Fréttir.

Aðalmynd fyrir “Jólasýningar safnanna”
12.12.2025

Jólasýningar safnanna

Jólasýningar Byggðasafns Dalamanna, Héraðsbókasafns Dalasýslu og Héraðsskjalasafns Dalasýslu eru að birtast hver af annarri í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, enda er von á fyrsta jólasveininum í nótt. Á bókasafninu eru til sýnis kökudiskar frá Hafursstöðum, Skarfsstöðum og Stóra-Vatnshorni. Diskarnir eru allir varðveittir á Byggðasafni Dalamanna. Jólahald byggist hjá flestum á hefð og jólabakstur stór hluti hjá mörgum fjölskyldum. Í anddyri stjórnsýsluhússins
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Framkvæmd íbúakosningar um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra ”
12.12.2025

Framkvæmd íbúakosningar um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra 

Kjörfundur vegna íbúakosningar í Dalabyggð og Húnaþingi vestra um sameiningu sveitarfélaganna verður 28. nóvember – 13. desember 2025. Íbúar kjósa í því sveitarfélagi sem þeir eru á kjörskrá í. Óski kjörstjórn þess, ber kjósanda að framvísa persónuskilríkjum á kjörstað.   Kjörstaðir og opnunartímar í Dalabyggð Dagana 28. nóvember – 12. desember verður kosið á skrifstofu Dalabyggðar á Miðbraut 11  mánudaga
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu í Dalabyggð árin 2026 til 2029”
11.12.2025

Gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu í Dalabyggð árin 2026 til 2029

Fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2026-2029 var lögð fram til síðari umræðu í sveitarstjórn og samþykkt einróma fimmtudaginn 11. desember 2025. Áætluð rekstrarniðurstaða samstæðunnar (A og B hluta) árið 2026 er jákvæð um 7,5 milljónir króna. Nýjasta útkomuspá fyrir árið 2025 gerir ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu upp á ríflega 173 milljónir króna á árinu þannig að áfram er haldið á sömu
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Söfnun á rúlluplasti – seinkun”
10.12.2025

Söfnun á rúlluplasti – seinkun

Vegna bilunar hófst söfnun á rúlluplasti ekki í gær, þriðjudaginn 9. desember, eins og til stóð samkvæmt dagatali. Unnið er að viðgerð og stefnt að því að söfnun ljúki í vikunni eða um helgina. Minnum á leiðbeiningar um umhirðu og frágang á rúlluplasti: Rúlluplast
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Opnunartími bókasafns yfir hátíðirnar”
10.12.2025

Opnunartími bókasafns yfir hátíðirnar

Síðasti opnunardagur bókasafnsins fyrir jól/áramót er fimmtudaginn 18. desember. Næstu opnunardagar verða svo þriðjudaginn 30. desember og þriðjudaginn 6. janúar 2026 Það er því um að gera að koma og næla sér í hátíðar-lesefni. Gleðileg bókajól!
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sveitarstjórn Dalabyggðar – 263. fundur”
09.12.2025

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 263. fundur

FUNDARBOÐ 263. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, fimmtudaginn 11. desember 2025 og hefst kl. 16:00 Dagskrá: Almenn mál 1. 2510016 – Gjaldskrár – uppfærsla fyrir 2026 2. 2505016 – Fjárhagsáætlun 2026-2029 3. 2512001 – Fjárhagsáætlun 2025- Viðauki VI 4. 2512005 – Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Bréfpokar fyrir lífrænan úrgang”
08.12.2025

Bréfpokar fyrir lífrænan úrgang

Að gefnu tilefni er minnt á að eingöngu má nota bréfpoka undir lífrænan úrgang. Borið hefur á því að notast sé við höldupoka úr búðum, maíspoka og plastpoka undir úrganginn í brúnu tunnurnar. Slíkt skemmir fyrir moltun og afurðinni sem kemur úr moltugerð Sorp, sem hefur gert athugasemdir við aukið magn slíkra umbúða. Íslenska gámafélagið hefur ítrekað við sitt starfsfólk
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Kosningaþátttaka sambærileg í báðum sveitarfélögum”
08.12.2025

Kosningaþátttaka sambærileg í báðum sveitarfélögum

Íbúakosningar um tillögu um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafa nú staðið yfir frá 28. nóvember, en þeim lýkur laugardaginn 13. desember nk. Þann dag verða kjörstaðir opnir í Félagsheimilinu Hvammstanga og í Stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar frá kl. 09:00-17:00 (sjá nánar um opnunartíma kjörstaða hér) Kosningaþátttaka er mjög áþekk í sveitarfélögunum tveimur m.v. stöðuna nú í upphafi loka viku kosninganna. Þegar
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Heitavatnslaust í hluta af Búðardal 9. desember”
08.12.2025

Heitavatnslaust í hluta af Búðardal 9. desember

Vegna vinnu við heitavatnskerfið verður heitavatnslaust í hluta af Búðardal frá kl. 14:00 til kl. 18:00 þann 9.12.2025. Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000. Kort af svæðinu má sjá á Rarik – Rof
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Stuðningsfjölskyldur óskast í Dalabyggð”
05.12.2025

Stuðningsfjölskyldur óskast í Dalabyggð

Félagsþjónusta Dalabyggðar óskar eftir einstaklingum eða fjölskyldum sem hafa áhuga á að gerast stuðningsfjölskyldur í Dalabyggð. Stuðningsfjölskyldur eru hluti af stuðningsþjónustu fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Hlutverk stuðningsfjölskyldna er að taka barn eða börn tímabundið í umsjá sína í þeim tilgangi að létta álagi af barni og fjölskyldu. Með því að gerast stuðningsfjölskylda gefst einnig tækifæri til að styrkja stuðningsnet
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Dagur sjálfboðaliðans: Takk fyrir ykkur!”
05.12.2025

Dagur sjálfboðaliðans: Takk fyrir ykkur!

Í dag er alþjóðlegur dagur sjálfboðaliðans og honum er fagnað um allan heim. Starf sjálfboðaliða er ekki sjálfsagt, í raun má segja að án framtaks sjálfboðaliða væri fátæklegt um að líta í byggðum landsins. Allt frá einstaklingsframtaki upp í heilu félögin og deildirnar, sem taka að sér hin ýmsu hlutverk og vinna ókeypis í sínum frítíma í þágu annarra og
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Opið er fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóð DalaAuðs”
02.12.2025

Opið er fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóð DalaAuðs

Umsóknarfrestur er til 21. janúar 2026, klukkan 12.00 að hádegi. Frumkvæðissjóður DalaAuðs styrkir nýsköpunar- menningar- og samfélagsverkefni í Dalabyggð. Umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur DalaAuðs má finna á vef SSV. Nánari upplýsingar og aðstoð við undirbúning á umsóknum veitir Linda Guðmundsdóttir, netfang: linda@ssv.is og sími: 7806697 Starfsstöð Lindu er í Nýsköpunarsetrinu í Búðardal. Hægt er að panta tíma í ráðgjöf alla virka
Skoða betur
Fréttir.