27.04.2023Viðvera KPMG 27. apríl fellur niður Því miður fellur niður viðvera KPMG í Búðardal á morgun, fimmtudaginn 27. apríl. Ráðgjafi KPMG mun hafa samband við þá sem áttu bókaða tíma. Næsta viðvera KPMG er því 11. maí n.k.Skoða betur
27.04.2023Sumarstarf – Leikjanámskeið Undra Íþróttafélagið Undri auglýsir eftir starfsmanni í 100% starf á leikjanámskeið í júní. Starfið felur í sér skipulagningu og daglega umsjón námskeiðsins sem er fyrir börn fædd 2011-2016. Hæfnikröfur: – 18 ára aldurstakmark. – Góð fyrirmynd, stundvísi og vinnusemi. – Sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptahæfni. – Frumkvæði og þolinmæði. – Reynsla af störfum með börnum æskileg. – Hreint sakavottorð. – GóðSkoða betur
24.04.2023Uppsögn á samningi við SÍ og heilbrigðisráðuneytið Stjórn Silfurtúns og sveitarstjórn hefur undanfarnar vikur átt í samskiptum við Sjúkratryggingar Íslands vegna daggjaldagrunns Silfurtúns og RAI mats stuðuls sem stuðst er við nú við ákvörðun daggjaldagrunns sem heimilinu er greitt samkvæmt. Ekkert hefur miðað og hafa Sjúkratryggingar nú í tvígang hafnað beiðnum okkar þó ýmis rök styðji okkar ósk um að fá daggjaldagrunninn leiðréttan. Munar þarna á annanSkoða betur
24.04.2023Orkuskipti – Samtal um nýtingu vindorku Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, býður til opinna funda um orkuskipti með áherslu á hlutverk vindorku. Ráðherra skipaði síðastliðið sumar þriggja manna starfshóp sem fékk það hlutverk að skoða og gera tillögur til ráðherra um nýtingu vindorku, þ. á m. um lagaumhverfi og hvernig verði tekið á ýmsum álitamálum. Starfshópurinn hefur nú skilað stöðuskýrslu til ráðherra og verðaSkoða betur
21.04.2023Aðalfundur Krabbameinsfélags Breiðfirðinga Aðalfundur Krabbameinsfélags Breiðfirðinga verður haldinn fimmtudaginn 27. apríl kl. 17:00 í Rauða kross húsinu Búðardal Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Fréttir frá Krabbameinsfélagi Íslands. Kosinn fulltrúi á næsta aðalfund K.Í. Önnur mál. Nýir félagar velkomnir. – Stjórnin.Skoða betur
19.04.2023Jörvagleði 2023: Listaverk nemenda Auðarskóla Nemendur Auðarskóla láta sitt ekki eftir liggja þegar kemur að Jörvagleði og hafa unnið verk undir handleiðslu Maríu Hrannar Kristjánsdóttur myndmenntakennara til að sýna á hátíðinni. Nemendur yngsta stigs hafa unnið vindhörpur sem hanga hingað og þangað í trjám á skólalóðinni. Nemendur í 6.-7. bekk hafa unnið skúlptúra og 8. bekkur unnið þrívíðar fígúrur úr gifs sem verða til sýnisSkoða betur
19.04.2023Jörvagleði 2023 – Dagskrá Við minnum á Jörvagleði 2023, menningar- og listahátíð Dalabyggðar sem haldin er í 24. sinn í þeirri mynd sem við þekkjum í dag. Það er fjölbreytt úrval viðburða á dagskrá og við hvetjum bæði íbúa og gesti til að sækja þá viðburði sem verða í gangi næstu daga og út vikuna. Á dagskrá Jörvagleði í ár eru m.a. viðburðir semSkoða betur
19.04.2023Æfing Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda Laugardaginn 15. apríl sl. komu slökkvilið Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda saman við Staðarhólskirkju (Tjarnarlund). Er það í fyrsta sinn sem liðin koma saman frá því þau voru kölluð út 31. janúar 2016 þegar eldur kom upp í húsnæði Hótel Ljósaland í Saurbæ í Dölum. Æfð var vatnsöflun fyrir brunavettvang og til þess notaðar tvær 15.000 lítra söfnunar laugar. ErSkoða betur
18.04.2023Orkustofnun styrkir varmadælukaup Orkustofnun hvetur til umhverfisvænnar orkuöflunar við húshitun og bæta orkunýtni í rafhitun á landinu. Með breytingum á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar var opnað á möguleika ríkisins til að taka þátt í stofnkostnaði við umhverfisvæna orkuöflun sem dregur úr rafhitun eða olíukyndingu. Hægt er að minnka rafhitun með ýmsu móti m.a. með varmadælum, viðarkyndingu o.s.frv. Til íbúðareigenda sem nú hafa niðurgreiddaSkoða betur
18.04.2023Örsýning: Matur og molasopi Byggðasafn Dalamanna hefur sett upp örsýninguna „Matur og molasopi“ á Héraðsbókasafni Dalasýslu. Við hvetjum gesti safnsins til að gefa sér tíma og skoða sýninguna.Skoða betur
18.04.2023Lokað á skrifstofu Sýslumanns Skrifstofa fulltrúa Sýslumanns í Búðardal er lokuð í dag, þriðjudaginn 18. apríl 2023.Skoða betur
18.04.2023Sex verkefni á Vesturlandi fá framkvæmdastyrki Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ráðherra menningar- og viðskipta, tilkynnti um úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða þann 14. apríl sl. Það eru 28 verkefni víðsvegar um landið sem hljóta styrki sem hljóða alls upp á 550 milljónir. Þar af eru sex verkefni á Vesturlandi sem fá stuðning og eitt í Dalabyggð. Verkefni „Gönguleið Fellsströnd – Skarðsströnd“ fær 460.000 kr.- styrk til að útbúaSkoða betur