni og hafa a.m.k. 2 metra fjarlægð sé á milli einstaklinga. Þetta á við alla sem koma til viðtals,Skoða betur
16.03.2020Tilkynning frá Sýslumanninum á Vesturlandi vegna COVID-19 veirunnar Ríkisstjórn Íslands lýsti yfir samkomubanni 13. mars sl. Það felur m.a. í sér að við öll mannamót, þar sem færri en 100 manns koma saman, þarf að tryggja að nánd milli manna verði yfir tveimur metrum. Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar kemur í kjölfar þess að lýst var yfir neyðarstigi í landinu vegna COVID-19 veirunnar. Embætti Sýslumannsins á Vesturlandi er með skrifstofur áSkoða betur
14.03.2020Frá oddvita vegna samkomubanns og COVID-19 Í gær voru kynnt áform stjórnvalda um að sett yrði á samkomubann sem tekur gildi kl. 00:00 þann 16. mars 2020 og gildir til 12. apríl 2020 kl. 23:59. Markmið þessara aðgerða er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 faraldurs. Við þessar aðgerðir verður allt skólahald með breyttu sniði um allt land. Til að skipuleggja þettaSkoða betur