Skrifstofa Dalabyggðar verður lokuð 24. desember (aðfangadag) og 31. desember (gamlársdag). Skrifstofan er að öðru leyti opin eins og venjulega frá kl.9-13 alla virka daga. Gleðilega hátíð!
Aðalskipulag Dalabyggðar 2020-2032 – Kynning tillögu á vinnslustigi
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 11. nóvember sl. að kynna vinnslutillögu að Aðalskipulagi Dalabyggðar 2020-2032. Tillagan er sett fram í greinargerð, umhverfismatsskýrslu og uppdrætti (sjá hér fyrir neðan). Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér skipulagsgögnin og senda umsagnir, ef einhverjar eru, til skipulagsfulltrúa á netfangið skipulag@dalir.is fyrir 18. janúar 2022. Ábendingar má einnig senda …
Aukalosun á grænum tunnum 27. desember
Mánudaginn 27. desember nk. er stefnt að aukalosun á grænum tunnum (endurvinnsla) í Dalabyggð. Við biðjum íbúa um að hafa þetta í huga og koma allri endurvinnslu út í tunnur fyrir losunardag. Þessi aukalosun er bæði vegna þess auka magns sem fellur til af endurvinnanlegum umbúðum kringum hátíðirnar en einnig til að afstilla sorphirðu fyrir nýja tíðni eftir áramót þar …
Töf á hundahreinsun
Borist hafa spurningar um tafir á hundahreinsun. Ástæða þess að hundahreinsun hefur tafist er að lyfið er ófáanlegt. Vonir standa þó til þess að það komi fyrir jól, tilkynnt verður um þegar það kemur.
Bókasafnið lokað á Þorláksmessu
Hérðasbókasafn Dalasýslu verður lokað 23. desember nk. (Þorláksmessu). Opið er aðra daga samkvæmt venju. Opnunartímar: Þriðjudagar kl. 12:30-17:30 Fimmtudagar kl. 12:30-17:30
Sveitarstjórn Dalabyggðar – 212. fundur
FUNDARBOÐ 212. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, fimmtudaginn 9. desember 2021 og hefst kl. 16:00 Dagskrá: Almenn mál 1. 2104005 – Fjarfundir 2. 2104022 – Fjárhagsáætlun 2022 og 2023-2025 – Gjaldskrár 2022. 3. 2104022 – Fjárhagsáætlun 2022 og 2023-2025, síðari umræða. 4. 2110006 – Breyting á samþykktum Dalabyggðar – síðari umræða. 5. 2111020 – Fjárhagsáætlun 2021 …
Ábending til rekstraraðila vegna sorphirðu
Í byrjun árs tók Íslenska gámafélagið við sorphirðu í Dalabyggð. Við þessa breytingu voru meðal annars grenndargámar í dreifbýli fjarlægðir, grenndarstöðvar settar upp í staðin og þriggja tunnu kerfi innleitt á heimilum í sveitarfélaginu. Grenndarstöðvarnar eru eingöngu ætlaðar heimilisúrgangi frá frístundahúsum í sveitarfélaginu og greiða eigendur þeirra sorphirðugjald fyrir þá þjónustu. Vegna þessa þurfa rekstraraðilar sjálfir að hafa samband við …
Sýsluskrifstofa lokuð 2. desember
Afgreiðsla Sýslumannsins á Vesturlandi í Búðardal verður lokuð fimmtudaginn 2. desember nk.
Örvunarskammtar vegna COVID-19 – bólusett með Pfizer bóluefni
Boðið verður upp á örvunarbólusetningu fyrir fólk frá 16 ára aldri, að því gefnu að u.þ.b. 6 mánuðir séu liðnir frá seinni skammti af grunnbólusetningu og 2 vikur liðnar frá Inflúensubólusetningu, hafi fólk fengið hana. Dagsetningar fyrri bólusetninga má finna á heilsuvera.is Þau sem eru óbólusett eða hálfbólusett 12 ára og eldri eru velkomin. Athugið að það þarf að skrá sig í bólusetninguna í …
Frístundastyrkir Dalabyggðar fyrir börn og ungmenni
Til að fá frístundastyrk fyrir börn á aldrinu, 3 til 18 ára greiddan þarf að skila umsókn ásamt greiðslukvittunum til skrifstofu Dalabyggðar eigi síðar en 15. desember. Umsóknareyðublað fyrir frístundastyrk Reglur um frístundastyrk Dalabyggðar