Fréttir.

08.06.2016

Svæðisskipulag – Verkefnislýsing til kynningar og umsagnar

Á þriðja fundi sínum, þann 1. júní sl., samþykkti svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar lýsingu skipulagsverkefnis fyrir sveitarfélögin. Lýsingin er unnin samkvæmt ákvæði 23. gr. skipulagslaga. Í verkefnislýsingunni er gerð grein fyrir tildrögum og tilgangi svæðisskipulags og hvernig staðið verður að vinnslu þess. Lýst er landfræðilegu samhengi skipulagssvæðisins og samhengi verkefnisins við aðra stefnumótun og áætlanagerð á svæðis- og landsvísu.
Skoða betur
08.06.2016

Lóðasláttur eldri borgara

Þeir eldri borgarar sem þarfnast lóðasláttar, þurfa að sækja um það á skrifstofu Dalabyggðar, einnig er umsóknareyðublaðið að finna á heimasíðu Dalabyggðar. Umsókn um lóðaslátt
Skoða betur
08.06.2016

Bjartmar í Leifsbúð

Laugardaginn 11 júní mun Bjartmar Guðlaugsson halda tónleika í Leifsbúð, tónleikarnir hefjast kl. 21. Eins og flestir vita á Bjartmar farsælan feril sem tónlistamaður hérlendis. Aðgangseyrir er 2.500 kr. Matur og drykkur verður til sölu á meðan tónleikarnir standa yfir.
Skoða betur
30.05.2016

Garðland

Garðland fyrir grænmetisræktun í Búðardal er í námunda við vatnstankinn. Íbúum Dalabyggðar er frjálst að helga sér reit á svæðinu til afnota sumarlangt endurgjaldlaust, en eru beðnir að gæta hófs varðandi stærð þannig að sem flestir áhugasamir geti nýtt sér svæðið.
Skoða betur
30.05.2016

Kvennahlaup ÍSÍ

27. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður laugardaginn 4. júní kl. 11 og hefst við Leifsbúð. Hægt verður að hlaupa stóran (2,2 km) eða lítinn hring (1 km). Verð á kvennahlaupsbolum er 2.000 kr. fyrir 13 ára og eldri, en 1.000 kr. fyrir 12 ára og yngri, verðlaunapeningur er innifalinn í verði. Frítt verður í sund á Laugum eftir hlaupið og þarf
Skoða betur
28.05.2016

Skólaslit Auðarskóla

Skólaslit Auðarskóla, grunnskóla- og tónlistardeildar, verða miðvikudaginn 1. júní klukkan 17 í Dalabúð. Auðarskóli
Skoða betur
28.05.2016

Fuglafjör á Ströndum

Sunnudaginn 29. maí klukkan 16 verður Fuglafjör í Náttúrubarnaskólanum á Sauðfjársetrinu á Ströndum fyrir fólk á öllum aldri. Dagrún Ósk Jónsdóttir byrjar á stuttri kynningu á náttúrubörnum á Ströndum og starfinu í sumar og svo sér Jón Jónsson um fróðlegt og skemmtilegt spjall um fugla á Ströndum fyrir byrjendur. Á eftir því ætlum við að kíkja út í gönguferð og
Skoða betur
27.05.2016

Lögreglusamþykkt fyrir Dalabyggð

Innanríkisráðherra hefur staðfest lögreglusamþykkt fyrir Dalabyggð og var hún birt í Stjórnartíðindum 6. maí og hefur þar með tekið gildi. Íbúar eru hvattir til að kynna sér efni samþykktarinnar sem finna má á vef Dalabyggðar og á vef Stjórnartíðinda. Lögreglusamþykkt fyrir Dalabyggð
Skoða betur
27.05.2016

Augnlæknir

Guðrún J. Guðmundsdóttir, augnlæknir, verður með móttöku á heilsugæslustöðinni í Búðardal föstudaginn 3. júní. Tímapantanir eru í síma 432 1450.
Skoða betur
20.05.2016

Heim í Búðardal

Bæjarhátíðin Heim í Búðardal verður haldin helgina 8.-10. júlí. Viðburðir hátíðarinnar verða meðal annars Vestfjarðarvíkingurinn, kassabílarallý KM, ljósmynda- og myndlistasýningar og fleira. Ef einhverjir vilja koma að hátíðinni með einhverjum hætti þá er hægt að hafa samband við Svönu í síma 779 1324 eða netfangið tomstund@dalir.is. Hægt er að fylgjast með á Facebooksíðunni Bæjarhátíð í Búðardal.
Skoða betur
18.05.2016

Íþróttaæfingar UDN

Frjálsíþrótta- og knattspyrnuæfingar verða á mánudögum og fimmtudögum kl. 17:00-19:00. Engin æfingagjöld verða á þessar æfingar. Yfirþjálfari verður Svana Hrönn. Nánari upplýsingar í síma 779 1324, netfanginu udn@udn.is og á heimasíðunni www.udn.is.
Skoða betur
17.05.2016

Leifsbúð – sumarstörf

Starfskraftur óskast til afgreiðslustarfa í Leifsbúð í sumar. Upplýsingar gefur Hafliði í síma 823 0100 eða netfangið he1008@hotmail.com
Skoða betur
Fréttir.